Mynd: EPA

8 mínútur og 46 sekúndur leystu úr læðingi sársauka margra kynslóða

Ólgan í Banda­ríkj­unum snýst ekki aðeins um þær átta mín­útur og 46 sek­úndur sem lög­reglu­maður hélt hné sínu að hálsi George Floyds þar til hann lést. Hún á rætur í þján­ingum margra kyn­slóða fólks er býr enn við mis­rétti sem er sam­gróið hug­ar­fari vald­hafa.

Trayvon Martin! Næsta nafn! Freddie Gray! Næsta nafn! Eric Garner! Næsta nafn! Terrill Thomas! Næsta nafn!

Fylking fólks gengur að lög­reglu­stöð­inni í Baltimore. Sá sem leiðir hóp­inn hrópar nafn og sam­ferða­menn hans biðja um það næsta. Þetta eru nöfn fórn­ar­lamba lög­reglu­of­beldis. Nánar til­tekið nöfn svartra fórn­ar­lamba manna sem ber að gæta öryggis borg­ar­anna.

En aðeins hluti nafna af löngum lista.

Á árunum 2013 til 2019 urðu banda­rískir lög­reglu­menn 7.666 manns að bana. Þrátt fyrir að svartir séu aðeins um 13 pró­sent þjóð­ar­innar eru þeir 2,5 sinnum lík­legri en hvítir til að falla fyrir hendi lög­reglu­manns.

Keith Scott! Næsta nafn! Randy Evans! Næsta nafn! Kevin Hicks! Næsta nafn!

George Floyd.

Nafn hans bætt­ist við list­ann þann 25. maí. Morðið á honum var drop­inn sem fyllti mæl­inn. Eldfimi drop­inn sem kveikti neista og gerði millj­ónir manna bál­reiðar. Og síð­ustu daga hafa Banda­ríkin logað stranda á milli.

Í heila viku hafa fjöl­menn mót­mæli farið fram í borgum vítt og breitt um Banda­ríkin. Í mörgum borg­anna hefur nú verið sett á útgöngu­bann. Þjóð­varð­liðið hefur verið kallað út og því verið hótað að kalla út her­inn.

Hvað viljum við? Réttlæti! Hvenær viljum við það? Núna!

Í upp­hafi voru mót­mælin frið­sam­leg. Fólki var brugðið. Enn einn svartur maður var lát­inn eftir afskipti lög­reglu­manna. Mann­fjöld­inn gekk um götur og hróp­aði slag­orð. Breyt­inga var kraf­ist.

En svo magn­að­ist ófrið­ar­bál. Og um síð­ustu helgi sauð upp úr. Kveikt var í ýmsum bygg­ingum, m.a. lög­reglu­stöðvum og bönkum. Einnig versl­unum af öllum stærðum og gerðum. Við versl­un­ar­götur blæs sum­ar­vind­ur­inn óheftur inn um glugga. Rúðurnar eru brotnar. Hill­urnar eru sumar hverjar tómar.

Maður reynir að kveikja sér í sígarettu af logandi lögreglubíl í Boston.
Maður reynir að kveikja sér í sígar­ettu af log­andi lög­reglu­bíl í Boston.

Síðasti mánu­dagur í maí­mán­uði er lög­boð­inn frí­dagur í Banda­ríkj­unum. Á ensku kall­ast hann Memorial Day og er helg­aður minn­ingu þeirra sem fallið hafa í her­þjón­ustu.

25. maí síð­ast­lið­inn var síð­asti mánu­dagur mán­að­ar­ins. Um kvöldið, nánar til­tekið klukkan 20.00, gekk George Floyd inn í versl­un­ina Cup Foods á horni 38. strætis og Chicago Avenue í suð­ur­hluta Minn­ea­polis í Minnesota-ríki. Þar eru bestu mentól-sígar­ettur borg­ar­innar sagðar fást og þangað var Floyd kom­inn til að kaupa sér tóbak.

Hann réttir afgreiðslu­mann­inum, sem er á tán­ings­aldri, 20 doll­ara seðil. Starfs­mann­inum grunar að seð­il­inn sé fals­aður, fer út á eftir Floyd og sér hvar hann er í bíl sínum. Hann biður Floyd um að skila sígar­ett­unum en það vill hann ekki gera, að því er starfs­mað­ur­inn lýsti í sím­tali við neyð­ar­lín­una í kjöl­farið. Í sím­tal­inu seg­ist hann telja Floyd drukk­inn.

Að hringja á lög­reglu ef grunur vaknar um fals­aðan seðil er það sem bræð­urnir fjórir er reka Cup Foods hafa upp­álagt starfs­fólki sínu að gera. Það hefur verið gert áður en lög­reglan sýnt því lít­inn áhuga.

En ekki í þetta skiptið.

Lögreglumennirnir setja George Floyd í handjárn við bíl hans.
Lög­reglu­menn­irnir setja George Floyd í hand­járn við bíl hans.

Aðeins fáum mín­útum eftir sím­talið við neyð­ar­lín­una er lög­reglu­bíll mættur á vett­vang. Í honum eru tveir lög­reglu­menn. Síðar kemur annar lög­reglu­bíll. Í honum eru einnig tveir lög­reglu­menn. Tveir lög­reglu­bílar og fjórir lög­reglu­menn mæta vegna gruns um fals­aðan pen­inga­seðil.

Floyd situr enn í bíl sínum handan göt­unnar ásamt tveimur öðrum. Lög­reglu­menn­irnir ræða við fólkið og eftir ein­hverjar mín­útur er Floyd dreg­inn út úr bíl­stjóra­sæt­inu og hand­járn­aður. Annar lög­reglu­mað­ur­inn lætur hann setj­ast upp við vegg við gang­stétt­ina. Hann er síðan færður yfir göt­una að lög­reglu­bílnum. Hann hrasar á leið­inni. Á einu mynd­bandi, sem birt hefur verið til að púsla atburða­rásinni saman, er Floyd kom­inn í aft­ur­sæti lög­reglu­bíls­ins. Báðar aft­ur­dyrnar eru opnar. Við aðra þeirra standa tveir menn og við hina lög­reglu­maður sem er kom­inn hálfur inn í bíl­inn. Það næsta sem sést er að lög­reglu­menn­irnir tveir taka á móti Floyd er hann kemur út þeirra megin.

Sama kvöld og hand­takan átti sér stað var birt mynd­band á Facebook sem fékk blóðið til að ólga í æðum fólks: Floyd liggur á grúfu við hlið lög­reglu­bíls­ins og einn lög­reglu­mann­anna er með hnéð á hálsi hans. Floyd er enn í hand­járnum. „Ég get ekki andað,“ segir hann ítrekað með erf­ið­is­munum. Hann hafði áður sagt lög­regl­unni að hann þjáð­ist af inni­lok­un­ar­kennd. Veg­far­endur heyr­ast spyrja hvenær tak­inu á mann­inum verði sleppt. Lög­reglu­mað­ur­inn er rólegur. Hann er með hendur í vösum, hag­ræðir hnénu annað slagið en sleppir ekki. Ekki fyrr en að 8 mín­útum og 46 sek­úndum liðnum. Ekki fyrr en Floyd er orð­inn mátt­laus. Hættur að kalla á hjálp. Hné lög­reglu­manns­ins er á honum í tvær mín­útur og 53 sek­úndur eftir það. Einn lög­reglu­mann­anna tekur um úln­lið hans og athugar púls­inn. En finnur engan.

Ég get ekki andað! Ég get ekki andað! Ég get ekki andað!

Hrópandi mót­mæl­endur ganga fylktu liði um götur Minn­ea­polis eftir að mynd­bandið af síð­ustu and­ar­tökum George Floyd hafði verið birt. Síðustu orð Floyds hafa síðan þá verið end­ur­tekin í mót­mælum um allan heim.

Nokkrum tímum eftir lát Floyd sendi lög­reglan í Minn­ea­polis út frétta­til­kynn­ingu. Þar er talað um „lækn­is­fræði­legt atvik“ (e. medical incident). Borg­ar­stjór­inn Jacob Frey og lög­reglu­stjór­inn Medaria Arra­dondo halda blaða­manna­fund strax um morg­un­inn. „Það sem við sáum var hræði­legt,“ segir borg­ar­stjór­inn um mynd­bandið. „Algjör­lega ruglað“. Hann ákveður að láta siða­reglur ráð­húss­ins, um að segja sem minnst, fara lönd og leið. Hann ákveður að vera hrein­skil­inn. Rík­is­stjór­inn tekur stuttu síðar í sama streng, segir skort á mannúð aug­ljósan. Sak­sókn­ar­inn til­kynnir að málið verði rann­sakað ofan í kjöl­inn.

Um hádeg­is­bil er þegar byrjað að setja blóm og kerti við stað­inn þar sem hand­takan fór fram og nokkru síðar til­kynnir lög­reglu­stjór­inn að lög­reglu­mönn­unum fjórum, sem áttu þátt í hand­tök­unni, hafi verið sagt upp störfum.

Síðdegis hafa hund­ruð manna safn­ast saman á horni 38. strætis og Chicago Avenue. Hópur mót­mæl­enda gengur að lög­reglu­stöð­inni í hverf­inu og ein­hverjir sjást henda hlutum í hana. Lög­reglan beitir piparúða.

Á mið­viku­deg­inum taka sam­tök akti­vista sig saman og beina þeim til­mælum til allra að mót­mæla með frið­semd en ekki ofbeldi. Það gera enda lang­flestir. En um kvöldið er frið­ur­inn úti. Eldur er bor­inn að bygg­ingum og inn­brot framin. Nóttin ein­kenn­ist af mik­illi ólgu. Daginn eftir biður borg­ar­stjór­inn um aðstoð þjóð­varð­liðs­ins. Hann sá að lög­reglan í borg­inni , sú sama valda­stofnun og vakti reið­ina í upp­hafi, réð ekki við ástandið. Um kvöldið er kveikt í lög­reglu­stöð­inni í hverf­inu þar sem Floyd lést. Kveikt er í tugum bygg­inga til við­bótar.

Minn­ea­polis logar.

Mótmælandi stendur fyrir framan vegatálma og hóp lögreglumanna í New York.
Mót­mæl­andi stendur fyrir framan vega­tálma og hóp lög­reglu­manna í New York.

Á föstu­deg­inum er lög­reglu­mað­ur­inn sem hélt hnénu að hálsi Floyds hand­tek­inn og hann ákærður fyrir mann­dráp (morð af þriðju gráðu). Hann heitir Dereck Chauvin. Hann hefur starfað í lög­regl­unni í tæp tutt­ugu ár og sinnt örygg­is­gæslu á skemmti­stöðum í auka­vinnu.

Borg­ar­yf­ir­völd setja á útgöngu­bann frá klukkan átta á kvöldin. Þegar fyrsta kvöldið er ljóst að margir ætla ekki að virða það. Lög­reglan ræður ekki við neitt og hópur manna tekur lög­reglu­stöð yfir. Fleiri þjóð­varð­liðar eru kall­aðir á vett­vang.

Eftir hádegi á laug­ar­deg­inum hefj­ast gríð­ar­lega fjöl­menn mót­mæli. Áfram er kraf­ist rétt­lætis og breyt­inga. Mótmæli eru einnig hafin í tugum ann­arra borga í Banda­ríkj­unum. And­rúms­loftið breyt­ist þegar kvölda tekur. Þá eru eld­arnir kveiktir.

Þannig líður helgin. Lög­reglu­menn og þjóð­varð­liðar, gráir fyrir járnum, raða sér upp um alla Minn­ea­polis og hand­taka hund­ruð manna. Mót­mæl­endur eru ekki sáttir. Segja harð­ræði vera beitt. Að meðal hinna hand­teknu sé sak­laust fólk sem hafi aðeins verið að mót­mæla órétt­læti. Að við­brögð lög­reglu hafi verið ofsa­fengin og oft án til­efnis. Upp­lausn­ar­á­stand ríkir.

„Þegar grip­deild­irnar byrja – hefst skot­hríðin“ (e. when the looting starts – the shooting starts).

Þetta skrif­aði Donald Trump for­seti Banda­ríkj­anna á Twitter síð­asta föstu­dag. Setn­ingin er til­vísun til orða alræmds lög­reglu­stjóra í Miami árið 1967. Uppþotum í hverfum svartra í borg­inni hafði verið svarað af hörku: „Okkur er sama þó að við séum sak­aðir um hrotta­skap. Þetta er rétt að byrja,“ sagði lög­reglu­stjór­inn Walter E. Headly. „Þegar grip­deild­irnar byrja hefst skot­hríðin.“

Yfir­lýs­ingar hans voru ekki orðin tóm. Hann sendi sér­sveitir lög­reglu­manna með hunda inn í hverfin og þær höfðu leyfi til að stöðva fólk og leita á því án til­efnis. „Þetta er stríð,“ sagði hann. Mann­rétt­inda­sam­tök gagn­rýndu aðferðir Headlys harð­lega og sögðu hann hafa gert Miami að fas­ista­ríki. Rétt­inda­bar­átta svartra var á þessum tíma að ná hámarki og var smám saman farin að svipta hul­unni af kerf­is­bund­inni mis­munun í þeirra garð.

Síðan eru liðnir rúmir fjórir ára­tugir.

Reiðin sem hefur ólgað í Minn­ea­polis og víðar í Banda­ríkj­unum síð­ustu daga er ekki til­komin vegna morðs á einum svörtum manni. Hún er heldur ekki vegna níð­ings­háttar eins lög­reglu­manns. Hún blossar upp vegna þess að George Floyd var enn einn svartur maður sem lætur lífið vegna hátt­ar­lags enn eins lög­reglu­manns­ins. Kerf­is­bundin mis­munun er enn að eiga sér stað. Rætur reið­innar má rekja til þján­inga sem kyn­slóð eftir kyn­slóð hefur búið við.

Blómahaf við gatnamótin þar sem George Floyd var myrtur.
Blómahaf við gatna­mótin þar sem George Floyd var myrtur.

Margir hafa lýst undrun sinni á því að mót­mæli og óeirðir skulu hafa haldið áfram eftir að búið var að reka lög­reglu­menn­ina. Og líka eftir að búið var að hand­taka og ákæra lög­reglu­mann­inn sem setti hnéð að hálsi Floyds. Var ekki búið að taka málið föstum tökum?

„Þetta snýst ekki bara um þær átta mín­útur sem lög­reglu­mað­ur­inn var með hnéð að hálsi George Floyd,“ segir Jacob Frey, borg­ar­stjóri Minn­ea­polis, í sam­tali við New York Times.„Þetta snýst um síð­ustu fjögur hund­ruð ár. Þetta snýst um hund­ruð ára af aðskiln­aði og mis­munun sem er inn­byggð í allt kerfið. Þetta snýst um end­ur­tekna illa með­ferð lög­reglu­manna í ára­tugi. Eina ástæðan fyrir því að við sjáum þessi mál oftar núna er sú að þau nást á mynd­band.“

Í nær engri banda­rískri borg er meiri mis­skipt­ingu að finna en í Minn­ea­polis. Hún er ekki vel sjá­an­leg á yfir­borð­inu. Með­al­tekjur í tví­bura­borg­unum svoköll­uðu, Minn­ea­polis og St. Paul, eru yfir með­al­tali á lands­vísu. Það sama á við um með­al­aldur fólks sem þykir jafnan til marks um vel­megun.

En mis­mun­unin birt­ist í gríð­ar­legum aðstöðumun svartra og hvítra, hvort sem varðar menntun, tekjur eða atvinnu­tæki­færi. Samuel L. Myers, hag­fræð­ingur við Minnesota-háskóla, kallar þetta „Minnesota þver­sögn­ina“.

Útgöngubann sem sett hefur verið á í mörgum borgum hefur verið virt að vettugi.
Útgöngu­bann sem sett hefur verið á í mörgum borgum hefur verið virt að vettugi.

Orsakir mis­skipt­ing­ar­innar má rekja allt aftur til þræla­halds­ins en ákvarð­anir sem teknar voru fyrir nokkrum ára­tugum hafa haft mikið að segja. Til dæmis þegar hrað­braut var lögð í gegnum borg­irnar á sjötta ára­tugnum og hverfi svartra voru rifin niður en ekki hvítra. Með nið­ur­rif­inu hurfu ekki aðeins hús heldur sam­fé­lög. Þar hafði fólk tengst í gegnum kirkjur, félags­mið­stöðvar, versl­anir og fleira.

Um svipað leyti bauðst hvítum verka­manna­fjöl­skyldum að kaupa sína fyrstu fast­eign með lánum frá alrík­is­stjórn­inni. Svartir fengu ekki þessi lán. Gjáin dýpkaði enn. Nýlegra dæmi á svip­uðum nótum er sú stað­reynd að umsóknum svartra um lán í bönkum er oftar hafnað en hvítra. Og það eftir að tekið er til­lit til skulda og tekna.

Tekjur heim­ila svartra Banda­ríkja­manna eru að með­al­tali um 60 pró­sent af með­al­tekjum heim­ila hvítra í land­inu. Í Bret­landi, þar sem mis­munun er vissu­lega til staðar er munur á með­al­tekjum þess­ara hópa tíu pró­sent. Árið 1970 voru svartir með um 50 pró­sent af launum hvítra en næstu ára­tug­ina minnk­aði bilið – allt til árs­ins 2000. Síðan þá hefur það auk­ist á ný.

Í frétta­skýr­ingu Economist segir að launa­töl­urnar segi þó aðeins brot af sög­unni. Atvinnu­leysi er mikið meira meðal svartra en hvítra. Í nýlegri rann­sókn kom fram að um 35 pró­sent ungra svartra karl­manna í Banda­ríkj­unum eru án atvinnu.

Mis­mun­inn kemur svo skýrt fram í því hvernig lög­reglan kemur fram við svarta. Það er ekki bundið við tví­bura­borg­irnar í Minnesota. Húð­lit­ur­inn einn er nóg til þess að svartir þykja grun­sam­legri en hvítir.

Í nær öllum ríkjum Banda­ríkj­anna eru svartir lík­legri til að vera drepnir af lög­regl­unni en hvítir að teknu til­liti til hlut­falls beggja hópa af heildar íbúa­fjölda. Í Utah, svo dæmi sé tekið, eru svartir rétt rúm­lega 1 pró­sent íbú­anna en hins vegar tíu pró­sent þeirra sem lög­reglan hefur skotið til bana. Í Minnesota, þar sem George Floyd bjó, eru svartir fjórum sinnum lík­legri en hvítir að verða drepnir af lög­reglu­mönnum. Aðeins 5 pró­sent íbú­anna eru svartir en þeir eru 20 pró­sent þeirra sem hafa fallið fyrir hendi lög­regl­unnar.

Samstöðumótmæli hafa farið fram um allan heim.
Sam­stöðu­mót­mæli hafa farið fram um allan heim.

„Við erum orðin þreytt,“ sagði Mike Griffin, einn þeirra sem mót­mælti í Minn­ea­polis um helg­ina. Baráttan fyrir því að geta notið lífs­gæða til jafns við aðra hafi tekið á sam­fé­lag svartra. Svo var George Floyd myrtur. Í því krist­all­að­ist allt það órétt­læti sem þeir hafa búið við. Þeir hafa svo oft bent á hið kerf­is­læga mis­rétti. En morð af þessum toga eru enn að eiga sér stað. Oft hefur verið lofað umbótum en þær virð­ast gleym­ast jafn­óðum. Þess vegna eru eldar kveiktir. Til að fanga athygli heims­byggð­ar­innar.

Svartir Banda­ríkja­menn eru lík­legri en hvítir til að vinna lág­launa­störf og eru meðal þeirra fyrstu til að missa vinn­una þegar efna­hags­þreng­ingar verða. En þeir eru ólík­legri til að geta tekið sér launað leyfi frá störfum vegna veik­inda. Það gerði þeim erfitt fyrir í far­aldri COVID-19. Rann­sóknir hafa sýnt að þeir eru útsett­ari fyrir veirunni en aðrir hópar og veikj­ast alvar­legar.

Lögregla handtekur hóp mótmælenda í New York sem höfðu brotið útgöngubann.
Lögregla hand­tekur hóp mót­mæl­enda í New York sem höfðu brotið útgöngu­bann.

„Kyn­þátta­hatur í Banda­ríkj­unum er eins og ryk í loft­inu,“ skrifar Kareem Abdul-Jabbar, fyrr­ver­andi körfu­bolta­maður í NBA-deild­inni, í Los Angeles Times. „Það virð­ist ósýni­legt – jafn­vel þó að þú sért að kafna – þar til þú hleypir sól­inni inn. Þá sést það greini­lega um allt. Á meðan við látum ljósið skína á það þá höfum við mögu­leika á því að hreinsa það hvar sem það lendir. En við verðum að halda árvekni því það er áfram í loft­inu.“

Svart fólk hefur ekki áhyggjur af því að halda of lít­illi fjar­lægð sín á milli þótt kór­ónu­veiran sé enn á sveimi, heldur Abdul-Jabbar áfram. Svart fólk hefur ein­fald­lega of miklar áhyggjur af því að synir þeirra, eig­in­menn, feður og bræður verði myrtir af lög­regl­unni.

„Það sem þú ættir að sjá þegar þú sérð svarta mót­mæl­endur á tímum Trump og kór­ónu­veirunnar er fólk sem hefur verið ýtt út á ystu nöf, ekki vegna þess að það vill að barir og hár­greiðslu­stofur verði opn­aðar heldur af því að það vill lifa. Og anda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

georgefloyd

Mest lesið undanfarið ár