Gunnar Bragi samþykkti sameiginlega yfirlýsingu um loftslagsmál

Gunnar Bragi Sveins­son, utan­rík­is­ráð­herra, hefur fyrir hönd Íslands sam­þykkt sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu ríkj­anna á norð­ur­slóðum um hlýnun lofts­lags og norð­ur­slóðir. Þar er kapp þess­ara ríkja um að hægja á hlýnun jarðar und­ir­strikað og ríkin lýsa sig skuld­bundin til að vinna saman að alþjóð­legu sam­komu­lagi á lofts­lags­ráð­stefn­unni í París í des­em­ber (COP 21).

Yfir­lýs­ingin var gerð eftir fund utan­rík­is­ráð­herra og ann­ara full­trúa ríkj­anna á norð­ur­slóðum í Anchorage í Alaska í gær. Fund­ur­inn kall­að­ist GLACIER sem stendur fyrir „Global Leaders­hip in the Arctic: Cooperation, Innovation, Enga­gement, and Resilience“. Fundinn sóttu auk full­trúa Íslands, full­trúar Hollands, Suður-Kóreu, Dan­merkur, Finn­lands, Sví­þjóðar, Noregs og Banda­ríkj­anna.

„Við tökum mark á aðvör­unum vís­inda­manna: hita­stig á norð­ur­slóðum hækkar meira en tvisvar sinnum hraðar en ann­ars­staðar í heim­inum,“ segir meðal ann­ars í yfir­lýs­ing­unni. „Hafís, ísbreiðan á Græn­landi og nærri allir jöklar á norð­ur­slóðum hafa rýrnað síð­ustu 100 árin. […] Ísinn á norð­ur­skauti jarðar hefur hopað hraðar síð­ustu tíu árin en árin 20 þar á undan, á sumrum er ísbreiðan nú 40 pró­sent minni en árið 1979.“

Bráðunun íss­ins hefur dramat­ísk áhrif um allan heim. Yfirborð sjávar hækkar, hlýrra og þurr­ara veður ríkir á norð­ur­hveli með þeim afleið­ingum að mun meiri hætta steðjar að dýra­lífi og gróðri. Aukin tíðni gróð­ur­elda eykur svo koltví­sýr­ing í loft­inu. Aukin hlý­indi hafa einnig þau áhrif að sífreri bráðnar með þeim afleið­ingum að gríð­ar­legt magn af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum losna úr jörð­inni og út í and­rúms­loftið. Hér er því um víta­hring að ræða sem verður að stöðva strax.

[caption id="attachment_37954" align="alignnone" width="1024"] Utan­rík­is­ráð­herr­arnir frá vinstri: Bert Koenders frá Hollandi, Yun Byung-se frá Suður-Kóreu, Kristian Jensen frá Damörku, Margot Wallstrom frá Svíþjóð, John Kerry frá Banda­ríkj­unum, Timo Soini frá Finn­landi, Gunnar Bragi Sveins­son og Børge Brende frá Noregi. (Mynd: Utan­rík­is­ráðu­neyti BNA)[/caption]

Í yfir­lýs­ing­unni segir einnig að þessi hlý­indi hafi þegar haft beinan kostnað fyrir sam­fé­lög á norð­ur­slóðum. Bráðnun sífrer­ans hefur til dæmis orðið til þess að brýr, vegir og önnur mann­virki hafa hrunið og land­brot sjávar eykst og tak­markar land­rými í borgum og sveitum svo fólk þarf að flytja úr heima­högum. Veiði­staðir og fiski­mið hafa jafn­framt breyst.

Ríkin á norð­ur­slóðum ætla að nota þessi miklu vanda­mál sem vett­vang sam­vinnu og nýsköpun; „um leið og við stöndum saman vörð um þetta mik­il­væga svæði og fræðum heim­inn um það hvers vegna norð­ur­slóðir skipta okkur öll máli,“ segir svo í lok yfir­lýs­ing­ar­innar.

Í til­kynn­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu segir að Gunnar Bragi hafi rætt við John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, um lofts­lags­mál og varn­ar­sam­vinnu ríkj­anna. Gunnar Bragi flutti jafn­framt erindi á fund­inum þar sem hann fjall­aði um end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa sem tæki til að sporna við nei­kvæðum áhrifum lofts­lags­breyt­inga á norð­ur­slóðum, þá sér­stak­lega nýt­ingu jarð­hita og reynslu Íslend­inga á því sviði.

Ráð­stefn­unni lauk með ræðu Barack Obama, for­seta Banda­ríkj­anna, þar sem hann sagði heim­inn ekki hafa brugð­ist nógu hratt við hlýnun lofts­lags. „Vísindin eru vægð­ar­laus. Aðgerðir mann­kyns eru að trufla lofts­lag á jörð­inni, á margan hátt hraðar en við héldum,“ sagði Obama meðal ann­ars í ræðu sinni og benti á að áhrif lofts­lags­breyt­inga væri helst að merkja á norð­ur­slóðum. Ræðu Obama má sjá í heild sinni hér að neðan.

https://youtu.be/FvIrlaXU28A

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár