Neyslugleði rússneskra ferðamanna mun minni en áður

Fyrir níu árum síðan eyddi hver rúss­neskur ferða­maður um helm­ingi meiri pen­ing en ferða­maður frá öðrum þjóð­ernum. Á síð­ustu árum hefur hins vegar dregið hratt úr neyslu þeirra og eyða þeir nú minna en aðrir hér­lendis.

Ferða­menn frá Rúss­landi, sem voru áður lík­legir til að verja miklum fjár­munum hér­lendis, hafa á síð­ustu árum dregið úr neyslu sinni, ef miðað er við aðra ferða­menn. Neysla hvers rúss­nesks ferða­manns var að með­al­tali 13 pró­sentum minna en með­al­neysla ferða­manna frá öðrum þjóð­ernum í fyrra. Þetta kemur fram þegar tölur frá Rann­sókna­setri versl­un­ar­innar eru bornar saman við far­þega­tölur frá Ferða­mála­stofu.

Samkvæmt töl­unum hafa Rússar verið lít­ill hluti af ferða­mönnum hér­lendis, en þeir hafa verið innan við eitt pró­sent af heild­ar­fjöld­anum á hverju ári síð­ustu níu árin. Aftur á móti voru þeir neysluglað­ari en aðrir framan af, en árið 2013 varði hver rúss­neskur ferða­maður að með­al­tali 180 þús­undum króna hér á landi, á meðan aðrir ferða­menn vörðu að með­al­tali um 116 þús­undum króna. [adspot]

Á síð­ustu árunum fyrir heims­far­ald­ur­inn fór svo ferða­mönnum frá Rúss­landi að fjölga, en þeir voru mest rúm­lega 16 þús­und tals­ins árið 2019. Samhliða því hefur neysla á hvern ferða­mann hins vegar dreg­ist saman, miðað við tölur um korta­veltu þeirra, en fyrir þremur árum síðan mátti búast við að hver rúss­neskur ferða­maður eyddi að með­al­tali 140 þús­undum króna hér­lendis. Þróunina má sjá á mynd hér að neðan.

Á síð­ustu tveimur árum hefur neysla hvers ferða­manns svo auk­ist tölu­vert, en í fyrra mátti búast við að hver þeirra eyddi um 188 þús­undum króna á land­inu. Neysla rúss­neskra ferða­manna í fyrra var hins vegar aðeins um 162 þús­und krónur, líkt og myndin að ofan sýnir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár