Þriðjungur kvenna orðið fyrir kynferðislegri áreitni eða ofbeldi í starfi

Ein af hverjum þremur konum hefur orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni eða ofbeldi í starfi eða námi. Þar af um sjö pró­sent í núver­andi starfs­um­hverfi. Þetta kemur fram í fyrstu nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar Áfalla­sögur kvenna.

Þriðjungur kvenna hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni eða ofbeldi í námi eða starfi, þar af um sjö prósent í núverandi starfsumhverfi, samkvæmt fyrstu niðurstöðum rannsóknarverkefnisins Áfallasaga kvenna á vegum Háskóla Íslands. Jafnframt kemur fram í niðurstöðunum að konur í ferðaþjónustu eru í meiri áhættu en aðrar stéttir þegar kemur að kynferðislegri áreitni í starfi. Fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar verða kynntar í dag á alþjóðlegum baráttudegi kvenna í húsi Íslenskrar erfðagreiningar í Reykjavík.

Konur í ferðaþjónustu í meiri áhættu

Í tilkynningu frá aðstandendum rannsóknarinnar segir að greining gagnanna sé komin skammt á veg en fyrstu niðurstöður gefa til kynna að hátt hlutfall kvenna verður fyrir áreitni í námi eða starfi. Samkvæmt fyrstu niðurstöðum rannsóknarinnar er hættan á kynferðislegri áreitni er nokkuð breytileg eftir starfsumhverfi hér á landi. Þannig virðast til dæmis konur í flug- og ferðaþjónustu en vera í nokkuð meiri áhættu en margar aðrar starfsstéttir.

Niðurstöðurnar sýna einnig að ríflega fimmtungur þátttakenda í rannsókninni eru með sterk einkenni um áfallastreituröskun en vísbendingar eru um að slík einkenni geti haft í för með sér langvarandi heilsubrest. Konur sem hafa orðið fyrir kynferðislegu eða líkamlegu ofbeldi á lífsleiðinni eru í mestri hættu á að þróa með sér áfallastreituröskun en einnig eru konur sem lent hafa í öðrum félagslegum áföllum á borð við einelti eða framhjáhaldi í töluvert aukinni áhættu.

„Tíðni áfallastreituröskunar mælist nokkuð hærri í okkar þátttakendahópi en í fyrri rannsóknum. Ástæðan er margþætt en hana má meðal annars rekja til þess að við einskorðum okkur ekki við áföll sem ógna beint lífi einstaklinga heldur tekur rannsóknin einnig til félagslegra áfalla og áhrifa þeirra á einkenni áfallastreitu. Við erum virkilega þakklát fyrir hversu góðar viðtökur rannsóknin hefur fengið og það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu vel núverandi þátttakendahópur endurspeglar íslensku kvenþjóðina með tilliti til aldurs, búsetu, menntunar og tekna,“ segir Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands og einn aðstandandi rannsóknarinnar.

Hlutfallið hærra en mælst hefur í fyrri rannsóknum

[links]Áfallasaga kvenna er metnaðarfull vísindarannsókn á vegum Háskóla Íslands sem unnin er í samvinnu við Íslenska erfðagreiningu en markmið hennar er að varpa ljósi á heilsufar kvenna í kjölfar áfalla. Rannsóknin hófst fyrir ári og hingað til hafa um 30.000 konur tekið þátt en opið verður fyrir skráningar nýrra þátttakenda til 1. maí. Hægt verður að taka þátt í rannsókninni til 1. maí nk. á vefnum afallasaga.is en þátttaka hverrar einustu konu skiptir mál.

Í nóvember í fyrra var greint frá bráðabirgðaniðurstöðum eftir að 24 þúsund konur höfðu tekið þátt. Þar kom í ljós að fjórðungur þeirra kvenna sem svöruðu hafði verið nauðgað eða orðið fyrir nauðgunartilraun. Þær leiddu enn fremur í ljós að ríf­lega 40 pró­sent þátt­tak­enda í rann­sókn­inni eiga sögu um fram­hjá­hald eða höfnun af hendi maka og svipað hlut­fall hefur orðið fyrir and­legu ofbeldi eða ein­elti í barn­æsku eða á full­orð­ins­ár­um. Einn af hverjum sex þátt­tak­endum í rann­sókn­inni á að baki lífs­hættu­leg veik­indi eða meiðsl og um það bil þriðj­ungur erf­iða fæð­ing­ar­reynslu.

Streymt verður beint frá fund­inum á Facebook-síðu Íslenskrar erfða­grein­ingar: https://www.facebook.com/%C3%8Dslensk-erf%C3%B0agreining-510756569101060/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár