Nauðsynlegt að slaka hægt og sígandi á þeim takmörkunum sem eru í gangi

Á upp­lýs­inga­fundi dags­ins sagði Þórólfur Guðnason mjög mik­il­vægt að stöð­ug­leiki í við­brögðum við kór­ónu­veirunni ráði för. „Grímur eru ekki töfra­lausn,“ sagði Alma Möller sem hvatti fólk til að kynna sér upp­lýs­ingar um notkun gríma.

Frá upplýsingafundi sem haldinn var fyrr í dag.
Frá upp­lýs­inga­fundi sem hald­inn var fyrr í dag. Mynd: Almannavarnir

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði það nauð­syn­legt að slaka hægt og síg­andi á þeim tak­mörk­unum sem nú eru í gangi í sam­fé­lag­inu. „Það er mik­il­vægt að við reynum að hafa sem mestan stöð­ug­leika í okkar við­brögðum og okkar lífi. Í því felst að mínu mati að vera ekki sífellt að herða og slaka á aðgerðum,“ sagði hann í því sam­hengi.

Þórólfur hóf upp­lýs­inga­fund almanna­varna í dag á að fara yfir tölu­legar upp­lýs­ingar eins og venja er. Fimm ein­stak­lingar af þeim sex sem greindust í gær eru stað­settir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en einn ein­stak­lingur í Vest­manna­eyjum. Það smit teng­ist hóp­sýk­ingu sem þar kom upp fyrir um viku síðan. Nú er einn ein­stak­lingur inniliggj­andi á Land­spít­ala og er hann kom­inn af gjör­gæslu.

„Þetta er meiri heimild en við öll hin höfum“

Víðir Reyn­is­son árétt­aði það á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna fyrr í dag að áhorf­endur verða ekki heim­il­aðir á íþrótta­leikjum. „Það kemur skýrt fram í minn­is­blaði sótt­varn­ar­læknis en það var mistúlkun síðan frá okkur á regl­unum sem settar voru en það er skýr vilji sótt­varna­læknis og hann hefur fært rök fyrir því að það verða ekki áhorf­endur á íþrótta­leikjum til að byrja með,“ sagði Víðir á fund­inum.

„Það hefur líka verið rætt um kvaðir á leik­menn og hegðun utan vallar og ein­hvers konar tak­mark­anir á slíku og í því sam­bandi viljum við benda á að það er verið að veita íþrótta­mönnum heim­ild sem ekki margir aðrir í sam­fé­lag­inu hafa til að stunda sína íþrótt. Þetta er meiri heim­ild en við öll hin höfum og því fylgir auð­vitað mikil ábyrgð sem menn þurfa að sýna,“ sagði Víðir að auki.

Þá sagði hann að sótt­varna­yf­ir­völd hefðu verið í miklum sam­skiptum við sviðs­lista­stofn­anir og aðra sem skipu­leggja menn­ing­ar­við­burði. Verið sé að leita leiða til að sam­þætta sótt­varna­sjón­ar­mið við þann mögu­leika að hefja æfingar í leik­húsum og síðar þann mögu­leika að starf­semi þeirra geti haf­ist.

Grímur engin töfralausn

Alma Möller tal­aði um hvaða reglur og til­mæli eru í gildi vegna grímunotk­unar og benti hún sér­stak­lega á leið­bein­ingar um notkun gríma og umfjöllun um mis­mun­andi teg­undir þeirra sem finna má á vef land­læknis, land­la­eknir.is. Hún sagði grímur vissu­lega geta gert gagn, þær grípi dropa sem koma úr önd­ur­vegi og munn­vatni þess sem ber grímuna þannig að drop­arnir dreifast síður til ann­arra, auk þess sem þær minnka líkur á því að sá sem er með grímuna fái veiruna í sig. Þær þurfi samt sem áður ekki alltaf að vera uppi við: „Við viljum leggja áherslu á að það er ekki mælt með almennri notkun grímu á almanna­færi og þegar hægt er að tryggja tveggja metra regl­una að þá þarf ekki að nota grímu,“ sagði Alma.

„Ég vil hvetja almenn­ing til að kynna sér hvetja sér þessar leið­bein­ingar til að vanda sig við notkun og við leggjum áherslu á að grímur eru ekki töfra­lausn og leysa okkur alls ekki undan þessum ein­stak­lings­bundnu smit­vörnum,“ sagði Alma að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár