Breski listamaðurinn Banksy birti mynd á Instagram í gær þar sem hann tjáir sig um málefni svarts fólks en gífurleg mótmæli hafa einkennt bandarískt samfélag síðan lögreglumaður myrti George Floyd í lok maí. Á myndinni sést kertalogi brenna bandaríska fánann.
„Í fyrstu fannst mér að ég ætti bara að þegja og hlusta á svart fólk tala um þetta málefni,“ skrifar Banksy.
Hann spyr enn fremur af hverju hann ætti að þegja. Þetta sé ekki þeirra vandamál heldur hans.
Þetta er hvítt vandamál
[links]„Kerfið er að bregðast hörundsdökku fólki. Hvíta kerfið. Eins og brostin leiðsla sem lekur vatni inn í íbúð fólksins á neðri hæðinni. Þetta gallaða kerfi gerir líf þeirra hörmulegt, en það er ekki hlutverk þeirra að laga það. Þau geta það ekki – enginn hleypir þeim inn í íbúðina á efri hæðinni.
Þetta er hvítt vandamál. Og ef hvítt fólk lagar það ekki þá mun einhver þurfa að fara upp á efri hæð og sparka upp hurðinni,“ skrifar Banksy.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















































Athugasemdir