Beyoncé breytir heiminum – áhrif dægurmenningar á alþjóðasamskipti

Banda­ríska tón­list­ar­konan Beyoncé gaf nýlega út hljóm­plöt­una og mynd­bands­verkið Lemonade. Útgáfan hefur hlotið mikla athygli, ekki ein­ungis vegna afburða­hæfi­leika söng­kon­unnar á tón­list­ar­svið­inu heldur einnig vegna fram­göngu hennar og hisp­urs­lausrar umfjöll­unar um við­kvæm mál. Þar fléttar hún saman rétt­inda­bar­áttu kvenna og hjóna­bandserf­ið­leikum sínum og eig­in­manns­ins, rapp­ar­ans Jay Z. Platan er merki­leg fyrir margra hluta sakir því Beyoncé, sem hefur verið ein skærasta stjarnan á popp­himn­inum und­an­farin ár, fer sínar eigin leiðir og storkar umheim­inum – karla­heim­inum – sér í lagi út frá stöðu svartra kvenna sem búa í raun við tvö­falda kúgun.

En hvernig kemur plötu­út­gáfa popp­söng­konu alþjóða­sam­skiptum við? Svarið liggur í þeim áhrifum sem fel­ast í gjörn­ingnum í heild sinni, sér­stak­lega text­unum, en einnig allri fram­göngu söng­kon­unnar. Hér er ekki lagt mat gæði og end­an­legt gildi verks­ins en það má til sanns vegar færa að afleið­ingar útgáfu sem þess­arar gætir um allan heim, bæði meðal tug­millj­óna aðdá­enda, ungra kvenna og fólks almennt. Stóra spurn­ingin er síðan hvernig verkið hefur áhrif á gjörðir þeirra sem fara með völd, stjórn­völd ein­stakra ríkja, stór­fyr­ir­tækja eða stofn­anna sam­fé­lags­ins, bæði með beinum og óbeinum hætti.

Listir og menn­ing hafa alla tíð verið hluti af form­legum sam­skiptum milli ríkja og við þekkjum öll hug­takið menn­ing­ar­sam­skipti. For­set­inn fer í opin­bera heim­sókn, það er sett upp íslensk menn­ing­ar­vika og haldnir tón­leikar hér og mynd­list­ar­sýn­ingar þar. Fyr­ir­menni og lista­spírur lyfta glösum og borið er lof á djúp tengsl ríkj­anna sem eigi sér rætur í menn­ing­ar­arf­inum.

Þetta er allt gott og blessað því strengja­kvar­tett eða lauf­léttur aríu­söngur léttir stemn­ing­una í kok­teil­boð­unum og greiðir jafn­vel fyrir jákvæðum opin­berum sam­skiptum. En þótt Obama dilli sér undir ljúfum tónum á tón­leikum þeirra frá­bæru lista­manna sem boðið er að spila í Hvíta hús­inu er ekki þar með sagt að boð­skapur þeirra hafi bein áhrif á utan­rík­is­stefnu Banda­ríkja­manna.

Frægt er atvikið þegar Ertha Kitt, sem þá var þekkt söng­kona, sagði Lindy Bird Johnson for­seta­frú Banda­ríkj­anna til synd­anna vegna afleið­inga Víetnams­stríðs­ins á banda­rísk ung­menni, í kvöld­verð­ar­boði í Hvíta hús­inu. Eftir atvikið var fót­unum kippt undan henni, hún missti útgáfu­samn­inga og var í raun gerð útlæg. Þetta gerð­ist árið 1968 en áhuga­vert væri að sjá hvort Beyoncé kæm­ist upp með slíkt í dag.

Tiltæki Erthu Kitt kann að hafa virst gagns­laus dóna­skapur á sínum tíma sem kost­aði hana lista­manns­fer­il­inn en gæti að hafa verið fólki inn­blástur og haft langvar­andi áhrif. Það er það mik­il­væga; hvernig fram­koma lista­manna, bæði form­leg menn­ing­ar­tengsl og dæg­ur­menn­ing í öllum myndum (e. popular culture), kunna að hafa var­an­leg áhrif á fólk og sam­fé­lög og móta þar með alþjóða­sam­skipti. 

Fræði­greinin alþjóða­sam­skipti snýst einmitt um að skilja og skil­greina hegðun ríkja og ann­arra ger­enda í alþjóða­kerf­inu í hvers kyns sam­skiptum þvert á landa­mæri. Þau geta varðað hin hefð­bundnu ríkja­sam­skipti, við­skipti fyr­ir­tækja, sam­skipti milli félaga­sam­taka, borga og jafn­vel ein­stak­linga. Þarna skipar menn­ing í stóru sam­hengi til­tek­inn sess en þó hefur verið deilt um hversu mikil áhrif þættir eins og menn­ing ein­stakra svæða og hópa hefur á hegðun ríkja út á við.

Gera verður grein­ar­mun á hug­tak­inu menn­ingu í sam­heng­inu um menn­ing­ar­heim – og menn­ingu sem við notum um listir af ýmsum toga eða köllum dæg­ur­menn­ingu. Hér er þessu þó vís­vit­andi ruglað ögn saman, því mörkin geta verið óljós. Sér­stak­lega má benda á hvernig menn­ing, eins og við notum hug­takið um listir, getur mótað það sem kalla mætti menn­ing­ar­heim, sjálfs­mynd og afstöðu fólks – og vald­hafa þar með.

Spice Girls-flokkurinn nauð gríðarlegra vinsælda í lok tíunda áratugs síðustu aldar. Þær birtu oftar en ekki myndir af sér sveipaðar breska fánanum.
Spice Girls-flokk­ur­inn nauð gríð­ar­legra vin­sælda í lok tíunda ára­tugs síð­ustu aldar. Þær birtu oftar en ekki myndir af sér sveip­aðar breska fán­anum.

Fyrr á tímum var vald og styrkur ein­stakra ríkja jafnan mælt í hern­að­ar­mætti sem nýta mætti til land­vinn­inga eða til að verj­ast hættum utan frá. Þá höfðu menn (karl­menn gjarnan) minni áhyggjur af því sem var að ger­ast innan ríkj­anna. Eftir því sem leið á 20. öld, sam­fara hnatt­væð­ingu, auknum mann­rétt­indum og tækni, var meira farið að gera ráð fyrir fólk­inu sem byggir ríkin, ekki ein­göngu sem þiggj­endum valds heldur sem þátt­tak­endum og þar með áhrifa­völdum. Jafn­framt komu fram kenn­ingar um að fólkið skipti ekki ein­ungis máli og hefði áhrif á hegðun rík­is­ins sem það byggði, heldur gætu slík áhrif borist til ann­arra ríkja og svæða.

Hið mjúka vald: Menning og listir breyta heiminum

Þegar rokkið kom fram á sjón­ar­sviðið á sjötta ára­tugnum gaf það tón­inn í því sem kallað var ung­linga­menn­ing næstu ára­tug­ina, þar sem sam­fé­lagið umbylt­ist á margan hátt. Vestræn dæg­ur­menn­ing, sér í lagi popptón­list, var jafn­framt þyrnir í augum yfir­valda Ráð­stjórn­ar­ríkj­anna austan járn­tjalds­ins. Bæði sú tón­list sem barst með óform­legum hætti til fólks en einnig var dægur- og djass­tón­list notuð með kerf­is­bundnum hætti af banda­rískum yfir­völdum til að grafa undan vald­höfum eystra og gera vestrið meira spenn­andi.

Deilt er um áhrif menn­ingar á hin hörðu öryggis- og varn­ar­mál ríkja, því þar er vissu­lega um ýtr­ustu þjóð­ar­hags­muni að ræða sem tryggðir eru með vopnum og eng­inn ann­ars bróðir í þeim leik. Hins vegar má spyrja hvar mörkin milli ófriðar og friðar liggi og svara jafn­harðan að þar skipti mestu máli hvort ríki, ráða­menn og fólk, geti talað saman og menn­ing­ar­leg tengsl hljóti því að vera aðal­at­riðið.

Þetta getur gerst með beinum hætti þegar vold­ugur þjóð­ar­leið­togi hugsar sig tvisvar um hvort hann varpi sprengjum á fólkið sem hefur haft svo mikil áhrif á hann með fag­urri list­sköpun, bók­menntum, söng og hljóð­færaslætti. Jafn­framt hefur þetta víð­tæk­ari skírskotun í lang­vinnum áhrifum sem verða til í til­teknum menn­ing­ar­heimum – hvort sem um er að ræða dæg­ur­laga­texta sem á þátt í að umbylta hugs­un­ar­hætti eða sögu­legri menn­ingu sem mótar þjóð­ar­vit­und á löngum tíma.

Ein­hverjum gæti þótt þetta vera barna­leg ein­földun því gjörðir ríkja muni ávallt mið­ast við að hámarka öryggi sem mest, þá með til­tækum hern­að­ar­mætti eða ein­hvers­konar hags­muna­banda­lagi. Á móti hefur verið nefnt það sem kallað er hið mjúka vald, þar sem ekki er treyst á ógnun eða umbun, heldur hegðun sem laðar að fólk, þjóðir eða ríki til að vilja fylgja við­kom­andi að málum.

Hið mjúka vald getur t.d. birst í banda­rískri dæg­ur­menn­ingu, því hvernig bar­áttu­söngur banda­rísks þjóð­laga­söngv­ara eða tón­list og textar rokktón­list­ar­manna geta átt þátt í að móta hug­ar­heim heilu kyn­slóð­anna um heim allan. Um leið og slík tón­list blæs fólki bar­áttu­anda í brjóst og gagn­rýnir spillta vald­hafa getur hún styrkt ímynd Banda­ríkj­anna sem lands tæki­fær­anna – þar með gert þau aðlað­andi og fært þeim það sem kalla má mjúkt vald.

Það er því ljóst að þegar Beyoncé stappar niður fæt­inum og bendir á kúgun kvenna hefur hún ekki ein­ungis bein áhrif á millj­ónir aðdá­enda um allan heim heldur skekkir hún gang­verk tím­ans. Breyt­ing­arnar ger­ast kannski ekki sam­stundis en með tím­anum fer áhrif­anna að verða vart, allt í einu áttar fólk sig á því að til­tekin hegðun er ekki sam­þykkt, þeir sem marka stefnu vita að ekki þýðir að bjóða fólki lengur upp á það sem hefur þótt sjálf­sagt og raun­veru­legar breyt­ingar eiga sér stað, einnig þvert á landa­mæri.

Þegar lag, ljóð, bók, bíó­mynd eða leik­verk afhjúpar ver­öld­ina, afléttir álög­unum af því hvernig fólk sér heim­inn, segir sögu eða end­ur­speglar hugs­un­ar­hátt, orð­ræðu eða venjur – þá áttar fólk sig gjarnan á því að ekk­ert er óum­breyt­an­legt, að lífið er bara til­búin ímynd og verður þá frekar til­búið til að breyta eða sam­þykkja breyt­ingar.

List, hverju nafni sem hún nefn­ist, jarð­tengir því fólk og bendir á það sem skiptir raun­veru­lega máli. Hún hefur áhrif á hinn venju­lega mann en það mik­il­væga er: einnig vald­hafa, þá sem taka ákvarð­anir, ekki ein­ungis um utan­rík­is­stefnu, öryggis- og varn­ar­mál, hvort farið er í stríð – heldur einnig um það hvort mis­rétti og kúgun eru liðin. Þess vegna eru listir og menn­ing mik­il­væg, þess vegna er Beyoncé mik­il­væg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár