Karolina Fund: Á söguslóð Þórðar kakala

Sýning: hljóð­leið­sögn og 30 lista­verk í Skaga­firði.

Sigurður Hansen, Pavel Khatsilouski frá Hvíta-Rússlandi, Guðmundur Stefán Sigurðarson og Ercan Bilir frá Tyrklandi fyrir utan Kakalaskála.
Sigurður Hansen, Pavel Khatsilouski frá Hvíta-Rúss­landi, Guð­mundur Stefán Sig­urð­ar­son og Ercan Bilir frá Tyrk­landi fyrir utan Kakala­skála. Mynd: Aðsend mynd

Verk­efnið Á sögu­slóð Þórðar kakala á sér langan aðdrag­anda, en Sigurður Hansen, bóndi í Kringlu­mýri í Skaga­firði, og sjálf­mennt­aður sér­fræð­ingur í Sturl­ungu, hefur ásamt fleirum staðið að upp­bygg­ingu á staðnum frá árinu 2006.

Sigurður hlaut ridd­ara­kross hinnar íslensku fálka­orðu fyrir fram­lag sitt til kynn­ingar á sögu og arf­leifð Sturl­unga­aldar í árs­byrjun 2015 og hefur það verið honum mikil hvatn­ing.

Sýningin Á sögu­slóð Þórðar kakala er sögu- og lista­verk­sýn­ing sem leggur áherslu á Sturl­unga­öld, og mun hún sam­an­standa af hljóð­leið­sögn og 30 lista­verkum, auk korta og skýr­ing­ar­mynda. Til stendur að opna sýn­ing­una sum­arið 2019.

Lista­verkin munu sýna fólk, atburði og staði er tengj­ast lífi Þórðar kakala, en hann var einn áhrifa­mesti ein­stak­lingur Sturl­unga­aldar. Fjórtan lista­menn, bæði inn­lendir og erlendir, hafa verið valdir úr hópi tæp­lega nítíu umsækj­enda til að vinna verkin 30. Jón Adólf Stein­ólfs­son, mynd­höggv­ari, er list­rænn stjórn­andi sýn­ing­ar­innar. Lista­menn­irnir koma saman í Lista­manna­búðum í Kringlu­mýri dag­ana 25. mars til 15. apríl og verður opið hús á laug­ar­dögum frá kl. 14 til 17 á meðan á þeim stendur.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Eftir að ég hætti að búa árið 2005 fór sú hug­mynd að kvikna að sinna þessu áhuga­máli, þar að segja Sturl­unga­öld­inni. Við vorum fleiri í Skaga­firði sem deildum þessum áhuga og stofn­uðum við félagið Á Sturl­unga­slóð, sem meðal ann­ars hefur merkt sögu­staði og staðið fyrir ýmis­konar kynn­ingum og fræðslu.

Verk­efnið hófst með því að ég svið­setti Haug­s­nes­bar­daga á áreyr­unum rétt hjá Kringlu­mýri þar sem ég bý ásamt eig­in­konu minni Maríu Guð­munds­dóttur. Um er að ræða stórt úti­lista­verk sem sam­anstendur af 1300 steinum sem hver og einn stendur fyrir einn bar­daga­mann. Verkið gengur undir nafn­inu Grjóther­inn, en Haug­s­nes­bar­dagi, sem átti sér stað 1246, er tal­inn mann­skæð­asti bar­dagi Íslands­sög­unnar.

Eftir að því verki lauk ákváðum við hjónin að inn­rétta hús sem fyrir voru á staðnum og gera þar mót­t­töku fyrir gesti. Var þar m.a. inn­rétt­aður salur sem gengur undir nafn­inu Kakala­skáli, eftir Þórði kakala sem var að mínu mati mesti stjórn­mála­maður sinnar tíðar.

Þar hef ég sagt sögur frá Sturl­unga­öld og höfum við fjöl­skyldan tekið á móti allt að 3000 gestum á ári und­an­farin ár. Meðan verið var að inn­rétta skál­ann fengum við Jón Adólf Stein­ólfs­son, mynd­höggv­ari, þá hug­mynd að setja upp sögu- og lista­verka­sýn­ingu með áherslu á líf Þórðar kakala í sama húsi.

Nú er búið að und­ir­búa sýn­ing­ar­rýmið og hafa verið ráðnir 14 lista­menn til að vinna 30 lista­verk sem hvert fyrir sig túlkar ákveðna þætti úr sögu Þórðar kakala. Til stendur að kvik­mynda allt ferlið og það verður virki­lega spenn­andi að sjá hvaða augum lista­menn­irnir sjá sög­una.

Þema verk­efn­is­ins er Sturl­unga­öld, eða 13. öld. Við í Kringlu­mýri höfum verið að taka á móti fjölda fólks árlega, og hefur stór hluti þeirra komið til að fá leið­sögn um svið­setn­ingu Haug­s­nes­bar­daga, eða Grjóther­inn. Nú ætlum við að bæta við sögu- og lista­verka­sýn­ing­unni um Þórð kakala og vonum að fólki finn­ist hún spenn­andi við­bót og geri sér ferð til okkar í Kringlu­mýri. Það má nefna það hér að góð leið til að tryggja sér aðgang að sýn­ing­unni er að styrkja okkur á Karolina­fund.“

Eitthvað sér­stakt sem þú vilt að komi fram um þitt verk­efni?

„Mig langar að koma á fram­færi þökkum til allra þeirra sem stutt hafa verk­efnið með ýmsum hætti, en við höfum fengið mynd­ar­legan stuðn­ing við verk­efnið frá ýmsum, s.s. Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga, Upp­bygg­ing­ar­sjóði Norð­ur­lands vestra, Fram­kvæmda­sjóði ferða­manna­staða, Átaki til atvinnu­sköp­unar og fleirum. Svo ekki sé minnst á ómælda sjálf­boða­liða­vinnu vina og vanda­manna í gegnum tíð­ina. Jón Adólf Stein­ólfs­son og Karin Esther Gorter kona hans hafa verið okkur ómet­an­legir banda­menn við und­ir­bún­ing sýn­ing­ar­innar. Við erum núna á loka­metr­unum í verk­efn­inu og það er ekki síst öllum þessu góða stuðn­ingi, og öllu þessu góða fólki, að þakka.“

Hér er hægt að skoða og taka þátt í söfn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár