Tillerson vill að hin ríkin borgi meira – Guðlaugur Þór sótti NATO-fund

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son var við­staddur fund utan­rík­is­ráð­herra aðild­ar­ríkja NATO. Krafa um aukin fram­lög til banda­lags­ins báru hæst. Ísland greiðir minnst allra til NATO.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra heilsar bandaríska kollega sínum Rex Tillerson á fundi utanríkisráðherra bandalagsins.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra heilsar banda­ríska kollega sínum Rex Tiller­son á fundi utan­rík­is­ráð­herra banda­lags­ins. Mynd: EPA

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra sótti ráð­stefnu utan­rík­is­ráð­herra aðild­ar­ríkja Atl­ants­hafs­banda­lags­ins (NATO) í Berlín í dag. Á fund­inum ítrek­aði Rex Tiller­son, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, það sem Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hefur sagt um að önnur aðild­ar­ríki verði að leggja meira af mörkum til banda­lags­ins.

„Markmið okkar ætti að vera að ákveða að í lok árs hafi öll aðild­ar­ríkin mætt skuld­bind­ingum sínum varð­andi fram­lög til varn­ar­mála eða útbúið áætl­anir sem skýra hvernig skuld­bind­ing­unum verði mætt,“ sagði Tiller­son sem sat í dag sinn fyrsta NATO-fund eftir að hafa verið gerður að utan­rík­is­ráð­herra í vetur.

„Banda­lags­þjóðir verða að sýna í verki að þær deili holl­ustu Banda­ríkj­anna,“ sagði Tiller­son enn fremur. Undir þetta tóku bresk stjórn­völd í dag.

Utan­rík­is­ráð­herra Þýska­lands, Sigmar Gabriel, sagði á fund­inum að mark­miðið um að tvö pró­sent af rík­is­út­gjöldum fari til varn­ar­mála væri hvorki nokkuð sem hægt væri að upp­fylla né eft­ir­sókn­ar­vert.

„Tvö pró­sent þýða hern­að­ar­út­gjöld sem nema 70 millj­örðum evra. Ég þekki engan þýskan stjórn­mála­mann sem telur það mögu­legt eða eft­ir­sókn­ar­vert,“ sagði Gabriel.

Þýska­land hefur staðið í þeirri mein­ingu að til þess­ara tveggja pró­senta sem aðild­ar­ríki NATO hafa skuld­bundið sig til að eyða í varn­ar­mál telj­ist einnig þró­un­ar­að­stoð hvers­konar í stríðs­hrjáðum löndum. Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri NATO, lét hins vegar hafa eftir sér í dag að slíkt gæti ekki gengið.

„Rík­is­er­ind­rekstur, þró­un­ar­að­stoð og efna­hags­legur stuðn­ingur geta verið mik­il­væg tól til þess að koma jafn­vægi á svæði í heim­inum,“ sagði Stol­ten­berg og benti á að til væru við­mið um þró­un­ar­að­stoð, sem væru aðskilin skuld­bind­ingum um útgjöld til varn­ar­mála. „Þetta eru tveir ólíkir hlutir, jafn­vel þó bæði sé mik­il­vægt.“

[adspot]

Tvö prósent, takk

Samkvæmt þeim skuld­bind­ingum sem NATO-ríkin 28 hafa öll geng­ist við þá þurfa banda­lags­þjóðir að eyða meira en tveimur pró­sentum af vergri lands­fram­leiðslu sinni í varn­ar­mál. Þjóð­irnar hafa enn fremur frest til árs­ins 2024 til að ná þessu mark­miði.

Í frétta­til­kynn­ingu frá íslenska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu er haft eftir Guðlaugi Þór að mik­ill sam­hljómur hafi verið á fund­inum og „ljóst banda­lagið er og verður horn­steinn í sam­starfi lýð­ræð­is­ríkja beggja vegna Atl­ants­hafs­ins“.

Í til­kynn­ing­unni er einnig tæpt á kröfum Banda­ríkj­anna og Bret­lands um aukin fram­lög til varn­ar­mála. „Nýr utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, Rex Tiller­son, var skýr í þessa veru og hvatti jafn­framt önnur ríki til að leggja meira að mörkum. Ísland hefur aukið fram­lög sín til varn­ar­mála og þátt­töku í störfum Atl­ants­hafs­banda­lags­ins og við munum halda áfram á sömu braut,“ segir Guð­laugur.

Bandaríkin eyða mest, Ísland minnst

Ísland hefur aukið fram­lög til varn­ar­mála síðan í fyrra því á þessu ári er gert ráð fyrir að rík­is­sjóður greiði 400 millj­ónum meira til varn­ar­mála en í fyrra. Kjarninn fjall­aði um fram­lög til NATO 20. mars síð­ast­lið­inn.

Sam­kvæmt nýjasta yfir­lit­inu yfir útgjöld til banda­lags­ins sem gefið var út á vef NATO 13. mars síð­ast­lið­inn kemur fram að mið­gildi hlut­falls­ins sem aðild­ar­ríkin eyða í varn­ar­mál árið 2016 hafi verið 1,21 pró­sent.

Af ríkj­unum 28 þá eyða Banda­ríkin lang mestu eða 3,61 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu. Sé hlut­fall þess fés sem eytt er í varn­ar­mál meðal ríkja NATO borið saman þá sést greini­lega að Banda­ríkin eyða lang mestu.

[links]Þau fimm ríki sem eyða meira en tveimur pró­sent af heild­ar­út­gjöldum eru Banda­rík­in, Bret­land, Grikk­land, Eist­land og Pól­land. Sam­an­borið við árið 2009 þá hafa þau aðild­ar­ríki sem eiga landa­mæri að Rúss­landi aukið varn­ar­mála­út­gjöld sín mest. Það eru Pól­land, Eist­land, Lett­land og Lit­háen.

Ísland er eina aðild­ar­ríkið sem ekki er talið með í töflum útgjalda­yf­ir­lits­ins enda hefur Ísland engan her. Hér á landi fer utan­rík­is­ráðu­neytið með varn­ar­mál og sam­skipti við NATO. Á fjár­lögum árs­ins 2017 er gert ráð fyrir að utan­rík­is­ráðu­neytið fái fjár­heim­ildir til sam­starfs um örygg­is- og varn­ar­mál. Heild­ar­gjöld rík­is­ins vegna þeirra eru 1.549,7 millj­ónir króna. Það er fjár­magnað með rekstr­ar­tekjum sem munu nema að upp­hæð 109,4 millj­ónum króna og rest­in, 1.440,3 millj­ón­ir, koma úr rík­is­sjóði.

Séu fjár­lög árs­ins í ár borin saman við fjár­lög árs­ins 2016 má sjá að fram­lög úr rík­is­sjóði til varn­ar­mála hafa hækkað um rétt tæpar 400 millj­ónir króna á milli ára. Þrátt fyrir það er hlut­fall útgjalda til varn­ar­mála fjarri því að vera full­nægj­andi sam­kvæmt kröfum Banda­ríkj­anna; var um 0,006 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu árið 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár