Gunnar Bragi: Tími til kominn að setja skatt á flugmiða

Gunnari Braga Sveins­syni, utan­rík­is­ráð­herra og fyrsta þing­manni norð­vest­ur­kjör­dæmis, þykir Íslend­inga hafa skort fram­tíð­ar­sýn í ferða­þjón­ustu og þykir tími til kom­inn að setja skatt á flug­miða til að fjár­magna inn­viði ferða­þjón­ust­unnar. Þetta segir hann í við­tali við Skessu­horn í dag.

Íslend­ingar hafi setti mikla fjár­muni í að byggja upp vega­kerfið en ekki gert ráð fyrir svo mik­illi aukn­ingu í ferða­þjón­ust­unni eins og raunin hefur verið und­an­farin ár. „Fyrir vikið þá eru veg­irnir og ferða­manna­svæði ekki til­búin að taka við öllu þessu fólki,“ segir Gunnar Bragi og bætir við að nú horfi við bjart­ari tímar.

„Núna þegar efna­hag­ur­inn fer að batna þá verðum við að setja meiri fjár­muni í vega­kerfið. Ekki bara að og frá vin­sæl­ustu ferða­manna­stöð­unum heldur líka bæta vega­kerfið þannig að það verði auð­veld­ara að dreifa ferða­mönnum um landið,“ segir hann. „Þetta er auð­vitað öðrum þræði mjög stórt byggða­mál.“

Gunnar Bragi segir pen­inga til end­ur­bóta verða að vera sótta til ferða­manna, en ekki bara í rík­is­sjóð. Hann leggur til að skattur verði lagður á flug­miða til lands­ins, eins og ger­ist víða í Banda­ríkj­unum. „Ég held að það sé kom­inn tími til að setja ein­hvers­konar skatt á fólk þegar það kemur til lands­ins, svo sem á flug­miða,“ segir hann við Skessu­horn. „Það verður þá bara að hafa [það] þó að Íslend­ingar þurfi að greiða hann líka.“

Undir eru allir inn­viðir ferða­þjón­ust­unnar, ekki aðeins vegir heldur einnig fjar­skipta­mál því að mati Gunnars Braga geta ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki ekki búið við ótryggt net­sam­band á lands­byggð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár