Ólafur Ólafsson vísar Al-Thani málinu til Mannréttindadómstóls Evrópu

Ólafur Ólafsson, aðal­eig­andi Samskipa og fyrr­ver­andi hlut­hafi í Kaup­þingi, hefur sent fjöl­miðlum yfir­lýs­ingu vegna dóms Hæsta­réttar í gær í Al-Thani mál­inu svo­kall­aða, þar sem hann var sak­felldur fyrir hlut­deild að mark­aðs­mis­notkun og dæmdur í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi. Þar heldur Ólafur áfram fram sak­leysi sínu og upp­lýsir að hann ætli að vísa mál­inu til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu.

Ólafur segir að eng­inn sé dóm­ari í eigin sök og því hafi hann leitað eftir áliti frá "sex virtum lög­mönnum og fræði­mönnum í fjórum Evr­ópu­löndum vegna ákærunnar og dóms hér­aðs­dóms. Álitin voru öll sam­hljóða um að ég hefði ekki gerst brot­legur við lög. Laga­reglur um mark­aðs­mis­notkun eru byggðar á evr­ópskum til­skip­unum og eru reglur í ein­stökum löndum að mestu hinar sömu. Mér vit­an­lega eru refs­ingar sem þessar óþekktar í umræddum löndum."

Yfirlýsingin er svohljóðandi:


"Nið­ur­staða Hæsta­réttar í gær olli mér veru­legum von­brigðum og áfalli. Ég hef alltaf trúað því að ég yrði sýkn­aður af öllum liðum þeirrar ákæru sem mér var birt á sínum tíma, enda er ég sak­laus af því sem á mig var borið.

Enginn er dóm­ari í eigin sök og því leit­aði ég eftir áliti frá sex virtum lög­mönnum og fræði­mönnum í fjórum Evr­ópu­löndum vegna ákærunnar og dóms hér­aðs­dóms. Álitin voru öll sam­hljóða um að ég hefði ekki gerst brot­legur við lög. Laga­reglur um mark­aðs­mis­notkun eru byggðar á evr­ópskum til­skip­unum og eru reglur í ein­stökum löndum að mestu hinar sömu. Mér vit­an­lega eru refs­ingar sem þessar óþekktar í umræddum löndum.

Þrátt fyrir sak­fell­ingu getur dóm­ur­inn ekki bent á nein hald­bær sönn­un­ar­gögn eða fram­burði vitna sem stað­fest gætu efni ákærunnar. Gild­is­hlaðnar og inni­stæðu­lausar álykt­anir dóms­ins breyta þar engu um. Engu að síður kemst dóm­ur­inn að því að ég hafi gerst sekur um mark­aðs­mis­notkun.

Hæsti­réttur sýkn­aði mig hins vegar rétti­lega af ákæru um umboðs­svik og snéri þar við dómi hér­aðs­dóms.

Mér rann kalt vatn milli skinns og hör­unds þegar ég las bók fyrrum hæsta­rétt­ar­dóm­ara um síð­ustu jól. Í bók­inni segir um dóms­for­set­ann, Markús Sig­ur­björns­son, á blað­síðu 383 að hann sé „afar leik­inn í að semja langa lög­fræði­texta, þar sem enda­skipti eru höfð á hlutum. Einfalt verður flókið og satt ósatt.“ Ég neit­aði að trúa þeim ásök­unum sem þarna koma fram og í síð­ari skrifum höf­undar. Við lestur þessa dóms fá orð höf­undar allt aðra merk­ingu í mínum huga.

Embætti sér­staks sak­sókn­ara var meðal ann­ars sett á lagg­irnar til að sefa reiði borg­ar­anna í land­inu, svo vitnað sé til frum­varps til laga um emb­ættið. Ég held að eins­dæmi sé að laga­texti sé rök­studdur með þessum hætti í vest­rænu sam­fé­lagi. Ljóst er að dóm­ur­inn í gær fellur vel að þessum til­gangi en bygg­ist ekki á atvikum máls­ins og gild­andi lögum. Mín reynsla er sú að emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara virði í engu þá grund­vall­ar­skyldu við rann­sókn saka­máls að gætt skuli hlut­lægni og sann­leik­ans leitað. Eflaust hefur þrýst­ingur frá stjórn­mála­mönnum og almenn­ingi eftir þær raunir sem þjóðin gekk í gegnum árin eftir banka­hrunið haft mikið að segja um nálgun emb­ætt­is­ins.

Ég hugsa með hryll­ingi til þeirra fjöl­mörgu ein­stak­linga sem eru í blóma lífs­ins og bíða nú dóms vegna meintrar mark­aðs­mis­notk­unar ef Hæsti­réttur sér ekki að sér og dæmir eftir lögum. Ég óska engum þess að þurfa að sæta með­ferð af þessu tagi og því álagi sem fylgir fyrir ein­stak­linga og aðstand­endur þeirra.

Íslenskt rétt­ar­kerfi hefur dæmt sak­lausa menn seka. Ég velti vöngum yfir því hvort rétt­ar­ríki sé við lýði á Íslandi. Ég er sann­færður um að lands­menn vilja ekki búa í sam­fé­lagi þar sem réttar­ör­yggi þeirra er ekki tryggt og mann­rétt­indi ekki virt. Ég hef því ákveðið að vísa mál­inu til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í von um að dóm­ur­inn taki málið fyrir, enda var við með­ferð máls­ins brotið gegn grund­vall­ar­rétt­indum ein­stak­linga sem njóta verndar stjórn­ar­skrár­innar og Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár