Bankar ekki líklegir til gefa hagkerfinu viðspyrnu

Þrátt fyrir vaxta­lækk­anir hjá Seðla­banka Íslands að und­an­förnu þá er ólík­legt er að kjör í bönkum batni veru­lega á útlánum. Þungur rekstur og óhag­kvæmni er helsta fyr­ir­staðan.

Ekki er lík­legt að mikið betri tíð sé í vændum hjá heim­ilum og fyr­ir­tækjum í land­inu, þegar kemur að vaxta­kjörum, þrátt fyrir að stýri­vextir Seðla­banka Íslands hafi lækkað hratt und­an­farin miss­erin.

Ástæðan er þungur rekstur bank­anna og óhag­kvæmni í rekstri. Þrátt fyrir að bank­arnir hafi hag­rætt í rekstri und­an­farin ár, meðal ann­ars með fækkun starfs­fólks, þá virð­ist enn nokkuð í að bank­arnir verði með rekstr­ar­af­komu sem telst vera ásætt­an­leg í alþjóð­legum sam­an­burði.

Stífar eig­in­fjár­kröfur Fjár­mála­eft­ir­lits­ins (FME) eru meðal þátta sem hafa sett þrýst­ing á bank­anna um að hag­ræða enn frekar í rekstri og skerpa á áherslum sínum. Líklegt er að sú þróun haldi áfram.

Nýlegar úttektir FME á þeim bönkum sem metnir eru kerf­is­lægt mik­il­vægir fyrir Ísland, Arion banka, Íslands­banka og Lands­bank­anum, gefa til kynna að ekki sé verið að slaka neitt á eig­in­fjár­kröfum eða öðru reglu­verki sem á að tryggja öryggi kerf­is­ins, þvert á móti.

Við­mæl­endur Kjarnans, sem starfa á fjár­mála­mark­aði, ótt­ast að framundan geti verið tíma­bil þar sem erf­ið­lega gengur að koma hjólum atvinnu­lífs­ins af stað, þrátt fyrir vilja og tæki­færi. Ástæðan sé meðal ann­ars þungt og óhag­kvæmt banka­kerfi lands­ins.

Vextir lækka en hvað svo?

Meg­in­vextir eru nú 3,25 pró­sent en verð­bólga mælist 3 pró­sent. Í máli Ásgeirs Jónsson, seðla­banka­stjóra, í gær, þegar til­kynnt var um lækkun vaxta um 0,25 pró­sentur, kom fram að Seðla­bank­inn og stjórn­völd væru nú að róa í sömu átt, og það ætti að hjálpa til við að koma hjólum atvinnu­lífs­ins af stað.

Grunnkostnaður hár og arðsemi lág

Kostn­að­ar­hlut­fall, þ.e. hlut­fall rekstr­ar­kostn­aðar af rekstr­ar­tekjum, hefur verið nokkuð hátt hjá bönk­unum.

Mark­miðið hjá Arion banka, Íslands­banka og Lands­bank­anum - en ríkið á þá tvo síð­ar­nefndu - er að vera með kostn­að­ar­hlut­fallið á bil­inu 45 til 55 pró­sent, en reyndin hefur verið önnur hjá Arion banka og Íslands­banka sér­stak­lega. Í verstu upp­gjörum hefur hlut­fallið verið yfir 70 pró­sent hjá Arion banka og yfir 60 pró­sent hjá Íslands­banka.

Lands­bank­inn hefur verið með lægri kostn­að­ar­hlut­fall og einnig meiri arð­semi eig­in­fjár. Hann er stærsti banki lands­ins, en eigið fé hans var um 240 millj­arðar króna um mitt þetta ár. Til sam­an­burðar var eigið fé Arion banka 195 millj­arðar og eigið fé Íslands­banka 176 millj­arðar.

Arðsemi eigin fjár bank­anna hefur verið á bil­inu 2 til 12 pró­sent, sé horft yfir síð­ustu mán­uði og ár. Hjá Arion banka hefur þetta hlut­fall verið lægst, hjá Íslands­banka næst lægst - á bil­inu 5 til 8 pró­sent - og síðan hefur það verið hæst hjá Lands­bank­anum, en á öðrum árs­fjórð­ungi var það 9,9 pró­sent.

Til sam­an­burðar þá hefur Arion banki nú sett sér mark­mið um að reka bank­ann með 50 pró­sent kostn­að­ar­hlut­falli og 10 pró­sent arð­semi eigin fjár, og voru fjölda­upp­sagnir upp á sam­tals 112 starfs­menn - sé dótt­ur­fé­lagið Valitor tekið með reikn­ing­inn - hluti af þeirri stefnu bank­ans.

Allt önnur staða er nú í hag­kerf­inu heldur en síð­ustu ár, þegar fjár­fest­ing var mikil og hag­vöxtur á bil­inu 3 til 6 pró­sent á ári. Um þessa stöðu var meðal ann­ars fjallað í ítar­legri frétta­skýr­ingu á vef Kjarnans á föstu­dag­inn fyrir viku.

Spár gera ráð fyrir stöðnun á þessu ári, eða á bil­inu -0,2 pró­sent til 0,4 pró­sent hag­vexti. Á meðan svo er þá er ólík­legt að útlána­tæki­færum fjölgi mikið, enda útlána­þróun hefur í sögu­legu til­liti verið veru­lega tengd þróun lands­fram­leiðsl­unnar, eins og gefur að skilja.

Ríkar kröfur um eigið fé hjá bönk­unum, og einnig krafa um góða lausa­fjár­stöðu, gerir það að verkum að bank­arnir eiga erfitt verið að skila vaxta­lækk­unum til við­skipta­vina sinna. Til þess að svo verði, þurfa bank­arnir að öllum lík­indum að hag­ræða mun meira en þeir hafa nú þegar gert, enda má hag­kerfið ekki við því að vera með óskil­virkt eða óhag­kvæmt banka­kerfi.

Allt annar veruleiki

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eru hins vegar ekki í sömu stöðu og geta boðið mun betri vaxta­kjör en bank­arnir, enda ekki með sömu yfir­bygg­ingu og reglu­verk til hlið­sjónar, þó sumir þeirra séu farnir að setja bremsur á útlán sín til fast­eigna­kaupa, eins og greint var frá á vef Kjarnans í morgun.

Lægstu vextir líf­eyr­is­sjóða eru í boði hjá Almenna líf­eyr­is­sjóðnum en hann býður nú sjóð­fé­lögum sínum að taka verð­tryggð fast­eigna­lán á 1,64 pró­sent breyti­legum vöxtum. Vextir sem bank­arnir bjóða hafa á sama tíma verið á bil­inu 3,4 til 4 pró­sent. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár