Vilja reisa vetnisverksmiðju í Helguvík með framleiðslugetu upp á 40 þúsund tonn

Nú stendur yfir gerð fýsi­leika­könn­unnar vegna fyr­ir­hug­aðrar vetn­is­verk­smiðju fyr­ir­tæk­is­ins Iðunnar H2 í Helguvík. Gert er ráð fyrir að orku­þörf verk­smiðj­unnar verði 300 mega­vött og að upp­bygg­ing geti tekið fjögur til sex ár.

Frá Helguvík á Suðurnesjum
Frá Helguvík á Suð­ur­nesjum Mynd: Verkís/Hörður Kristleifsson

Fyr­ir­tækið Iðunn H2 og Reykja­nes­bær hafa und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu sem snýr að upp­bygg­ingu Iðunnar á vetn­is­verk­smiðju í Helguvík. Samkvæmt vilja­yf­ir­lýs­ing­unni er gert ráð fyrir að verk­smiðjan verði reist í nokkrum þrepum en muni full­kláruð geta fram­leitt 40 þús­und tonn af vetni árlega. Þau áform eru þó háð því að fýsi­leika­könnun fyrir verk­efnið sem Iðunn er nú að láta vinna skili jákvæðum nið­ur­stöðum.

Auður Nanna Bald­vins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri og annar stofn­enda Iðunnar, segir í sam­tali við Kjarnann það geta tekið fjögur til sex ár að koma verk­smiðju sem þess­ari á lagg­irnar, ef af fram­kvæmd­inni verður. Til þess að það geti gerst þurfi ýmis­legt fleira en jákvæða nið­ur­stöðu úr fýsi­leika­könnun. [adspot]

„Við erum algjör­lega háð því að Suð­ur­nesja­lína tvö verði að veru­leika,“ segir Auður og bendir á að deilur hafi staðið yfir um fram­kvæmd hennar í 15 ár. Fyr­ir­tækið sé aftur á móti til­búið til að skoða „minni fasa ef að það þýðir að við getum kom­ist af stað og gert það á hag­kvæman máta,“ bætir hún við.

Orkuþörfin 300 megavött

Fram­leiðsla á vetni fer fram með raf­grein­ingu og til þess þarf tölu­verða orku. „40 þús­und tonn [af vetni] er 300 mega­vatta vinnsla í um það bil 90 pró­sent nýt­ingu,“ segir Auður. Spurð að því hvort fyr­ir­tækið hafi tryggt sér orku segir Auður að fyr­ir­tækið hafi nú þegar und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingar við nokkra raf­orku­sala. „Þetta kemur betur í ljós og við verðum með skýr­ari svör um bæði orku­þörf, upp­sett afl í vetn­is­vinnsl­unni og fram­leidd tonn á ári þegar fýsi­leika­könn­unin liggur fyrir.“

Auður seg­ist fagna því að skip­aður hafi verið starfs­hópur um nýt­ingu vind­orku því hún segir að stjórn­völd þurfi að taka ákvörðun um hvort hér landi eigi að rísa vind­orku­ver eða ekki. „Þetta snýst svo­lítið um það á þessu stigi,“ segir Auður og bætir síðar við: „Það er því­lík eft­ir­spurn eftir grænu ammón­íaki og það væri lítið mál að selja það en Íslend­ingar virð­ast ekki vilja virkja fyrir útflutn­ing, það virð­ist vera póli­tíski tónn­inn núna.“

Í við­tali við Morg­un­blaðið sem birt var fyrr í þessum mán­uði, sagði Hörður Arnarson for­stjóri Lands­virkj­unar að ekki væri til næg raf­orka á þessum tíma­punkti fyrir nýja stór­iðju og að fjöldi fyr­ir­tækja væri á hött­unum eftir meiri orku. „Og svo er ra­felds­neytið að þró­ast. Við horf­um fram á mikla eft­ir­spurn sem við get­um ekki mætt nema að hluta,“ sagði Hörður í sam­tali við Morg­un­blaðið.

Gætu skapað 30 störf til framtíðar

Að sögn Auðar er hægt að gera ráð fyrir að eitt starf skap­ist fyrir hver tíu mega­vött í vetn­is­vinnslu. Því geti 30 störf skap­ast til fram­tíðar ef af verk­efn­inu verður. „Raf­grein­ingin sjálf er til­tölu­lega ein­föld og það eru ekki mörg störf sem fylgja vetn­is­vinnsl­unni sjálfri. En þegar við tökum vetni og fram­leiðum úr því mögu­lega flug­véla­elds­neyti, mögu­lega met­anól á skip þá fylgja því fleiri störf,“ segir Auður.

Það verður ekki hjá því kom­ist að spyrja Auði um hvernig hafi gengið að sækja fjár­magn vegna fyr­ir­hug­aðrar vetn­is­fram­leiðslu. „Það er mik­ill áhugi að utan en því miður hefur ekki alveg kveiknað á áhuga íslenskra fjár­festa hvað þetta varðar. Fjár­fest­ing í vetni er alveg á milljón úti í Evrópu. Evr­ópu­sam­bandið er að setja hvata á vetn­is­vinnslu og vetn­is­inn­flutn­ing inn á Evr­ópu­svæðið og pen­ing­ur­inn, hann bara svarar og pen­ing­ur­inn fer af stað.“

Hún segir það leitt að íslenskir fjár­festar hafi ekki sýnt þessu verk­efni meiri áhuga. „Ég er von­góð um að það breyt­ist eftir fýsi­leika­könnun því það er ekki okkar vilji hjá Iðunni að verk­efnið sé alfarið fjár­magnað erlendis frá. Við viljum hafa íslenskt fé með,“ segir Auður og bætir því við að fyr­ir­tækið ætli að kanna áhuga íslenskra fjár­festa eftir að fýsi­leika­könn­unin liggur fyrir.

Fýsileikakönnun verði tilbúin á síðari hluta ársins

Verk­efnið á sér ein­hvern aðdrag­anda en Reykja­nes­bær og Iðunn höfðu skrifað undir aðra vilja­yf­ir­lýs­ingu í ágúst í fyrra. Auður var gestur á fundi bæj­ar­ráðs Reykja­nes­bæjar þann 23. júní síð­ast­lið­inn en á fund­inum hélt hún kynn­ingu á verk­efn­inu. Tveimur vikum síðar, þann 7. júlí, sam­þykkti bæj­ar­ráð að vilja­yf­ir­lýs­ing milli Iðunnar og bæj­ar­ins, sú sem hér hefur verið til umfjöll­unar, skyldi und­ir­rituð.

Í vilja­yf­ir­lýs­ing­unni segir að drög skuli verða til­búin að lóðar- og hafn­ar­samn­ingi sem og fram­kvæmda­lýs­ing við lok gild­is­tíma vilja­yf­ir­lýs­ing­ar­innar, reyn­ist verk­efnið vera fýsi­legt. Gild­is­tími vilja­yf­ir­lýs­ing­ar­innar er til loka þessa árs en gert er ráð fyrir að fýsi­leika­könn­unin verði til­búin á síð­ari helm­ing árs­ins.

Að því er segir í vilja­yf­ir­lýs­ing­unni skal Reykja­nes­bær, bæði að eigin frum­kvæði og að ósk Iðunnar, vinna með við­eig­andi stofn­unum að fram­gangi verk­efn­is­ins á gild­is­tíma yfir­lýs­ing­ar­innar.

Iðunn skuld­bindur sig til þess að veita Reykja­nesbæ upp­lýs­ingar og gögn um fram­kvæmd­ina svo hægt sé að meta bæði umhverf­is­leg og félags­leg áhrif hennar. Í vilja­yf­ir­lýs­ing­unni segir að Iðunn muni skil­greina þær kröfur sem fyr­ir­tækið gerir til lóð­ar­innar í Helguvík, svo sem kröfur sem snúa að vegum, veitum og aðgengi að höfn. Iðunn mun svo skila hönn­un­ar­drögum til bæj­ar­ins til upp­lýs­ingar um útlit verk­smiðj­unnar og bygg­ing­ar­magn.

Með und­ir­ritun vilja­yf­ir­lýs­ing­ar­innar skuld­bindur Reykja­nes­bær sig til þess að eiga ekki í við­ræðum við þriðja aðila um upp­bygg­ingu á verk­smiðju til vetn­is­fram­leiðslu á svæð­inu án skrif­legs sam­þykkis Iðunnar á gild­is­tíma vilja­yf­ir­lýs­ing­ar­innar. Báðir aðilar hafa mögu­leika á því að óska eftir fram­leng­ingu á gild­is­tím­anum sem er líkt og áður segir til loka þessa árs. Þó er tekið fram í vilja­yf­ir­lýs­ing­unni að miklar tafir geti haft nei­kvæð áhrif á upp­bygg­ing­ar­á­formin.

Hafa hug á útflutningi

Iðunn H2 tók þátt í við­skipta­hraðl­inum Startup SuperNova um mitt ár í fyrra. Í ein­blöð­ungi frá fyr­ir­tæk­inu sem birtur var sam­hliða þátt­töku þess í hraðl­inum sagði að fyr­ir­tækið ynni að þróun vetn­is­vinnslu í Helguvík. Þar sagði enn fremur að fyr­ir­tækið hefði tryggt sér lóð á besta mögu­lega stað fyrir vetn­is­fram­leiðslu á Íslandi, við stór­skipa­höfn sem tryggði gott aðgengi að inn­lendum mark­aði.

Í ein­blöð­ungnum kom einnig fram að fyr­ir­tækið hefði skrifað undir vilja­yf­ir­lýs­ingar um orku­kaup og ætti í sam­tölum varð­andi orku­flutn­ing og sjálf­bæra vatns­veitu. Þar sagði einnig að Ísland væri í ein­stakri stöðu til útflutn­ings á vetni til mark­aða sem þurfa á raf­elds­neyti að halda og að slíkur útflutn­ingur gæti jafn­vel orðið fjórða útflutn­ings­stoð þjóð­ar­innar. Sú staða sé til­komin vegna ríku­legrar fram­leiðslu á end­ur­nýj­an­legri orku í land­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár