17 milljónir úr skúffum ráðherra í fyrra

Að með­al­tali nam úthlutun á ráð­stöf­un­arfé þeirra ráð­herra sem það nýttu í fyrra rúm­lega 2,4 millj­ónum króna. Ráð­stöf­un­arfé, sem jafnan er kallað skúffufé, var ekki nýtt af fjórum ráð­herrum á síð­asta ári.

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur á ríkisráðsfundi með forseta Íslands
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur á rík­is­ráðs­fundi með for­seta Íslands Mynd: Bára Huld Beck

Á síð­asta ári nam heild­ar­út­hlutun á ráð­stöf­un­arfé ráð­herra 16.975.000 króna. Hæsta upp­hæðin kom úr skúffu Lilju Alfreðs­dóttur mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, alls 3,6 millj­ónir króna. Hún veitti líka stærsta ein­staka styrk­inn, tvær millj­ónir króna, sem runnu til Stjörnu­sam­bands­stöðv­ar­innar vegna verk­efn­is­ins Sótt­barna­lög. Af þeim ráð­herrum sem nýttu skúffufé í fyrra not­aði Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra minnst, alls 900 þús­und krónur.

Sá ráð­herra sem styrkti flest verk­efni með skúffufé var Sigurður Ingi Jóhanns­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra. Hann úthlut­aði alls tæpum 2,9 millj­ónum króna til 15 verk­efna. Fjórir ráð­herrar úthlut­uðu ekki af ráð­stöf­un­arfé sínu í fyrra.

Forsætisráðherra – 1.750.000

Á síð­asta ára hlutu sex verk­efni styrk frá for­sæt­is­ráð­herra. Styrkt­ar­upp­hæðir námu á bil­inu 100 til 600 þús­und krónum og hlaut Jafn­rétt­is­stofa hæsta styrk­inn. Styrk­veit­ingar for­sæt­is­ráð­herra árið 2020 er í nokkru sam­ræmi við umfang styrk­veit­inga árs­ins 2019 en þá hlutu sjö verk­efni styrk fyrir alls 1.780.000 krónur. Útlistun á úthlutun á ráð­stöf­un­arfé for­sæt­is­ráð­herra í fyrra má finna í með­fylgj­andi töflu.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra – 2.880.000

Líkt og áður segir var Sigurður Ingi Jóhanns­son sá ráð­herra sem veitti flestum verk­efnum styrk, alls 15 tals­ins. Upphæðir styrkj­anna nema á bil­inu 80 til 300 þús­und og fékk Brautin bind­ind­is­fé­lag öku­manna hæsta styrk­inn til þess að end­ur­nýja velti­bíl. Einn ein­stak­lingur er meðal styrk­þega, Ólafur Kristinn Guð­munds­son sem hlaut 250 þús­und króna styrk til þess að fara á heims­ráð­stefnu um umferð­ar­ör­yggi.

Dómsmálaráðherra – 900.000

Af þeim ráð­herrum sem nýttu skúffufé sitt í fyrra fór Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir með sitt ráð­stöf­un­arfé af mestri spar­semi. Hún veitti fjórum verk­efnum styrk fyrir sam­tals 900 þús­und krónur. Öll eru þessi verk­efni á mál­efna­sviði ráð­herr­ans, tvö þeirra tengj­ast fang­els­is­málum, eitt útlend­inga­málum og einn styrk­þegi er Sig­ur­hæðir sem er þjón­usta við þolendur kyn­bund­ins ofbeldis á Suð­ur­landi.

Heil­brigð­is­ráð­herra – 2.115.000

Alls fengu 14 verk­efni styrki frá Svandísi Svav­ars­dóttur. Hæsta styrkt­ar­upp­hæð heil­brigð­is­ráð­herra var 300 þús­und krónur og fengu þrjú verk­efni styrk af þeirri fjár­hæð; Samtök áhuga­fólks um spilafíkn, Brák­ar­hlíð hjúkr­un­ar­heim­ili og Kiwanisklúbburinn Katla. Meðal þeirra verk­efna sem ráð­herr­ann styrkti á árinu 2020 var opnu­aug­lýs­ing í Morg­un­blað­inu frá Félagi íslenskra fíkni­efna­lög­reglu­manna (FÍFL).

FÍFL sætti gagn­rýni fyrr á þessu ári fyrir opnu­aug­lýs­ingu sína í Morg­un­blað­inu en félagið not­aði meðal ann­ars nafn Rauða Krossins án sam­þykkis í aug­lýs­ing­unni. Þá sagði Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands (BÍ), að FÍFL hefði blekkt BÍ til þátt­töku í aug­lýs­ing­unni. FÍFL hefur um nokk­urra ára skeið birt opnu­aug­lýs­ingar í Morg­un­blað­inu þar sem mælt er gegn neyslu fíkni­efna. Aug­lýs­ingin er nátengd frum­varpi heil­brigð­is­ráð­herra um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta sem fellt var á nýaf­stöðnu þingi. Í nýj­ustu aug­lýs­ingu félags­ins er þó hvorki minnst á ráð­herr­ann né ráðu­neytið.

Mennta- og menningarmálaráðherra – 3.600.000

Sá ráð­herra sem veitti stærsta ein­staka styrk­inn og jafn­framt mestu í heild á síð­asta ári var Lilja Alfreðs­dóttir en hún veitti sjö verk­efnum styrk fyrir sam­tals 3,6 millj­ónir króna. Stjörnu­sam­bands­stöðin hlaut tveggja millj­óna króna styrk vegna Sótt­barna­laga. Einn ein­stak­lingur hlaut styrk frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, Sól­mundur Ari Björns­son fékk 250 þús­und krónur vegna Tangóhá­tíðar í sept­em­ber.

Félags og barnamálaráðherra – 3.030.000

Ásmundur Einar Daðason næst­mestu fjár­magni upp úr sinni skúffu. Alls fengu tólf verk­efni styrk fyrir sam­tals rúm­lega þrjár millj­ónir króna. Þau verk­efni sem fengu styrk frá félags­mála­ráð­herra fengu á bil­inu 150 til 500 þús­und krónur. Hæstan styrk hlaut líkn­ar­fé­lagið Alanó klúbb­ur­inn vegna end­ur­bóta á hús­næði félags­ins.

Umhverfisráðherra – 2.700.000

Alls voru 13 verk­efni styrkt af Guðmundi Inga Guð­brands­syni fyrir sam­tals 2,7 millj­ónir króna. Enginn ráð­herra styrkti eins marga ein­stak­linga með ráð­stöf­un­arfé sínu en meðal styrk­þega eru fimm ein­stak­lingar. Í þeirra hópi er Hjör­leifur Gutt­orms­son, fyrr­ver­andi iðn­að­ar­ráð­herra, en hann hlaut 400 þús­und króna styrk vegna forn­leifa­skrán­ingar á Gerp­is­svæð­inu. Hjör­leifur hefur sinnt minja­vernd ötul­lega á síð­ustu árum og árið 2019 hlaut hann meðal ann­ars minja­vernd­ar­við­ur­kenn­ingu á árs­fundi Minja­stofn­unar Íslands fyrir starf sitt í þágu minja­verndar.

Þeir ein­stak­lingar sem einnig hlutu styrk frá umhverf­is­ráð­herra voru Garðar Finnsson sem hlaut 250 þús­und króna styrk vegna verk­efn­is­ins fjöl­nota loft­tæm­an­legir heyrúllu­pokar. Veiga Grét­ars­dóttir hlaut 100 þús­und króna styrk vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Á móti straumnum. Baldur Helgi Snorra­son hlaut 100 þús­und króna styrk vegna verk­efnis um þróun nýrra flokk­un­ar­tunna sem ber heitið Borg­ar­tunnan og Hugi Hólm Guð­björns­son hlaut 200 þús­und króna styrk vegna fugla­skoð­un­ar­síð­unnar Spottaði fugl.

Annað fugla­tengt verk­efni hlaut hæsta styrk umhverf­is­ráð­herra. Fugla­vernd fékk hálfrar millj­ónar króna styrk vegna verk­efn­is­ins Sam­keppni um fugl árs­ins.

Aðrir ráðherrar – 0

Fjórir ráð­herrar úthlut­uðu ekki ráð­stöf­un­arfé á árinu 2020. Í svari frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu kom fram að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hafi ekki nýtt ráð­stöf­un­arfé sitt á árinu 2020. Það sama er uppi á ten­ingnum hjá ráð­herrum í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, þeim Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfa­dóttur ferða­mála- iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra og Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra.

„Í fjár­lögum er liður fyrir ráð­stöf­un­arfé ráð­herra að upp­hæð 3,5 m.kr, en þessi fjár­heim­ild hefur ekki verið nýtt af núver­andi ráð­herra og fjár­heim­ildin er ónýtt árið 2020. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son ákvað á fyrstu dögum sínum í emb­ætti utan­rík­is­ráð­herra að hann myndi ekki ganga á ráð­stöf­un­arfé ráð­herra. Hann hefur því ekki veitt neina styrki af ráð­stöf­un­arfé ráð­herra frá því hann tók við sem utan­rík­is­ráð­herra í árs­byrjun 2017,“ segir í skrif­legu svari frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu við fyr­ir­spurn Kjarnans um úthlutun á ráð­stöf­un­arfé Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár