Fimm hugmyndir um gjaldtöku af ferðamönnum

Ýmislegt hefur verið rætt þegar kemur að því hvernig eigi að láta ferða­menn greiða fyrir dvöl sína hér á landi. Færra hefur verið gert.

Ýmsar hug­myndir hafa verið uppi und­an­farin ár um það með hvaða hætti eigi að haga gjald­töku af ferða­mönnum sem hingað til lands koma, og hvort eigi að gera nokkuð sér­tækt yfir höfuð.

[links]Kjarninn tók saman nokkrar hug­myndir stjórn­mála­manna und­an­far­inna ára, en aðeins ein þeirra er komin til fram­kvæmda þótt talað hafi verið um það í mörg ár að gjald­taka blasi við.

Þær leiðir sem kom­ist hafa til umræðu á opin­berum vett­vangi eru til dæmis vega­tollar, gistin­átta­gjald, nátt­úrupassi, komu- og brott­far­ar­gjöld og bíla­stæða­gjöld. Hér að neðan er tæpt á stöðu þess­ara mála og þeim hug­myndum sem búa að baki.

  1. Bíla­stæða­gjöld. Nú er í vinnslu frum­varp sem á að gefa rík­inu og sveit­ar­fé­lögum auknar heim­ildir til þess að inn­heimta bíla­stæða­gjöld í dreif­býli. Sveit­ar­fé­lög munu þannig geta lagt á bíla­stæða­gjöld á vin­sælum ferða­manna­stöðum og munu fá óskertar tekjur af þeim, en þeim yrði skylt að verja tekj­unum í upp­bygg­ingu á þjón­ustu sem teng­ist við­kom­andi stað. Með þessum hætti gætu sveit­ar­fé­lög inn­heimt tals­verðar tekjur. 
  2. Vega­tollar. Jón Gunn­ars­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra hefur ljáð máls á þeim mögu­leika að taka upp vega­tolla á helstu sam­göngu­æðum inn og út úr Reykja­vík og á völdum leiðum utan Reykja­víkur. Jón hefur meðal ann­ars sagt að fyrst og fremst sé horft til þess að ferða­menn sem koma til Íslands borgi fyrir aðgang að vega­kerf­inu, enda hefur gríð­ar­legur fjöldi þeirra haft sitt að segja um versn­andi ástand vega. Á móti myndu þeir sem nota veg­ina mjög mikið myndu borga mjög lága upp­hæð í hvert skipti. 
    [adspot]
  3. Komu- eða brott­far­ar­gjöld. Komu­gjöld eða brott­far­ar­gjöld væri hægt að leggja á alla sem til lands­ins koma. Mörg nágranna­lönd Íslands hafa ýmist skoðað að fara þá leið eða gert það. Þannig yrði gjald lagt á flug­miða eða aðra far­miða. Icelandair hefur lýst yfir óánægju með þessar hug­myndir og sagt þessi gjöld hafa veru­leg áhrif á eft­ir­spurn. Samtök ferða­þjón­ust­unnar hafa hins vegar verið jákvæð gagn­vart því að koma þessum gjöldum á, að minnsta kosti yfir sum­ar­tím­ann. 
  4. Nátt­úrupassi. Ein fræg­asta til­raunin til að ná í tekjur af auknum straumi ferða­manna var nátt­úrupass­inn. Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra í síð­ustu rík­is­stjórn, lagði fram frum­varp um að ein­stak­lingar yfir 18 ára aldri þyrfti að kaupa sér nátt­úrupassa til að heim­sækja ferða­manna­staði á Íslandi. Passinn átti að kosta 1.500 krónur og gilda í þrjú ár. Skemmst er frá því að segja að hug­myndin átti ekki upp á pall­borðið víða, og var mikið gagn­rýnd af aðilum í ferða­þjón­ustu og stjórn­mála­mönnum úr öllum flokkum.
  5. Hærra gistin­átta­gjald. Eina málið sem búið er að hrinda í fram­kvæmd, en frá og með fyrsta sept­em­ber næst­kom­andi verður gistin­átta­skattur 300 krónur á hverja selda nótt, í stað 100 króna nú. Sveit­ar­fé­lög hafa óskað eftir því að meiri­hlut­inn af þessu gjaldi fari til þess sveit­ar­fé­lags sem gist­ingin er í, en það hefur ekki hlotið hljóm­grunn hjá stjórn­völdum. Eftir að lög um opin­ber fjár­mál voru sam­þykkt er stefnt að því að allar skatt­tekjur af þessu tagi fari beint í rík­is­sjóð og engar tekjur séu mark­aðar ákveðnum verk­efnum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár