Katrín spurði Bjarna um afsökunarbeiðni til þingsins

Katrín Jak­obs­dóttir spurði hvort Bjarni Bene­dikts­son skuld­aði ekki Alþingi afsök­un­ar­beiðni vegna seinna skýrslu­skila. Bjarni svar­aði því ekki, en benti á að Katrín hefði sjálf verið hluti af rík­is­stjórn sem ekki hefði svarað öllum fyr­ir­spurnum.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, spurði Bjarna Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra að því í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag hvort hann skuld­aði ekki Alþingi afsök­un­ar­beiðni vegna þess að tvær skýrslur sem voru á hans borði voru ekki birtar opin­ber­lega fyrir kosn­ingar.

Skýrsl­urnar tvær eru ann­ars vegar skýrsla um aflandseignir Íslend­inga og hins vegar um fram­kvæmd Leið­rétt­ing­ar­innar svoköll­uðu. Katrín sagði bæði málin stórpóli­tísk, ann­ars vegar væri þetta málið sem varð til þess að kosn­ingum var flýtt og hins vegar stærsta póli­tíska mál síð­asta kjör­tíma­bils.

Katrín spurði einnig hvort Bjarni væri sáttur væri sáttur við þessa frammi­stöðu og hvort hann teldi að ekki hefði átt að gera betur.

Bjarni svar­aði því ekki hvort hann skuld­aði þing­inu afsök­un­ar­beiðni, en hann sagð­ist ekki vera í neinum ágrein­ingi við Katrínu um það að lang­best sé að koma svörum og skýrslum hratt og örugg­lega inn í þingið. Hann við­ur­kenndi að leið­rétt­ing­ar­skýrslan hafi tekið of langan tíma og sagð­ist margoft hafa svarað því að ástæða þess að aflands­skýrslan var ekki gerð opin­ber fyrr hafi verið kosn­ing­arnar. Hann hafi líka við­ur­kennt að að hann hefði betur látið málið til þings­ins fyrr.

„Því miður er það þannig og það er ekk­ert nýtt að það hefur ekki tek­ist að svara öllum fyr­ir­spurnum,“ sagði Bjarni meðal ann­ars og tók dæmi um tím­ann fyrir kosn­ingar árið 2013, þegar Katrín var hluti af rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og VG. 19 skrif­legar fyr­ir­spurnir hafi legið ósvar­aðar fyrir kosn­ing­arnar í apríl 2013, það þætti Katrín sjálf að vita „vegna þess að hún svar­aði sjálf ekki öllum fyr­ir­spurnum.“

„Ég hefði nú haldið að hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra gæti gert aðeins betur í sínu svari hér,“ sagði Katrín þegar hún kom upp í ræðu­stól í annað sinn. Það hafi verið 22 aðrar fyr­ir­spurnir ósvar­aðar þegar gengið var til kosn­inga í haust, svo vissu­lega sé málum oft svona háttað. Þarna sé hins vegar að ræða um tvær skýrslur. Hún sagði að hvorki hún né Bjarni gætu nokkuð sagt til um hvort að skýrsl­urnar tvær hefðu haft nein áhrif á úrslit kosn­ing­anna. Það sé hins vegar grund­vall­ar­at­riði í svona stórpóli­tískum málum að það séu gerðar kröfur um að svör séu birt strax.

Bjarni sagði í öðru svari sínu að auð­vitað væri lang­best að koma svörum hratt og örugg­lega inn í þingið. „Til dæmis fyr­ir­spurn frá Pétri H. Blöndal frá þar­síð­asta kjör­tíma­bili, sem hann þurfti í þrí­gang að leggja fyrir rík­is­stjórn­ina en fékk aldrei svar.“

Hann væri meira en til í að taka undir með Katrínu að stjórn­sýslan sé sterk og vel mönnuð þannig að fyr­ir­spurnum sé svarað sem best og hrað­ast.

Hann sagði leið­rétt­ing­ar­skýrsl­una hafa tekið of langan tíma. „En gleymum því ekki að henni var skilað hingað til þings­ins, ólíkt því sem sem var með skýrslu­beiðni þá sem ég nefndi frá Pétri H. Blöndal, sem aldrei var skilað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár