Tvíburasysturnar Margrét Ósk og Alexía Erla Hallgrímsdætur hafa alltaf haft mikinn áhuga á að skapa. Það var ekki fyrr enn í byrjun árs 2020 að þær gerðu barnabók saman, eftir að hafa talað um það í smá tíma og í rauninni byrjað að skrifa nokkrar bækur saman.
Sagan um Ás og nýja vin hans varð til á stuttum tíma, þar sem vinátta þeirra systra er þeim mjög mikilvægur og því er markmið bókarinnar mjög hnitmiðað. Margrét er nýútskrifuð úr grafískri hönnun og sá um útlitið, Alexía er penninn á bak við bókina.
Segið okkur frá hugmyndinni að verkefninu?
„Við systur höfum alltaf talað um hvað vinir okkar skipta okkur miklu máli. Út frá því byrjuðum við að senda á hvor aðra jákvæðar myndir og texta og áður enn við vissum af þá vorum við byrjaðar að skrifa barnabók saman, sem gekk vonum framar!
[adspot]það er svo auðvelt að gleyma sér í hversdagsleikanum og að missa af öllu áhugaverða fólkinu í kringum sig. Við systur reynum að halda augunum opnum fyrir fallegu litunum og fólkinu í kringum okkar hvern einasta dag og það hefur gefið okkur svo mikið af dýrmætu fólki sem verður alltaf partur af okkar lífi. Við vonum svo innilega að börn sem fá að lesa þessa bók fái að sjá að fegurðina og vináttuna er að finna alls staðar, það skiptir engu máli hvaðan við komum, eða hvað við erum.. vináttan er einstök. Það skiptir okkur einnig miklu máli að börn alist upp við það að við erum öll jöfn og það er svo auðvelt að njóta lífsins ef maður er með rétta viðhorfið.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir