Engin starfsemi á Þingvöllum án leyfis

Drög að frum­varpi frá umhverf­is­ráð­herra gera ráð fyrir því að engin atvinnu­tengd starf­semi megi fara fram á Þing­völlum án samn­ings við Þing­valla­nefnd. Nefndin mun einnig þurfa að gefa leyfi fyrir öllum við­burðum, og fær skýrar heim­ildir til gjald­töku.

Þing­valla­nefnd eða þjóð­garðs­vörður á Þing­völlum munu þurfa að gefa leyfi fyrir öllum skipu­lögðum við­burðum og verk­efnum innan þjóð­garðs­ins, sam­kvæmt frum­varpi Bjartar Ólafs­dóttur umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Drög að frum­varp­inu voru birt á vef­síðu ráðu­neyt­is­ins fyrir skömmu.

Verði frum­varpið að lögum verður einnig óheim­ilt að reka atvinnu­tengda starf­semi í þjóð­garð­inum án samn­ings við Þing­valla­nefnd.

Þá skýra lögin heim­ildir til gjald­töku innan þjóð­garðs­ins. Samkvæmt frum­varp­inu má ákveða að taka gesta­gjöld innan garðs­ins fyrir veitta þjón­ustu og fyrir aðgang að svæð­inu „til að mæta kostn­aði við þjón­ustu, upp­bygg­ingu og við­haldi inn­viða, rekstri og eft­ir­lit með dval­ar­gestum.“ Gjöldin munu renna til þjóð­garðs­ins. Þá verður líka leyfi­legt að inn­heimta gjöld vegna leyf­is­veit­inga og samn­inga.

„Fjöldi gesta sem leggur leið sína í þjóð­garð­inn á Þing­völlum hefur marg­fald­ast á síð­ustu árum með þeim afleið­ingum að ekki hefur verið tækt að halda uppi virkri nátt­úru­vernd, varð­veislu menn­ing­arminja og vinna að upp­bygg­ingu á svæð­inu með full­nægj­andi hætti. Kveður frum­varp þetta á um breyt­ingar á núgild­andi lög­gjöf sem er ætlað að stuðla að því að hægt verði að taka á móti öllum þeim fjölda gesta sem leggur leið sína í þjóð­garð­inn án þess að röskun verði á nátt­úru og menn­ing­arminjum,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu.

Breyt­ing­arnar eru í sam­ræmi við lög um Vatna­jök­uls­þjóð­garð, en lögum um hann er einnig breytt þannig að heim­ild er til gjald­töku í þeim þjóð­garði.

Fram kemur í grein­ar­gerð­inni að lögin um þjóð­garð­inn á Þing­völlum geri yfir­völdum ekki mögu­legt að vernda nátt­úr­una með full­nægj­andi hætti. Ekki sé hægt að varð­veita, við­halda og vinna að upp­bygg­ingu menn­ing­arminja og stuðla að öryggi gesta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár