Wikileaks birtir vandræðalega pósta Demókrata

Málið þykir hið vandræðalegasta fyrir Demókrataflokkinn þar sem þeir sýna að valdamikið fólk innan hans virðast hafa verið mjög hliðhollir Hillary Clinton í kosningabaráttu hennar og Bernie Sanders.
Málið þykir hið vand­ræða­leg­asta fyrir Demókra­ta­flokk­inn þar sem þeir sýna að valda­mikið fólk innan hans virð­ast hafa verið mjög hlið­hollir Hillary Clinton í kosn­inga­bar­áttu hennar og Bernie Sanders. Mynd: CJ GUNTHER / EPA

Wikileaks birtu um tutt­ugu þús­und tölvu­pósts­sam­skipti innan flokks­stjórnar Demókra­ta­flokks­ins í Banda­ríkj­unum í gær­kvöld. Málið þykir hið vand­ræða­leg­asta fyrir flokk­inn, sér­stak­lega þar sem póst­arnir voru birtir á sama tíma og Hillary Clinton, for­seta­efni Demókra­ta­flokks­ins, til­kynnti vara­for­seta­efni sitt, Tim Kaine. Í póst­unum er meðal ann­ars rætt um Bernie Sanders, sem tap­aði í for­vali fyrir Clinton, og sam­skipti flokk­stjórn­ar­innar við fjöl­miðla­menn vest­an­hafs.

Póstar frá toppunum spanna eitt og hálft ár

Wikileaks birtu póstana með tengli á Twitter með mögu­leika á að leita innan gagna­grunns­ins. Lekinn var kynntur sem „fyrsti hluti Hillary-lek­ans.“ Þar er meðal ann­ars að finna yfir 10.000 pósta tengdum yfir­manni sam­skipta­sviðs Demókra­ta­flokks­ins, Luis Miranda, tæp­lega 4.000 pósta til og frá fjár­mála­stjór­anum Jordon Kaplan og öðrum yfir­manni fjár­mála, Scott Comer. Tölvu­póst­arnir ná yfir tíma­bilið jan­úar 2015 til 25. maí 2016. Washington Post greinir frá því að póst­arnir koma frá rúss­neskum tölvu­hökk­urum sem náðu að brjót­ast inn í tölvu­kerfi Demókra­ta­flokks­ins.

„Trúir hann á guð?“

Í einum póst­inum frá 5. maí síð­ast­liðnum sést hvar sam­skipta­stjór­inn, Luis Miranda, er að velta fyrir sér trú­araf­stöðu Bernie Sanders.

„Það skiptir kannski ekki máli, en við ættum kannski að láta ein­hvern í Kentucky og Vestur Virginíu spyrja út í trú hans,“ segir Miranda, til net­fangs­ins mashall@dnc.org. Í svar­inu segir: „Trúir hann á guð. Hann hefur skautað fram hjá því að hann er af gyð­inga­ættum. Ég held að ég hafi lesið að hann sé trú­leys­ingi. Þetta gæti skipt máli hjá mínu fólki. Í baptista­kirkj­unni minni mundi það skipta miklu máli hvort hann sé Gyðingur eða trú­leys­ingi.“

Fríðindi fyrir peningafólk

Fleiri sam­skipti af þessum toga er að finna í lek­anum og sýna svart á hvítu hversu hörð kosn­inga­bar­áttan á milli Sanders og Clinton varð.

Í pósti frá Erik Stowe, fjár­mála­stjóra í Norður Kali­forniu fyrir Tammy Paster fjár­öfl­un­ar­ráð­gjafa útlistar það fríð­indi sem þeir sem veita styrki til flokks­ins eiga að fá fyrir lands­þing Demókra­ta­flokks­ins sem verður í Fíla­delfíu í næstu viku. Þeir sem gáfu mest fá svítu á lúx­us­hót­eli í Fíla­delfíu, frí­miða á við­burði á þing­inu og sex miða á „VIP-veislu“.

Stuðn­ings­menn Donalds Trump hafa eðli­lega not­fært sér lek­ann og hvetja nú Demókrata sem vildu fá Sanders sem full­trúa sinn, að kjósa Trump í stað­inn í ljósi þess hversu hlið­hollur Demókra­ta­flokk­ur­inn virð­ist hafa verið Clinton.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár