Blaðamenn Reuters sagðir æfir yfir samstarfi við rússneska ríkisfréttaveitu

Frétta­veitu­þjón­usta Reuters býður við­skipta­vinum sínum upp á efni frá ýmsum frétta­veitum víða um heim, þar á meðal rúss­nesku rík­is­frétta­veit­unni Tass. Blaða­menn Reuters eru sagðir með böggum hildar yfir sam­starf­inu.

Höfuðstöðvar Reuters-fréttaveitunnar í London.
Höf­uð­stöðvar Reuters-frétta­veit­unnar í London. Mynd: EPA

Blaða­menn hjá Reuters-frétta­veit­unni eru sagðir pirraðir og hrein­lega skamm­ast sín, yfir sam­starfi Reuters við rúss­nesku rík­is­frétta­veit­una Tass, sem hefur frá upp­hafi stríðs­ins í Úkraínu birt fregnir af þróun mála á víg­vell­inum upp úr upp­lýs­ingum rúss­neskra varn­ar­mála­yf­ir­valda.

Frá þessu er sagt í frétt Politico, en sam­starf Reuters og Tass hófst árið 2020 og felur í sér að Reuters dreifir efni frá rúss­nesku frétta­veit­unni áfram til við­skipta­vina sinna. Þessi samn­ingur er sagður hafa vakið nokkra undrun innan fyr­ir­tæk­is­ins er hann var gerður, en hins vegar vakti hann ekki mikla athygli út á við.

Tass er ein af fleiri en 90 frétta­veitum sem eru hluti af þjón­ustu Reuters sem heitir Reuters Connect, en um er að ræða frétta­veitu­þjón­usta ætluð fjöl­miðlum um allan heim, sem greiða Reuters fyrir aðgang að því efni sem þar má finna.

Þögn stjórnenda vekur áhyggjur

„Það var vand­ræða­legt þegar sam­starfs­samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður fyrir tveimur árum,“ sagði einn frétta­maður Reuters við Politico og bætti því við að nú væri sam­starfið „ein­fald­lega rangt“ og að þögnin úr efri lögum fyr­ir­tæk­is­ins um það vekti upp áhyggjur.

Í frétt Politico vitna tveir blaða­menn hjá Reuters, sem er alls með um 2.500 blaða­menn á sínum snærum í um 200 löndum heims, til um það að sumir starfs­menn frétta­veit­unnar hafi reynt að fá svör við því af hverju Reuters haldi áfram að dreifa fréttum frá Tass í gegnum Reuters Connect.

Starfs­menn­irnir eru sagðir hafa lýst yfir áhyggjum af ógagn­rýnni nálgun Tass á upp­lýs­ingar sem frétta­veitan fær frá stjórn­völdum í Rúss­landi, en margt af því efni sem Tass hefur dreift í fréttum sínum frá upp­hafi inn­rás­ar­innar þykir í meira lagi vafa­samt.

[adspot]

Þannig hefur Tass sagt frá því að Úkra­ínu­menn hafi drepið almenna borg­ara í Donbas-hér­uð­unum og varpað lík­unum í fjölda­grafir, að úkra­ínskar her­sveitir hafi skotið á Rússa á meðan á stað­bundnu vopna­hléi stóð og að úkra­ínskir nýnas­istar hafi stundað það að nota almenna borg­ara sem mennska skildi.

Í gær hafði Tass það til dæmis eftir rúss­neskum emb­ætt­is­manni að úkra­ínskir nýnas­istar væru með um 130 þús­und almenna borg­ara í „gísl­ingu“ í borg­inni Mariupol, sem hefur mátt þola sprengjuregn Rússa und­an­farnar vikur.

Síðustu vest­rænu blaða­menn­irnir sem voru við störf í borg­inni, þar til þeir voru fluttir í burtu af úkra­ínskum her­mönnum, hafa allt aðra sögu að segja.

Efni frá þriðju aðilum merkt sem slíkt

Í svari sem Politico fékk frá Reuters vegna þessa máls var áhersla lögð á að frétta­stofa Reuters starf­aði óháð öllum samn­ingum sem gerðir hafa verið í tengslum við efn­is­fram­boð Reuters Connect.

„Connect-vett­vang­ur­inn leyfir not­endum – oft­ast öðrum fjöl­miðla­fyr­ir­tækjum – að sjá efni, þar á meðal vídjó, myndir og skýr­ing­ar­myndir, frá mörgum stöðum í heim­inum. Allt efni sem stafar frá þriðju aðilum er skýr­lega merkt sem slíkt og er með fyr­ir­vara um að Reuters „tryggi ekki nákvæmni efn­is­ins né styðji við nokkur við­horf eða skoð­anir sem þar koma fram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár