Stuðningsmenn stjórnarflokka vilja helst Davíð sem forseta

Guðni Th. Jóhann­es­son nýtur yfir­burða­fylgis í könn­unum. Fylgi við hann er nokkuð jafnt á alla ald­urs­hópa, kyn og aðra lýð­fræði­lega þætti í könnun Gallup.

Halla Tómasdóttir, Andri Snær Magnason, Davíð Oddsson og Guðni Th. Jóhannesson.
Halla Tóm­as­dóttir, Andri Snær Magnason, Davíð Oddsson og Guðni Th. Jóhann­es­son. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Guðni Th. Jóhann­es­son nýtur meiri stuðn­ings meðal kvenna en karla. Þetta sést ef rýnt er í nið­ur­stöður könn­unar Gallup sem gerð var dag­ana 8. til 15. júní. Könnunin var nokkuð umfangs­mikil því auk þess að vera gerð yfir viku langt tíma­bil tóku 1.610 manns þátt. Í kosn­inga­spá Kjarnans frá 16. júní fékk þessi könnun Gallup 47,5 pró­sent vægi.

Í gögn­unum sem Gallup sendi frá sér eru nið­ur­stöður könn­un­ar­innar listaðar. Guðni nýtur sam­tals 51 pró­sent fylgis þeirra sem taka afstöðu í könn­un­inni. Davíð Oddsson fær 16,4 pró­sent, Andri Snær Magnason fær 15,5 pró­sent og Halla Tóm­as­dóttir 12,5 pró­sent.

Gallup sendi einnig nið­ur­brot á fylgi fram­bjóð­end­anna eftir kyni, aldri, búsetu og menntun (auk fjöl­skyldu­tekna sem skil­uðu ekki mark­tækum mun). Þá voru þátt­tak­endur í könn­un­inni spurðir hvað þeir kusu í for­seta­kosn­ing­unum árið 2012 og hvaða flokk þeir hyggð­ust kjósa í Alþing­is­kosn­ingum, ef kosið yrði í dag.

Athygli vekur að Guðni nýtur nokkuð jafns fylgis, heilt yfir alla þessa þætti. Fylgi við fram­boð hans er í flestum þáttum um eða yfir 50 pró­sent, eða á pari við heild­ar­fylgi hans í könn­un­inni. Annað á hins vegar við þegar kemur að því hvað fólk ætlar að kjósa í Alþing­is­kosn­ingum og hvað það kaus árið 2012. Aðrir fram­bjóð­endur njóta ekki við­líka stöð­ug­leika milli lýð­flokka.

Stuðningsmenn stjórnarflokka vilja Davíð

Guðni nýtur yfir­burða­fylgis fólks sem hygg­ist kjósa Viðreisn, Pírata, Bjarta fram­tíð, Vinstri græn eða Sam­fylk­ing­una. Þeir sem hugsa sér að kjósa stjórn­ar­flokk­ana, Sjálf­stæð­is­flokk eða Fram­sókn­ar­flokk, ætla hins vegar miklu frekar að kjósa Davíð Oddsson. Það eru hins vegar sára fáir stuðn­ings­menn ann­arra flokka sem ætla að kjósa Davíð. Ber þar helst að nefna fimm pró­sent stuðn­ings­manna Við­reisnar.

Andri Snær nýtur helst stuðn­ings þeirra sem hugsa sér að kjósa Bjarta fram­tíð, Vinstri græna, Sam­fylk­ing­una eða Pírata. Aðeins eitt pró­sent stuðn­ings­manna hvers stjórn­ar­flokks ætlar hins vegar að kjósa Andra Snæ. Halla Tóm­as­dóttir nýtur nokkuð svip­aðs fylgis meðal stuð­ings­manna allra flokka.

Rétt er að geta þess, til útskýr­ingar, að á mynd­inni hér að neðan er sýnt hlut­fall þeirra sem hugsa sér að kjósa ein­hvern flokk. Flokk­arnir njóta hins vegar mis­mik­ils fylgis, eins og hægt er að lesa um í nýj­ustu kosn­inga­spánni fyrir þing­kosn­ingar í haust.

Í for­seta­kosn­ing­unum árið 2012 hlaut Ólafur Ragnar Grímsson um 53 pró­sent atkvæða. Í könnun Gallup segj­ast kjós­endur ÓIafs helst ætla að kjósa Guðna í ár, eða 44 pró­sent þeirra. Tæpur þriðj­ungur kjós­enda Ólafs ætlar að kjósa Davíð. Þóra Arn­órs­dóttir hlaut 33 pró­sent atkvæða árið 2012. Lang flestir kjós­endur hennar ætla að kjósa Guðna í þetta sinn, eða 62 pró­sent. Aðeins þrjú pró­sent kjós­enda Þóru ætla að kjósa Davíð Oddsson.

Athygli vekur að stuðn­ingur við Andra Snæ er minnstur meðal kjós­enda Ólafs Ragnars, ein­ungis 5 pró­sent. Meðal kjós­enda ann­arra fram­bjóð­enda árið 2012 nýtur Andri mun meiri stuðn­ings. Stuðn­ings­menn Höllu virð­ast ekki skipt­ast jafn áber­andi eftir því hvernig þeir kusu árið 2012.

Yngri kjósendur vilja frekar Andra en Davíð – Þeir eldri vilja frekar Davíð en Andra

Sé fylgi fram­bjóð­end­anna skoðað eftir því hversu gamlir kjós­endur eru virð­ast lín­urnar helst birt­ast í fylgi við Davíð og Andra Snæ. Fólk í yngsta ald­urs­hópnum 18 til 24 ára ætlar mun frekar að kjósa Andra Snæ, eða 27 pró­sent, og átta pró­sent ætla að kjósa Davíð. Þessi staða er þver­öfug meðal þáttak­enda sem falla í elsta ald­urs­hóp­inn, 65 ára og eldri. Þar eru aðeins sjö pró­sent svar­enda sem ætla að kjósa Andra Snæ en 26 pró­sent ætla að kjósa Davíð.

Guðni er eftir sem áður með yfir­burða­fylgi í öllum ald­urs­flokkum. Elstu kjós­end­urnir vilja hann frekar í emb­ætti for­seta en þeir sem yngri eru. 59 pró­sent þátt­tak­enda í könnun Gallup í elsta ald­urs­hópnum ætla að kjósa Guðna. Sam­an­borið við, til dæmis, ald­urs­hóp­inn 35-44 ára þar sem 46 pró­sent þátt­tak­enda hyggj­ast kjósa Guðna.

Hópurinn sem ætlar að kjósa Höllu virð­ist hins vegar vera yngri frekar en eldri. Hún nýtur minna en níu pró­sent fylgis meðal þeirra sem eru eldri en 55 ára. Þá njóta aðrir fram­bjóð­endur en þeir fjórir sem hér hafa verið taldir upp mest fylgis í ald­urs­hópnum 45-54 ára, eða níu pró­sent.

Þeir fram­bjóð­endur sem flokk­aðir eru sem „aðrir“ í sund­ur­liðun Gallup eru Ástþór Magn­ús­son, Guðrún Margrét Páls­dóttir, Sturla Jónsson, Elísabet Jök­uls­dóttir og Hildur Þórð­ar­dóttir. Öll eiga þau sam­merkt að mæl­ast með mun minna heild­ar­fylgi en Guðni, Davíð, Andri Snær og Halla.

Menntun og kyn hefur ekki mikil áhrif á fylgi við Guðna

Þegar stuðn­ingur við fram­bjóð­endur er skoð­aður eftir kyni sést að tvö­falt fleiri karlar en konur ætla að kjósa Davíð Oddsson sam­kvæmt nið­ur­stöðum könn­unar Gallup. Hann nýtur stuðn­ings 22 pró­sent karla en aðeins 11 pró­sent kvenna. Aðra sögu er að segja um stuðn­ins­menn Höllu Tóm­as­dóttur en hún nýtur stuðn­ings 18 pró­sent kvenna en aðeins átta pró­sent karla.

Aðrir fram­bjóð­endur njóta álíka mik­ils fylgis meðal kvenna og karla. Þannig ætla 15 pró­sent kvenna og 16 pró­sent karla að kjósa Andra Snæ. Guðni nýtur örlítið meiri stuðn­ings kvenna en karla; 53 pró­sent kvenna ætla að kjósa hann og 49 pró­sent karla.

Ekki er heldur mik­ill munur á fylgi við Guðna eftir því hversu vel mennt­aðir þátt­tak­endur í könnun Gallup eru. Þar er hann með yfir­burða­fylgi hvort sem fólk hefur lokið grunn­skóla­menntun, fram­halds­skóla­prófi eða háskóla­prófi. Línurnar skerp­ast enn þegar litið er á mennt­un­ar­stig stuðn­ings­manna Davíðs og Andra Snæs.

Þannig segj­ast 21 pró­sent þeirra sem aðeins hafa lokið grunn­skóla­prófi ætla að kjósa Davíð en 10 pró­sent þeirra Andra Snæ. Þetta snýst við þegar stuðn­ingur þeirra sem lokið hafa háskóla­prófi er skoð­aður. Þar segj­ast níu pró­sent ætla að kjósa Davíð en 22 pró­sent Andra Snæ. Meðal þeirra sem aðeins hafa lokið fram­halds­skóla­prófi ætla 18 pró­sent að kjósa Davíð og 15 pró­sent Andra Snæ.

Sé stuðn­ingur við fram­bjóð­endur skoður eftir búsetu má enn sjá mun á fylgi við Andra Snæ og Davíð. Andri nýtur mun meira fylgis í höf­uð­borg­inni en Davíð. Í sveit­ar­fé­lögum á lands­byggð­inni ætlar 22 pró­sent að kjósa Davíð og 10 pró­sent Andra Snæ. Í Reykja­vík eru það 21 pró­sent sem ætla að kjósa Andra Snæ en 12 pró­sent Davíð.

Kosið verður til for­seta laug­ar­dag­inn 25. júní næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár