Hvítbók um fjármálakerfið frestast fram í nóvember

Starfs­hópur sem vinnur að hvít­bók um fram­tíð­ar­sýn og stefnu fyrir fjár­mála­kerfið á Íslandi mun ekki skila nið­ur­stöðu sinni fyrr en í nóv­em­ber. Í skip­un­ar­bréfi var gert ráð fyrir skilum fyrir 15. maí síð­ast­lið­inn með skýrslu til fjár­mála­ráð­herra.

Starfs­hópur sem vinnur að hvít­bók um fram­tíð­ar­sýn og stefnu fyrir fjár­mála­kerfið á Íslandi mun ekki skila nið­ur­stöðu sinni fyrr en í nóv­em­ber. Í skip­un­ar­bréfi var gert ráð fyrir skilum fyrir 15. maí síð­ast­lið­inn með skýrslu til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

[links]Í svari for­manns nefnd­ar­innar við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að skipun hennar hafi taf­ist tölu­vert miðað við það sem ætl­unin var þegar dag­setn­ingin 15. maí var ákveðin. „Nefndin hóf ekki störf fyrr en í febr­úar og því ljóst að þau tíma­mörk voru ekki raun­hæf,“ segir Lárus L. Blöndal for­maður. Nefndin hefur óskað eftir umsögnum margra aðila og hafi þær síð­ustu borist í júlí. For­sæt­is­ráð­herra kynnti í vor á þingi á stefnt væri að því að nefndin lyki störfum í haust en nú er gert ráð fyrir að það verði í nóv­em­ber.

Lárus L. Blön­dal hæsta­rétt­ar­lög­maður og stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu rík­is­ins er for­maður starfs­hóps­ins. Með honum í hópnum eru Guð­rún Ögmunds­dótt­ir, for­stöðu­maður lausa­fjár­á­hættu og fjár­mála­fyr­ir­tækja hjá Seðla­banka Íslands, Guð­jón Rún­ars­son, lög­maður og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Sam­taka fjár­mála­fyr­ir­tækja, Kristrún Tinna Gunn­ars­dótt­ir, hag­fræð­ingur hjá Oli­ver Wyman í Sví­þjóð og Sylvía K. Ólafs­dótt­ir, deild­ar­stjóri jarð­varma­deildar á orku­sviði Lands­virkj­un­ar.

Kveðið var á um stofnun hóps­ins í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar þar sem lögð var áhersla á að stefnu­mark­andi ákvarð­anir um fjár­mála­kerfið verði teknar eftir umfjöllun Alþingis um fram­tíð­ar­sýn fjár­mála­kerf­is­ins á Íslandi sem byggi á þess­ari hvít­bók um efn­ið. Hvít­bókin hafi að leið­ar­ljósi aukið traust á íslenskum fjár­mála­mark­aði, aukið gagn­sæi og fjár­mála­stöð­ug­leika. Í sátt­mál­anum segir einnig að rík­is­stjórnin vilji vinna að frek­ari skil­virkni í fjár­mála­kerf­inu, að dregið verði úr áhættu vegna óskyldra þátta í starf­semi fjár­mála­fyr­ir­tækja og að sér­stak­lega verði litið til ann­arra lít­illa opinna hag­kerfa og reynslu ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum við mótun fram­tíð­ar­sýn­ar­inn­ar.

Í yfir­lýs­ingu frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu kom fram að mark­mið með starfs­hópnum væri að skapa traustan grund­völl fyrir umræðu, stefnu­mörkun og ákvarð­ana­töku um mál­efni er varða fjár­mála­kerf­ið, fram­tíð­ar­gerð þess og þró­un.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár