Tekist á um sóttvarnahús

Fyr­ir­taka í málum þeirra sem kært hafa ákvörðun um að þurfa að sæta sótt­kví í sótt­varna­húsi verður á morgun. Allir kærendur eiga heim­ili hér á landi.

Fosshótel Reykjavík var leigt undir starfsemi sóttvarnahúss.
Foss­hótel Reykja­vík var leigt undir starf­semi sótt­varna­húss. Mynd: EPA

Þinghald í málum er varða sótt­varna­hús hefst á morgun en ekki í kvöld eins og útlit var fyrir. Þetta segir Ómar R. Valdi­mars­son, lög­maður eins kær­anda, í skrif­legu svari við spurn­ingum Kjarnans. Fyrr í dag var Ómar von­góður um að málin yrðu tekin fyrir í dag. Samkvæmt frétt RÚV hafa að minnsta kosti þrír ein­stak­lingar kært ákvörðun stjórn­valda um skyldu­sótt­kví í sót eftir kom­una til lands­ins.

Fréttir dags­ins voru á þá leið að Þórólfur Guðnason, sótt­varna­læknir, hefði boðað kröfu­gerð til Hér­aðs­dóms vegna máls­ins. Í fréttum RÚV og Vísis stað­festi Lár­entsínus Krist­jáns­son, dóm­ari við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur, að von væri á kröfu­gerð Þórólfs í kvöld. Í kvöld­frétta­tíma RÚV kom fram að sótt­varna­læknir muni skila kröfu­gerð ti Hér­aðs­dóms í kvöld og má lesa úr því að kröfu­gerðin hafi ekki borist fyrir fréttir. Málin verða hins vegar tekin fyrir á morgun, líkt og áður segir og kærendur þurfa því enn að halda sig í sótt­varna­húsi.

Gæti reynst fordæmisgefandi

Í kvöld­frétta­tíma RÚV voru tveir lög­menn kærenda til við­tals, áður­nefndur Ómar ann­ars vegar og Jón Magn­ús­son hins vegar. Í máli þeirra kom fram að málin sem tekin verða fyrir á morgun geti haft for­dæm­is­gildi fyrir aðra sem dvelja í sótt­varna­húsi. Þá kom einnig fram að allir kærendur eigi heim­ili hér á landi.

Að mati Jóns er túlkun sótt­varna­læknis og heil­brigð­is­ráð­herra á sótt­varna­lögum sem sam­þykkt voru í febr­úar ekki í takt við vilja Alþingis með laga­setn­ing­unni. Í sótt­varna­lögum er kveðið á um að sótt­varna­hús sé úrræði fyrir ein­stak­ling sem ekki á sama­stað á íslandi eða vill að öðrum ástæðum ekki ein­angra sig í húsi á eigin vegum. Jón segir að þetta ákvæði eitt og sér sýni að ákvörðun um að skylda umbjóð­anda hans, sem á heim­ili á Íslandi, í sótt­kví í sótt­varna­húsi stand­ist ekki lög.

Ekki náð­ist í Þórólf Guðnason, sótt­varna­lækni, við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár