Herra forseti, svona virkar NATO ekki

Banda­ríkin eyddu mest, Ísland minnst í varn­ar­mál af aðild­ar­ríkjum NATO árið 2016. Banda­ríkja­for­seti vill að hin aðild­ar­ríkin greiði sinn skerf en hefur rangar hug­myndir um það hvernig NATO virkar, segir fyrrum fasta­full­trúi Banda­ríkj­anna.

Donald Trump telur framlag annarra bandalagsþjóða í NATO vera of lítið.
Donald Trump telur fram­lag ann­arra banda­lags­þjóða í NATO vera of lítið. Mynd: EPA

Donald Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, hefur verið tíð­rætt á und­an­förnum mán­uðum um fram­lög aðild­ar­ríkja að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu (NATO). Honum hefur fund­ist að banda­lags­þjóð­irnar leggi ekki nógu mikið til varn­ar­mála.

Á fundi sínum með Angelu Merkel, kansl­ara Þýska­lands, ítrek­aði hann þessi skila­boð og sagði aðild­ar­þjóð­irnar skulda NATO og Banda­ríkj­unum fyrir van­goldnar greiðslur und­an­farin ár. Sam­kvæmt sátt­mála NATO skuld­binda allar banda­lags­þjóð­irnar sig til þess að eyða tveimur pró­sentum af rík­is­út­gjöldum til varn­ar­mála til árs­ins 2024.

Daginn eftir að Merkel hafði flogið heim til Berlínar skrif­aði Trump á Twitter að, þrátt fyrir að fundur þeirra hafi verið frá­bær þá skuldi Þýska­land enn háar fjár­hæðir til NATO og Banda­ríkj­anna.

Þessu hafa Þjóð­verjar hafnað. Í yfir­lýs­ingu Ursulu von der Leyen, varn­ar­mála­ráð­herra Þýska­lands, segir að það sé álit Þjóð­verja að það sé rangt að aðild­ar­ríkin séu skyldug til að eyða tveimur pró­sentum af heild­ar­út­gjöldum til hern­að­ar­mála ein­göngu vegna NATO.

„Út­gjöld til varn­ar­mála renna einnig til frið­ar­gæslu á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna, evr­ópsk verk­efni og í fram­lög til bar­átt­unnar gegn hryðju­verkum Íslamska rík­is­ins,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Þjóð­verjar munu á næst­unni auka útgjöld til varn­ar­mála, að því er fjár­mála­ráð­herr­ann Wolfgang Schaeuble hefur látið eftir sér. Hlutfall útgjalda Þýska­lands verður þá orðið 1,26 pró­sent, miðað við 1,18 pró­sent árið 2016.

[adspot]

Bandaríkin eyða mest, Ísland minnst

Atl­ants­hafs­banda­lagið var stofnað árið 1949 í kjöl­far Seinni heims­styrj­ald­ar­innar. Ísland er eitt þeirra ríkja sem eru stofn­að­ilar að NATO en síðan hefur banda­lagið stækkað nokkuð.

Frá 1999 hefur mörgum af ríkjum Aust­ur-­Evr­ópu verið veitt aðild að NATO; mörg þeirra voru hluti af Var­sjár­banda­lag­inu sem var svar aust­an­tjalds­landa við Atl­ants­hafs­banda­lag­inu.

[links]Samkvæmt nýjasta yfir­lit­inu yfir útgjöld til banda­lags­ins sem gefið var út á vef NATO 13. mars síð­ast­lið­inn kemur fram að mið­gildi hlut­falls­ins sem aðild­ar­ríkin eyða í varn­ar­mál árið 2016 hafi verið 1,21 pró­sent.

Af ríkj­unum 28 þá eyða Banda­ríkin lang mestu eða 3,61 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu. Sé hlut­fall þess fés sem eytt er í varn­ar­mál meðal ríkja NATO borið saman þá sést greini­lega að Banda­ríkin eyða lang mestu. Af þeim rúm­lega 921 millj­örðum Banda­ríkja­dala sem ríkin eyða í varn­ar­mál eyða Banda­ríkin um 664 millj­örðum. Það er sem sagt 72 pró­sent af heild­ar­út­gjöld­unum.

Þá er hins vegar ekki þar með sagt að Banda­ríkin standi undir 72 pró­sent alls kostn­að­ar­ins sem fylgir starf­semi NATO, rekstri höf­uð­stöðv­anna í Brussel eða þeim verk­efnum sem NATO ræðst í.

Útgjöld til varnarmála sem hlutfall af vergri landsframleiðslu (%)

Þau fimm ríki sem eyða meira en tveimur pró­sent af heild­ar­út­gjöldum eru Banda­ríkin, Bretland, Grikk­land, Eistland og Pólland. Sam­an­borið við árið 2009 þá hafa þau aðild­ar­ríki sem eiga landa­mæri að Rúss­landi aukið varn­ar­mála­út­gjöld sín mest. Það eru Pólland, Eistland, Lettland og Litháen.

Ísland er eina aðild­ar­ríkið sem ekki er talið með í töflum útgjalda­yf­ir­lits­ins enda hefur Ísland engan her. Hér á landi fer utan­rík­is­ráðu­neytið með varn­ar­mál og sam­skipti við NATO. Á fjár­lögum árs­ins 2017 er gert ráð fyrir að utan­rík­is­ráðu­neytið fái fjár­heim­ildir til sam­starfs um öryggis- og varn­ar­mál. Heild­ar­gjöld rík­is­ins vegna þeirra eru 1.549,7 millj­ónir króna. Það er fjár­magnað með rekstr­ar­tekjum sem munu nema að upp­hæð 109,4 millj­ónum króna og restin, 1.440,3 millj­ónir, koma úr rík­is­sjóði.

„Það er engin millifærsla“

„Fyr­ir­gefðu, herra for­seti, svona virkar NATO ekki,“ skrif­aði Ivo Daadler, fyrr­ver­andi fasta­full­trúi Banda­ríkj­anna hjá NATO árin 2009 til 2013, á Twitter. Tíst hans voru svör við færslum Donalds Trump um að Þýska­land skuldi NATO og Banda­ríkj­unum enn pen­inga.

„Banda­ríkin ákveða sjálf hversu mikið þau leggja til varna NATO. Það er engin milli­færsla fjár þar sem aðild­ar­ríkin borga Banda­ríkj­unum til að verja sig. Þetta er hluti af þeim skuld­bind­ingum sem við höfum gert í sátt­mál­anum,“ skrifar Daadler.

„Öll NATO-ríkin, Þýska­land þar með talið, hafa skuld­bundið sig til að eyða 2% af vergri lands­fram­leiðslu til varn­ar­mála til árs­ins 2024. Nú eru fimm af 28 NATO-löndum sem gera það. Þau sem eru ekki að greiða svo háa fjár­hæð í dag eru að auka útgjöld til varn­ar­mála. Það er gott.“

Skuld­bind­ing­arnar sem Daadler talar um eru þær sem aðild­ar­ríkin geng­ust við á NATO-ráð­stefn­unni í Wales sum­arið 2014. Þar var tvennt ákveðið:

  • Banda­lags­þjóðir sem þegar eyða meira en 2% til varn­ar­mála munu halda áfram að gera slíkt;
  • Banda­lags­þjóðir sem ekki mæta þessum skil­yrðum skulu koma í veg fyrir að hlut­fall til varn­ar­mála minnki og stefna að því að auka útgjöld til varn­ar­mála í takt við aukna verga lands­fram­leiðslu, og ná 2% innan ára­tugs.

Daadler heldur áfram að útskýra varn­ar­sam­starfið fyrir for­set­anum og það hvers vegna Banda­ríkin eru að taka þátt í vörnum í Evrópu. „Það er mik­il­vægt fyrir okkar eigið öryggi,“ skrifar hann, að Evrópa sé örugg. „Við börð­umst í tveimur heims­styrj­öldum í Evrópu, og einu Köldu stríði. Heil, frjáls og frið­sæl Evrópa eru mik­il­vægir hags­munir fyrir Banda­ríkin.“

Gagnrýni Trumps á NATO hefur ávalt verið, að hans eigin sögn, tví­þætt. „Ég hef lengi sagt að NATO ætti við vanda stríða. Í fyrsta lagi þá er það úrelt því það var hannað fyrir mörgum, mörgum árum. Í öðru lagi þá hafa löndin ekki borgað það sem þau áttu að borga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár