Flestir hælisleitendur sendir til Þýskalands og Ítalíu

Útlend­inga­stofnun tók ákvarð­anir um að end­ur­senda 103 ein­stak­linga til ann­arra ríkja á Schengen-svæð­inu á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar á fyrri helm­ingi þessa árs. Flestir voru eða verða sendir til Þýska­lands, 31 ein­stak­lingur, en 23 til Ítalíu og 22 til Noregs.

Þetta kemur fram í gögnum sem Útlend­inga­stofnun hefur tekið saman að beiðni Kjarnans. Tölurnar eiga við um ákvarð­anir Útlend­inga­stofn­unar en ekki fram­kvæmdar end­ur­send­ingar. Oft er málum skotið til kæru­nefndar útlend­inga­mála.

Stærsti hóp­ur­inn sem var sendur til ann­ars Evr­ópu­ríkis á grund­velli reglu­gerð­ar­innar voru Írakar, 20 tals­ins. Sextán Alb­anir voru sendir úr landi á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar og fimmtán Afg­an­ir. Fjórtán Gana-­búar voru sendir burt á þessum grund­velli og níu Níger­íu­menn. Sex Íranir voru á meðal þeirra sem voru sendir til ann­arra Evr­ópu­ríkja á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­inn­ar.

Dyfl­inn­ar­reglu­gerðin gerir stjórn­völdum kleift að senda umsækj­endur um alþjóð­lega vernd, eða hæl­is­leit­endur, aftur til þess ríkis innan Schengen sem þeir komu fyrst til. Þó má ekki senda fólk til ríkja þar sem hætta er á að það sæti ómann­úð­legri eða van­virð­andi með­ferð. Þannig hefur meg­in­reglan verið sú um nokk­urt skeið að fólk sem hingað kemur frá Grikk­landi og Ung­verja­landi sé ekki sent til baka þangað. Það átti líka við um Ítalíu, en inn­an­rík­is­ráðu­neytið ákvað í des­em­ber, eftir að hafa farið yfir for­sendur fyrir end­ur­send­ingum hæl­is­leit­enda að það yrði meg­in­reglan að fólk verði sent til Ítalíu, en að hvert atvik fyrir sig skyldi skoðað sér­stak­lega.

Þetta var gert þvert á ráð­legg­ingar Rauða kross­ins, sem sagði að það væri ekki óraun­hæft að álykta að flótta­fólk standi frammi fyrir raun­veru­legri hættu á að sæta ómann­úð­legri eða van­virð­andi með­ferð á Ítalíu.

Níu ein­stak­lingum var vísað úr landi og til Sví­þjóðar á fyrstu sex mán­uðum árs­ins og sex til Frakk­lands. Einn til tveir ein­stak­lingar voru sendir til Belgíu, Dan­merkur, Hollands, Írlands og Póllands.

Margfalt fleiri óska verndar hérlendis en áður

Marg­falt fleiri sóttu um alþjóð­lega vernd á Íslandi á fyrri helm­ingi þessa árs en á sama tíma­bili í fyrra. 274 ein­stak­lingar sóttu um vernd í ár, sam­an­borið við 86 ein­stak­linga á sama tíma­bili í fyrra. Umsækj­endum um vernd fór að fjölga veru­lega í ágúst í fyrra, og sú þróun hefur haldið áfram. Útlend­inga­stofnun gerir ráð fyrir að á bil­inu 600 til 1000 ein­stak­lingar muni óska verndar á þessu ári.

310 mál umsækj­enda um vernd voru afgreidd á fyrri hluta árs­ins, sem eru næstum jafn­mörg mál og voru afgreidd allt árið í fyrra. Af þessum 310 málum var um helm­ing­ur, eða 159 mál, tek­inn til efn­is­legrar með­ferð­ar.

Af þessum 159 var 106 synjað en 53 ein­stak­lingar fengu vernd, við­bót­ar­vernd eða dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum hér á landi. Sautján ein­stak­lingar frá Írak fengu vernd hér, tíu frá Íran og níu frá Sýr­landi. Fimm Afg­anir fengu vernd á Íslandi. Af þeim sem var synjað um vernd hér­lendis voru 60 Alb­anir og 21 frá Makedón­íu. Fjórum Kósóvó-­búum og fjórum Serbum var neitað um vernd, sem og þremur Úkra­ínu­mönn­um. Ein­stak­lingum frá Tyrk­landi, Níger­íu, Marokkó, Króa­tíu, Íran og Afganistan var neitað um vernd á Íslandi, sem og einum rík­is­fangs­lausum ein­stak­ling­i.

Þá vekur athygli að tveimur Banda­ríkja­mönn­um, tveimur Kanda­mönnum og einum Breta var synjað um vernd hér á land­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár