Sigmundur Davíð rýfur þögnina til að tjá sig um frétt um eiginkonu hans

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hefur nú tjáð sig í fyrsta sinn opin­ber­lega frá því að greint var frá því að hann myndi hætta sem for­sæt­is­ráð­herra. Það gerir hann á Facebook-síðu sinni til þess að tjá sig um frétt Vísis frá því fyrr í dag um að Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir eig­in­kona hans hafi pantað sér geim­ferð.

Hann segir að það virð­ist orðið ljóst að „það séu engin tak­mörk fyrir því hversu langt menn eru til­búnir að ganga í súr­r­eal­ískum „frétta­flutn­ingi“ af mínum nán­ustu. Hvar endar eig­in­lega vit­leysan ef hún tak­markast ekki einu sinni við gufu­hvolf jarðar?“ skrifar Sig­mundur Davíð. „Í frétt á Vísi er full­yrt að eig­in­kona mín hafi pantað sér ferð út í geim! Ég þurfti að lesa þetta fimm sinnum og athuga jafn-oft hvort ég væri að lesa pistil á grín­síðu eða frétta­síðu. Eins og nærri má geta er fréttin bull frá upp­hafi til enda eins og reyndar ýmis­legt annað sem fram kemur á þeim miðli sem Vísir vitnar til.“

Sig­mundur Davíð segir að sumir blaða­menn og miðlar hafi flutt gagn­rýnar en sann­gjarnar og réttar fréttir af gangi mála að und­an­förnu. „Það hafa hins vegar ekki allir gert. Eftir að æsing­ur­inn varð sem mestur hafa rang­færsl­urnar, get­gát­urnar og útúr­snún­ing­arnir um málið verið svo miklir (á sumum stöðum) að það hefur ekki verið vinn­andi vegur að reyna að leið­rétta það.“

Hann segir að eig­in­kona hans og fjöl­skylda hafi mátt þola mikið síð­ustu vikur og það hafi vakið hjá honum óhug hvernig fólk sem aldrei hafi hitt „þessa ynd­is­legu konu er reiðu­búið að tjá sig um hana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár