Þeir sem búa lengi erlendis missa kosningarétt og Kosningastofnun verður til

Umfangs­miklar breyt­ingar eru í far­vatn­inu á kosn­inga­lögum hér­lendis. Nýjar stofn­anir gætu orðið til, kosn­inga­at­höfnin sjálf gæti breyst, ákveðnum kosn­ingum gæti verið flýtt og þeir sem hafa búið lengi sam­fleytt í útlöndum gætu misst kosn­inga­rétt sinn.

Íslend­ingar sem hafa búið sam­fellt í 16 ára eða lengur erlendis munu ekki lengur fá að taka þatt í kosn­ingum á Íslandi, listar fram­boða munu þurfa að liggja fyrir 29 dögum fyrir kjör­dag í stað átta vikna og þeir sem þurfa aðstoð við að kjósa munu hafa val um hver hjálpar þeim.

Þá verður kosn­inga­at­höfn­inni sjálfri breytt, sett verður á fót ný sjálf­stæð stjórn­sýslu­stofnun með fimm manna stjórn sem mun kall­ast kosn­inga­stofnun og ný áfrýj­un­ar­nefnd sem hægt verður að áfrýja nið­ur­stöðum hennar til.

Þetta er á meðal þeirra til­lagna sem starfs­hópur um end­ur­skoðun kosn­inga­laga hefur unnið síð­ast­liðin ár. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá skrif­stofu Alþingis eru hug­myndir starfs­hóps­ins enn á umræðu­stigi og til­lög­urnar því enn í mótun. Starfs­hóp­ur­inn mun skila af sér end­an­legum til­lögum, í formi frum­varps, til Stein­gríms J. Sig­fús­sonar, for­seta Alþingis, á full­veld­is­dag­inn 1. des­em­ber næst­kom­andi.

[adspot]Í starfs­hópnum sitja Bryndís Hlöðvers­dóttir, lög­fræð­ingur og rík­is­sátta­semj­ari, sem jafn­framt er for­maður hóps­ins, Þórir Har­alds­son, lög­fræð­ingur, til­nefndur af lands­kjör­stjórn, Þor­valdur Heiðar Þor­steins­son, lög­fræð­ingur, til­nefndur af dóms­mála­ráðu­neyti, Magnús Karel Hann­es­son, til­nefndur af Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga, og Ástríður Jóhann­es­dóttir, lög­fræð­ingur og sviðs­stjóri stjórn­sýslu­sviðs Þjóð­skrár Íslands, til­nefnd af Þjóðskrá Íslands.

Tillögur fyrri vinnuhóps einnig lagðar til

Í októ­ber í fyrra skip­aði for­seti Alþingis starfs­hóp um end­ur­skoðun kosn­inga­laga. Hann átti að fara yfir til­lögur fyrri hóps um málið, kanna kosti þess að setja heild­ar­lög­gjöf um kosn­ingar og skoða, eftir því sem tími og aðstæður leyfðu, kosti raf­rænnar kjör­skrár. Hópurinn á að skila til­lögum í formi frum­varps í síð­asta lagi 1. des­em­ber 2019.

Í byrjun ágúst síð­ast­lið­inn skil­aði hóp­ur­inn minn­is­blaði til for­seta Alþingis þar sem farið var yfir stöð­una á vinnu hans. Kjarninn kall­aði eftir því að fá minn­is­blaðið afhent.

Í því er farið yfir helstu til­lögur starfs­hóps­ins. Þar kemur fram að hann hafi ákveðið að leggja til­lögur fyrri vinnu­hóps um „end­ur­skoðun alþing­is­kosn­inga­laga frá 2016 til grund­vallar vinnu sinni. Einnig hefur starfs­hóp­ur­inn farið yfir þær athuga­semdir ÖSE, kjör­bréfa­nefndar og lands­kjör­stjórnar um mein­bugi á lög­gjöf eða fram­kvæmd kosn­inga og tekið til­lit til þeirra við gerð til­lagna sinna. Enn fremur hefur verið ákveðið að stefna beri að einni kosn­inga­lög­gjöf í stað fjög­urra. Í smíðum er því frum­varp til heild­ar­laga um allar kosn­ingar sem taka til kosn­inga til Alþingis, sveit­ar­stjórna, for­seta­kjörs og fram­kvæmd þjóð­ar­at­kvæða­greiðslna.“

Ný kosningastofnun verður til

Önnur helstu atriði sem eiga að vera í nýrri kosn­inga­lög­gjöf eru til að mynda upp­setn­ing á mið­lægri kosn­inga­stofnun að nor­rænni fyr­ir­mynd. Tillögur vinnu­hóps­ins gera ráð fyrir sjálf­stæðri stjórn­sýslu­stofnun með fimm manna stjórn þar sem þrír stjórn­ar­menn yrðu kosnir af Alþingi, einn yrði til­nefndur af Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga og einn til­nefndur af sam­starfs­nefnd háskóla­stigs­ins. Þessi breyt­ing mun kalla á end­ur­skoðun á hlut­verki lands­kjör­stjórnar.

[adspot]Þá leggur hóp­ur­inn til að sett verði á lagg­irnar úrskurð­ar­nefnd kosn­inga­mála. Þangað yrði hægt að skjóta ákvörð­unum kosn­inga­stofn­unar, yfir­kjör­stjórnar og Þjóð­skrár um und­ir­bún­ing og fram­kvæmd kosn­inga.

Hópurinn leggur einnig til breyt­ingar á atkvæða­greiðslu utan kjör­fundar. Í til­lög­unni felst að slíkt atkvæða­greiðsla hefj­ist 29 dögum fyrir kjör­dag í stað átta vikna eins og nú er, og á þeim tíma þurfi að liggja fyrir hvaða listar eru í fram­boði.

Þá stendur til að breyta kosn­inga­at­höfn­inni sjálfri. Í til­lögum starfs­hóps­ins kemur fram að lagt sé til að fyr­ir­komu­lagið verði þannig að „ kjós­andi fái kjör­seðil afhentan við komu í kjör­deild, hann kýs í ein­rúmi í kjör­klefa, gerir grein fyrir sér hjá kjör­stjórn og eigi hann rétt á að greiða atkvæði sam­kvæmt kjör­skrá stimplar kjör­stjórn á bak­hlið kjör­seð­ils. Loks leggur kjós­andi kjör­seðil í atkvæða­kass­ann. Með þess­ari breyt­ingu er ekki þörf á sér­stöku bók­haldi eða upp­gjöri um dreif­ingu, afhend­ingu og notkun kjör­seðla.“

Missa kosningarétt eftir 16 ár í útlöndum

Kosn­inga­rétti Íslend­inga sem búsettir eru erlendis verður breytt með þeim hætti að eftir 16 ára sam­fellda búsetu erlendis missi þeir kosn­inga­rétt til Alþingis, for­seta­kjörs og til þátt­töku í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslum. Með breyt­ing­unni fellur einnig brott ákvæði kosn­inga­laga um umsókn­ar­ferli þeirra sem búsettir eru erlendis til að kom­ast á kjör­skrá hjá Þjóðskrá Íslands.

Nýtt fyr­ir­komu­lag fyrir þá sem þurfa á aðstoð við að kjósa verður tekið upp, verði til­lögur hóps­ins að lögum. Í því felst að kjós­endur geti haft val um að njóta aðstoðar eigin aðstoð­ar­manns eða kjör­stjórnar.

[adspot]Að lokum verða nokkur ákvæði kosn­inga­laga færð í aðra laga­bálka og heim­ild til reglu­setn­ingar aukin. Til­gang­ur­inn er að ein­falda lög­gjöf sem fjallar ein­göngu um fram­kvæmd kosn­inga.

Á fundum sem haldnir hafa verið eftir að minn­is­blað­inu var skilað inn hefur líka verið rætt um að flýta for­seta­kosn­ing­unum sm fyr­ir­hug­aðar eru næsta sumar og halda þær að vori. Sömu­leiðis hefur verið rætt um að færa sveit­ar­stjórna­kosn­ingar fram í apríl í stað þess að halda þær í maí, eins og nú tíðkast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár