Fleiri ferðamenn á næstu þremur árum en komu á 59 ára tímabili

Ferða­menn á Íslandi árið 2019 verða milljón fleiri en þeir voru í ár. Mikil þörf er á fjár­fest­ingu í innviðum og á sátt um gjald­töku. Og fjórar af hverjum tíu gistin­óttum hér­lendis eru óskráðar.

í hvaða átt ætlum við með ferðaþjónustuna okkar? Á Ísland að verða Djöflaeyja eða Draumaland ferðamannsins? Þessu veltir Greiningardeild Arion banka fyrir sér í nýrri skýrslu.
í hvaða átt ætlum við með ferða­þjón­ust­una okkar? Á Ísland að verða Djöfla­eyja eða Drauma­land ferða­manns­ins? Þessu veltir Grein­ing­ar­deild Arion banka fyrir sér í nýrri skýrslu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Það munu fleiri ferða­menn koma til Íslands á níu ára tíma­bili - frá byrjun árs 2008 og til loka þess sem nú stendur yfir - en gerðu það frá byrjun árs 1949 og út árið 2007. Auk þess er búist við því að jafn­margir ferða­menn komi til Íslands á næstu þremur árum - frá næstu ára­mótum og til loka 2019 - og gerðu það á síð­ustu níu árum. Í ár munu ferða­menn verða um 1,7 millj­ónir tals­ins, á því næsta um 2,2 millj­ónir, um 2,5 millj­ónir árið 2018 og 2,75 millj­ónir árið 2019. Þetta kemur fram í árlegri ferða­þjón­ustu­út­tekt Grein­ing­ar­deildar Arion banka sem birt var í dag.

[links]Því má búast við að ferða­menn­irnir sem heim­sæki landið okkar verði rúm­lega einni milljón fleiri árið 2019 en þeir voru í ár. Fyrir þá sem efast um þessa spá má benda á að fyrri spár Grein­ing­ar­deildar Arion banka um fjölgun ferða­manna hafa nær alltaf verið van­á­ætl­aðar. Haustið 2014 spáði hún til að mynda að ferða­menn hér­lendis yrðu 1,2 millj­ónir í ár. Þeir verða, að öllum lík­indum, hálfri milljón fleiri.

En sem komið er hefur Íslandi gengið ágæt­lega að takast á við þessa miklu fjölgun. Þar skiptir eðli­lega máli að aukin ferða­þjón­usta hefur leyst flest efna­hags­leg vanda­mál sem þjóðin glímdi við eftir hrunið. Atvinnu­leysi er horfið, hag­vöxtur er mik­ill, fjár­fest­ing hefur stór­auk­ist og er komin nær hlut­falls­legu með­al­tali síð­ustu ára­tuga og óskuld­settur gjald­eyr­is­forði þjóð­ar­innar hefur stór­auk­ist. Í ár er búist við því að ferða­þjón­usta skili svip­uðu í útflutn­ings­tekjur og ál og sjáv­ar­af­urðir sam­an­lagt. Hún mun lík­ast til verða um tíu pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu. Til sam­an­burðar var hún 4,5 pró­sent af henni árið 2010.

Þótt ferða­menn­irnir, og flestir Íslend­ingar, séu enn sem komið er ánægðir með þessa þróun þá er ljóst að margar áskor­anir eru fram undan til að skera úr hvort Ísland verði „Drauma­land“ eða „Djöfla­eyja“ ferða­manna, eins og Grein­ing­ar­deild Arion banka stillir málum upp. Mjög brýnt er að ráð­ast í víð­tækar fjár­fest­ingar í innviðum og nauð­syn­legt að ná sam­stöðu um gjald­töku. Sem allra fyrst.

Fjölmargir áhættuþættir

Það er ekki sjálf­sagt eða nátt­úru­legt að ferða­mönnum haldi bara áfram að fjölga. Nokkrir skýrir áhættu­þættir eru til staðar sem geta haft skyndi­leg áhrif á fjölda þeirra. Sá aug­ljós­asti er sam­dráttur í flug­fram­boði. Í skýrslu Arion banka er bent á að árið 2005 hafi tvö flug­fé­lög flogið reglu­lega til og frá Íslandi, Icelandair og hið sál­uga Iceland Express. Fimm árum síðar voru þau tvo enn alls­ráð­andi á mark­aðnum og SAS hafði bæst í hóp­inn. Í ár fljúga hins vegar fjórtán flug­fé­lög reglu­lega til og frá Íslandi. Sú gríð­ar­lega aukn­ing á fram­boði er megin ástæða þess að ferða­mönnum hefur fjölgað hér­lendis jafn mikið og raun ber vitni.

Í skýrsl­unni er bent á að nátt­úru­ham­farir - sem Íslend­ingar þekkja vel - geti haft skyndi­leg nei­kvæð áhrif á ferða­þjón­ustu og er bent á borg­ina Christcurch á Nýja-Sjálandi, sem er með svip­aðan íbúa­fjölda og Ísland, sem dæmi. Hún var mjög stór ferða­manna­borð en nokkrir stórir jarð­skjálftar riðu yfir hana á árunum 2010 til 2012. Síðan þá hefur ferða­mönnum til borg­ar­innar fækkað mikið.

Þar er þó einnig tekið saman að flest lönd sem hafa upp­lifað mik­inn og skyndi­legan sam­drátt í tekjum af ferða­mönnum eru lönd sem eru stríðs­hrjáð, glíma við versn­andi örygg­is­á­stand og óstöð­ug­leika. Í því sam­hengi má nefna lönd eins og Sýrland, Úkraínu, Túnis, Egypta­land og Venes­ú­ela sem dæmi. Ísland glímir auð­vitað ekki við neinn slíkan vanda.

Þá er bent á að það sé þol­mörk á ágangi á nátt­úru, að heima­menn hafi sín þol­mörk gagn­vart fjölda ferða­manna og auð­vitað þol­mörk inn­viða.

Ferða­manna­straum­ur­inn skapar nefni­lega veru­lega aukið álag á vega­kerfið og á ýmsa þjón­ustu á borð við lög­gæslu og heil­brigð­is­kerfið. Þótt fjár­fest­ing hér­lendis hafi náð lang­tíma­með­al­tali sínu aftur eftir að hafa verið undir því frá árinu 2008 þá er það fyrst og síð­ast vegna atvinnu­vega­fjár­fest­inga. Fjár­fest­ing hins opin­bera og fjár­fest­ing í íbúð­ar­hús­næði er enn langt frá sínu lang­tíma­með­al­tali. Sem dæmi má nefna að árið 2015 var fjár­fest­ing í vegum og brúm helm­ingi minni en hún var árið 1995.

Grein­ing­ar­deild Arion banka áætlar að upp­söfnuð þörf á fjár­fest­ingum í vega­kerf­inu, miðað við fjölgun bif­reiða sem nota það, sé yfir 23 millj­arðar króna á tíma­bil­inu 2011-2015.

Grein­inga­deildin bendir einnig á að sam­hliða aukn­ingu ferða­manna sem koma til Íslands sé að eiga sér sam­dráttur í inn­an­lands­flugi. Hún veltir upp þeirri spurn­ingu hvort ekki ætti að efla inn­an­lands­flug frá Kefla­vík­ur­flug­velli til að dreifa ferða­mönnum betur um landið.

Styrking krónu ekki orðin vandamál

Þeir þættir sem geta einnig haft áhrif á fjölda þeirra ferða­manna sem koma hingað til lands eru til að mynda breyttar efna­hags­að­stæður í heima­löndum þeirra. Þannig er til að mynda Brexit - útganga Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu - áhyggju­efni ef sú aðgerð leiðir til sam­dráttar í Bret­landi líkt og spáð er. Ástæða er sú að 19 pró­sent ferða­manna sem koma til Íslands koma frá Bret­landi og hlutur lands­ins í íslenskum þjón­ustu­út­flutn­ingi í fyrra var ell­efu pró­sent.

Aukið inn­flæði gjald­eyris vegna ferða­manna hefur styrkt íslensku krón­una veru­lega að und­an­förnum og hafa margir lýst áhyggjum af því að hún sé að verða of sterk. Aðstæður útflutn­ings­fyr­ir­tækja muni versna of mikið vegna þessa auk þess sem Ísland verði ein­fald­lega of dýrt fyrir ferða­menn.

Grein­ing­ar­deildin segir hins vegar að engin merki séu sjá­an­leg, að minnsta kost enn sem komið er, um að sterk króna hafi áhrif á komur og útgjöld ferða­manna. Aðrir þættir virð­ast hafa mun meiri áhrif á fjölda þeirra en gjald­mið­il­inn, líkt og greint var frá hér að ofan.

42 prósent gistinótta óskráðar

Það er oft haft á orði í almennri umræðu að hér sé hættu­leg áhersla lögð á allt of hraða upp­bygg­ingu hót­ela. Varla megi sjást gras­bali í námunda við mið­borg­ina þá sé byrjað að reisa þar nýtt hótel.

Samkvæmt skýrslu Arion banka fer því þó fjarri að um offjár­fest­ingu sé að ræða. Þvert á móti séu lítil merki um útlána­bólu í ferða­þjón­ustu og vöxtur skulda í geir­anum er lít­ill miðað við vöxt umsvifa hans. Eigið fé og rekstr­ar­hagn­aður ferða­þjón­ustu hefur enda vaxið mjög hratt á síð­ustu árum og því nýt­ist það til fjár­fest­inga. Enn er þó mikil þörf á að fjölga hót­el­her­bergjum og áætl­anir eru uppi um að byggja um 2.500 ný slík á allra næstu árum. Þau duga varla til að mæta ætl­aðri fjölgun ferða­manna.

Í skýrsl­unni er bent á að lang­flest hót­el­her­bergi - og besta nýt­ing þeirra - sé á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þar kemur einnig fram að með­al­verð á gist­ingu í Reykja­vík hefur hækkað um tæp 40 pró­sent á þremur árum. Þrátt fyrir það er með­al­verð á gist­ingu enn í með­al­lagi miðað við evr­ópskar stór­borgir.

Athygli vekur að 42 pró­sent gistinótta voru óskráðar á árinu 2015. Þar er fyrst og síð­ast um að ræða gist­ingu í deili­hag­kerf­inu og þá sér­stak­lega í gegnum Airbnb. Fjöldi þeirra gisti­rýma sem eru í boði í gegnum þá þjón­ustu hefur líka vaxið mjög hratt á und­an­förnum árum. Í júlí 2016 voru 3.079 slík skráð, sem er 726 fleiri en voru skráð ell­efu mán­uðum áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár