Samtök atvinnulífsins vilja aðgerðir til að koma mæðrum fyrr út á vinnumarkað eftir fæðingu

Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri SA, leggur til að börnum verði tryggt leik­skóla­pláss við níu mán­aða aldur. Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna, hefur sömu­leiðis talað gegn leng­ingu fæð­ing­ar­or­lofs. Sál­greinir varar við því að mik­il­vægar ákvarð­anir sem varða heill barna séu teknar á for­sendum ann­arra.

Halldór Benjamín Þorbergsson
Halldór Benjamín Þor­bergs­son Fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins vill að börn fái pláss á leik­skóla við níu mán­aða aldur. Mynd: sa.is

Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, leggur til þess að börnum sé tryggt pláss á leik­skóla frá níu mán­aða aldri í þeim til­gangi að tryggja jafna stöðu kynj­anna á vinnu­mark­aði. „Með því að auka dag­vist­un­ar­þjón­ustu frá því að fæð­ing­ar­or­lofi lýkur og þar til leik­skóla­vist hefst má jafna stöðu kynj­anna á vinnu­mark­aði. Einnig yrði þetta til að draga úr launa­mun kynj­anna, auka hlut kvenna í stjórn­un­ar­stöðum og gera þeim kleift að sækja fram á fleiri sviðum en nú er,“ skrifar Halldór í grein sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í dag. 

Samtök atvinnu­lífs­ins hafa einnig lagt til að grunn­skóla­ganga hefj­ist við fimm ára aldur, en það muni sam­hliða skapa svig­rúm til lækk­unar á dag­vist­un­ar­aldri og tryggja öllum börnum við­eig­andi dag­vistun frá því fæð­ing­ar­or­lofi for­eldra lýkur þar til leik­skóla­vist barns­ins hefst. „Til að brúa bilið sem nú er til staðar neyð­ast for­eldrar oft til að taka launa­laust leyfi frá störfum. Reynslan sýnir að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár