Segja fjármálaráðherra sýna þinginu fádæmalausa óvirðingu

Stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn segja Benedikt Jóhann­es­son sýna þing­inu dóna­skap og van­virð­ingu með ummælum um að sam­þykkt sam­göngu­á­ætl­unar án fjár­mögn­unar sé „nán­ast sið­laus.“

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar gagn­rýndu Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra harð­lega við upp­haf þing­fundar í dag.

Ástæðan eru ummæli fjár­mála­ráð­herra í þætt­inum Bítið á Bylgj­unni í morgun, þar sem hann ræddi um sam­göngu­á­ætlun, og sagði meðal ann­ars að honum þætti það „nán­ast sið­laust“ af síð­asta Alþingi skapa rangar vænt­ingar fólks með því að sam­þykkja ófjár­magn­aða sam­göngu­á­ætlun. „Í raun og veru var skandall­inn sá að menn skyldu sam­þykkja sam­göngu­á­ætlun án þess að sam­þykkja á sama tíma að tryggja fjár­mögnun. Það er upp­runi vand­ans,“ sagði Benedikt meðal ann­ars. Hann sagði einnig „svo kemur þetta stjórn­lausa þing, þegar það var ekki starf­andi rík­is­stjórn með meiri­hluta, og þá ákveða menn að bæta í og setja á milli fjög­urra og fimm millj­arða króna og þar verða aftur mis­tök.“

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður VG, vakti fyrstur máls á orðum ráð­herr­ans undir liðnum störf þings­ins og sagð­ist ekki geta orða bund­ist vegna máls­ins. „Ég hef á þeim árum sem ég hef fylgst með Alþingi aldrei orðið vitni að slíkum dóna­skap gagn­vart þing­inu,“ sagði Kolbeinn. Hann spurði hvað for­seti þings­ins ætl­aði að gera í því að ráð­herr­ann sýndi þing­inu „þessa fádæma­lausu óvirð­ingu.“

Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður VG, tók undir með Kolbeini. Hún bað Unni Brá Kon­ráðs­dóttur, for­seta Alþingis um að ræða þetta orð­færi við ráð­herr­ann og sagði grafal­var­legt að svona væri talað um verk sem þing­inu hafi borið að vinna sam­kvæmt lögum. Hún gerði einnig athuga­semdir við það að Benedikt hafi sagt að þingið hefði verið stjórn­laust eftir kosn­ingar, það væri alvar­legt orð­færi að tala um að Alþingi sé stjórn­laust þegar það sé rétt­kjörið undir stjórn for­seta sem það valdi sér og að afgreiða mál sem því beri að gera.

Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata, tók einnig undir með Kolbeini og Svandísi, og sagði þingið við­stöðu­laust upp­lifa van­virðu frá fram­kvæmda­vald­inu, þannig hefði það einnig verið á síð­asta kjör­tíma­bili. „Núna er það orðið þannig að það er ekki lengur hægt að sitja undir þessu ofríki fram­kvæmda­valds­ins. Mér finnst mjög brýnt að for­seti beiti sér fyrir því að ráð­herr­anum verði gert ljóst hvernig þrí­skipt­ing valds­ins fari fram.“

„Þetta er í annað skiptið sem að ráð­herrar í þess­ari rík­is­stjórn virð­ast ekki átta sig á því hver það er sem hefur völdin hér í sam­fé­lag­inu þegar kemur að þessum hlutum,“ sagði Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Hann sagði að honum þætti fjár­mála­ráð­herra verða að koma fyrir þingið og gera grein fyrir orðum sínum. Oddný Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði ráð­herra vinna í umboði þings­ins. „Getur það verið að nýir ráð­herrar átti sig ekki á hlut­verki sínu? Það er mjög alvar­legt.“ Andrés Ingi Jónsson, þing­maður VG, var svo sjötti stjórn­ar­and­stöðu­þing­mað­ur­inn sem ræddi við­talið við ráð­herr­ann, og sagði að þótt ráð­herr­ann hefði litla þing­reynslu hlyti hann, jafn reynslu­mik­ill og hann væri í öðrum störfum, að geta borið smá virð­ingu fyrir þing­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár