Katrín: Mikil vonbrigði að ekki hafi náðst að mynda ríkisstjórn

Formaður Vinstri grænna segir verk­efnið eftir sem áður vera að koma á starf­hæfri rík­is­stjórn fyrir fólkið í land­inu.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, segir að það séu mikil von­brigði að ekki hafi náðst að mynda rík­is­stjórn Vinstri-grænna, Fram­sókn­ar­flokks, Sam­fylk­ingar og Pírata að þessu sinni. „Ljóst var frá upp­hafi að meiri­hlut­inn var naumur og stór verk­efni framundan. Mál­efna­lega gengu sam­ræður þess­ara flokka mjög vel og ég upp­lifði traust á milli for­mann­anna; mín, Sigurðar Inga, Loga og Þór­hildar Sunnu. Fyrir liggur hins vegar að hinn naumi meiri­hluti vóg of þungt til að Framsókn treysti sér til að ljúka myndun meiri­hluta­stjórnar. Eftir sem áður er það okkar verk­efni að koma á starf­hæfri rík­is­stjórn fyrir fólkið í land­inu.“ Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu hennar.

Stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum fjög­urra flokka var slit­ið fyrr í dag.

Heim­ild­ar­menn Kjarn­ans segja að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi slitið við­ræð­unum vegna þess að hann teldi meiri­hluta flokk­anna vera of tæpan, en saman hafa þeir 32 af 63 þing­mönn­um. Sú ákvörðun var tekin í morg­un. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans hafa for­svars­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins hins vegar ekki viljað taka Við­reisn inn í stjórn­ar­sam­starfið til að tryggja stærri meiri­hluta.

Áhyggjur Fram­sókn­ar­manna beindust fyrst og síð­ast að Píröt­um, sem þeir töldu að hefðu gefið of mikið eftir í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum og að það myndi skapa vanda gagn­vart bak­landi þeirra þegar liði á kjör­tíma­bil­ið. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár