Obama gefur tóninn í síðasta sinn

Barack Obama tal­aði í síð­ustu stefnu­ræðu sinni fyrir sam­stöðu og að Banda­ríkin væru inn­flytj­enda­ríki. Magnús Hall­dórs­son fylgd­ist með síð­ustu stefnu­ræðu for­set­ans, og umræðum um hana.

Þegar Barack Obama tók við sem for­seti Banda­ríkj­anna, í nóv­em­ber 2008, var skuggi yfir banda­rísku hag­kerfi og djúp kreppa á fjár­mála­mörk­uðum. Hank Paulson, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, hefur lýst stöðu mála á þessum tíma, í bók sinni On The Brink, sem afar við­kvæmri. Raun­veru­leg hætta hefði verið á því að hjólin á fjár­mála­mark­aði stöðv­uð­ust alveg, með til­heyr­andi tug­pró­senta atvinnu­leysi og ringul­reið. Aðstæð­urnar úr Krepp­unni miklu, í kringum 1930, hefðu getað teikn­ast upp með 30 pró­sent atvinnu­leysi og alls­herjaróvssu.

Skipti sköpum

Inngrip Seðla­banka Banda­ríkj­anna, með Ben Bernanke seðla­banka­stjóra í broddi fylk­ingar, skipti sköpum, en eftir að sam­þykkt Banda­ríkja­þings lá fyrir, tókst að koma í veg fyrir stöðvun hjól­anna á fjár­mála­mark­aði með 700 millj­arða Banda­ríkja­dala inn­spýt­ingu rík­is­ins. Þessi inn­spýt­ing gaf stjórn­völdum tíma til þess að ná tökum á stöð­unni, segir Bernanke í nýlega útkominni bók sinni, The Courage To Act.

En þó verstu sviðs­mynd­inni hafi verið afstýrt, var staðan grafal­var­leg. Atvinnu­leysi fór í tæp­lega tíu pró­sent í Banda­ríkj­unum fljót­lega eftir að Obama tók við, stjórn­völd voru með mikla hags­muni í bílaið­anði, eftir neyð­ar­lán­veit­ingar rík­is­stjórnar George W. Bush, einnig í trygg­inga­fé­lögum og á fjár­mála­mark­aði. Stýra þurfti þessum málum í þann far­veg að almanna­hags­munir yrðu varðir. Á sama tíma þurfti að skapa aðstæður fyrir hag­vöxt og við­spyrnu.

Þegar horft er yfir þetta rúm­lega sjö ára tíma­bil, er ekki hægt að segja annað en að Obama hafi náð miklum árangri í því að end­ur­reisa banda­rískan efna­hag. Hann lætur af emb­ætti í nóv­em­ber þegar nýr for­seti tekur við.

Eitt af því sem stendur upp úr til þessa, að mati margra sem skrifa um for­seta­tíð Obama hér vestra, er að þetta end­ur­reisn­ar­starf fór fram sam­hliða miklum tækni­breyt­ingum í heim­inum, með til­komu breyttra sam­skipta fólks í gegnum sam­fé­lags­miðla. Þetta eru djúp­stæð­ari breyt­ingar en margir gera sér grein fyrir, og það má segja Obama það til hróss að hann, og hans nán­asta bak­land í stjórn­málum, átt­aði sig fljótt á þess­ari stöðu og tókst að búa til tal­sam­band við almenn­ing með nokkuð áhrifa­miklum hætti.

Ræktaði talsambandið

Þetta styrkti Obama sem leið­toga á heims­vísu, og hjálp­aði til við að efla til­trú almenn­ings á fyrsta svarta for­seta Banda­ríkj­anna. Það eitt og sér mark­aði sögu­leg tíð­indi í stjórn­mála­sögu Banda­ríkj­anna, og ekki síst þess vegna var mik­il­vægt að ná góðu tal­sam­bandi við fólkið í þessu fjöl­breytta sam­fé­lagi sem Banda­ríkin eru.

Nú þegar siglt er í inn í síð­asta árið í emb­ætti hefur stóra myndin í efna­hagnum gjör­breyst til hins betra í Banda­ríkj­unum, frá því sem var í byrjun. Atvinnu­leysi er komið niður fyrir fimm pró­sent, hag­vöxtur er við­var­andi tvö til þrjú pró­sent á ári og fjöldi nýrra starfa í hverjum mán­uði er nálægt sögu­legu hámarki, 272 þús­und störf á lands­vísu í des­em­ber­mán­uði.

Helsta við­ur­kenn­ing á því að Obama hafi tek­ist að stýra þjóð­ar­skút­inni í rétta átt þykir vera sú stað­reynd að Seðla­banki Banda­ríkj­anna er byrj­aður að hækka stýri­vexti. Á síð­asta vaxta­á­kvörð­un­ar­degi árs­ins, 16. des­em­ber síð­ast­lið­inn, voru vextir hækk­aðir úr 0,25 pró­sent í 0,5 pró­sent. Vöxtunum hafði verið haldið í 0,25 pró­sentum í meira en sjö ár, þar sem nauð­syn­legt þurfti að vera með lágt vaxta­stig til að örva hag­kerfið. Nú er hins vegar það versta að baki, og tími áfram­hald­andi fram­þró­unar í efna­hags­líf­inu framundan. Á því byggir ákvörð­unin um að hefja vaxta­hækk­un­ar­feril, sem er stór­mál fyrir heims­bú­skap­inn enda meira en 60 pró­sent af gjald­eyr­is­vara­forða heims­ins í Banda­ríkja­dal.

Margvíslegir erfiðleikarnir

En þó hag­tölur líti vel út um þessar mundir, og sýni árangur frá því Obama tók við stjórn­ar­taumunum, þá hefur for­seta­tíð hans verið rús­sí­ban­areið. Erf­ið­leikar við að breyta heil­brigð­is­kerf­inu, marka skýra utan­rík­is­stefnu, ekki síst í mál­efnum landa fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs – jafn­vel þó Osama Bin Laden hafi verið drep­inn – og koma mik­il­vægum málum í gegnum þingið, meðal ann­ars fjár­lög­unum á hveru ári, hafa lýst um veik­leik­ana í stjórn hans. Áfram­hald­andi halla­rekstur rík­is­sjóðs Banda­ríkj­anna, sem hefur verið við­var­andi í ára­tugi, hefur einnig verið mikið til umfjöll­unar í tíð Obama, enda þjóð­ar­skuldir Banda­ríkj­anna orðnar ískyggi­lega háar, 18,7 trilljónir Banda­ríkja­dala.

Óttast ekki að heimstyrjöld sé að brjótast út

Obama sagði enga ástæðu til þess að ótt­ast þriðju heim­styrj­öld­ina, þó illa skipu­lagðir víga­menn á pall­bílum væru að valda ófriði og beita ofbeldi. „En þeir eru ekki ógn við til­veru okk­ar sem þjóðar,“ sagði Obama.

Banda­ríkja­her leiðir alþjóð­legt hern­að­ar­sam­starf sem beit­ir sér gegn Ríki íslams með loft­áárás­um á þeirra helstu vígi í Sýr­landi og Írak og koma einnig að þjálf­un íra­skra land­göngu­liða. Obama hef­ur ýjað að því að senda sér­sveit­ir á vett­vang til þess að aðstoða sér­sveit­ir Sýr­lend­inga og Kúrda við að ná yf­ir­ráðum í Raqqa á nýj­an leik.

Eins veit­ir leyni­þjón­usta Banda­ríkj­anna sam­herj­um sín­um við að fylgj­ast með áform­um öfga­sinna um að fremja hryðju­verk í Líb­íu, Sómal­íu, Jemen, Af­gan­ist­an og í evr­ópsk­um borg­um. En Obama hefur sagt, að hann ætli ekki að feta í fót­spor George W. Bush, og senda stór hóp her­manna í land­hernað.

Mórölsk skilaboð

Í síð­ustu stefnu­ræðu sinni í gær vék hann að mórölskum skila­boðum sem hann hefur ítrekað nefnt á und­an­förnum mán­uðum. Það er sam­stöð­unni fyrir jafn­rétti óháð lit­ar­hætti, trú og upp­runa. „Það er horft til Banda­ríkj­anna sem fyr­ir­myndar,“ sagði Obama, og lagði áherslu á orð sín. Banda­ríkin væru inn­flytj­enda­ríki að grunni til, og virð­ing fyrir inn­flytj­endum væri Banda­ríkja­mönnum í blóð borin.

Minntist hann á það, að ekki væri hægt að taka múslima fyrir sér­stak­lega og gera lítið úr þeim eða úti­loka þá. Það væri ekki hægt frekar en að gera grín að barni fyrir hvernig það lítur út. Uppskar hann lófa­klapp allra þing­manna, Demókrata jafnt sem Repúblik­ana. Augljóst var að hann beindi spjótum sínum að Donald Trump og þeim mál­flutn­ingi sem hann staðið fyrir, meðal ann­ars að reka múslima frá Banda­ríkj­unum og koma í veg fyrir að þeir geti komið til lands­ins.

Und­an­farna mán­uði hefur Obama lagt mikla áherslu á það í starfi sínu, að gera mál að umtals­efni sem hann telur að banda­rísk stjórn­völd þurfi að taka fast­ari tökum, eftir að hann lætur af emb­ætti.

Má þar nefna fang­els­is­mál, og síðan byssu­glæpi, en það síð­ar­nefnda hefur verið honum mikið hjart­ans mál. Hann vinnur nú að því að hrinda í fram­kvæmd áætlun sinni um að herða reglur um bak­grunns­at­hug­anir þeirra sem kaupa skot­vopn og koma á virkum geð­rann­sóknum hjá þeim sem eiga byssur. Ástæðan fyrir þessu er aug­ljós. Tölurnar yfir byssu­glæpi eru ógn­vekj­andi í sam­an­burði við önnur þróuð ríki, en á síð­asta ári lét­ust rúm­lega 35 þús­und manns vegna byssu­glæpa, eða sem nemur 95 á hverjum ein­asta degi. Það eru litlu fleiri en sem lét­ust vegna bílslysa í Banda­ríkj­unum öllum, sem segir fólki eflaust mikla sögu. Líklegt verður að telj­ast að sam­fé­lags­leg umræða um byssu­glæpi væri mikil á Ísland ef það myndu fimmtán til tutt­ugu manns deyja á hverju ári vegna þeirra.

Venjulegt fólk skipti máli

Obama sagði það vera kjarn­ann í lýð­ræð­inu, þegar venju­legt fólk teldi sig geta komið hlutum til leiðar sam­fé­lag­inu til góðs. Það væri ein­hvers virði. „Þetta eru grund­vall­ar­at­riðin í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi,“ sagði Obama, og lagði áherslu á að nauð­syn­legt væri hlusta eftir þörfum fjöl­skyldna. „Ef fólk finnur fyrir því, að ef það er ábyrgt í sínum störfum, og fer eftir reglum sam­fé­lags­ins, þá upp­skeri það í sam­ræmi við það. Þá erum við á réttri leið,“ sagði Obama.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár