Milljónatjón matvælainnflytjenda vegna verkfalla

Matæla­inn­flytj­endur hafa orðið fyrir millj­óna tjóni vegna þess að vörur þeirra fengu aldrei afgreiðslu úr tolli á meðan verk­falli BHM stóð síð­ustu mán­uði. Starfs­menn Mat­væla­stofn­unnar hafa eft­ir­lit með inn­fluttum mat­vælum á borð við osta og aðrar mjólk­ur­vörur en voru í verk­falli svo vör­urnar runnu út á hafn­ar­bakk­anum.

Inn­flutn­ings­fyr­ir­tækið Innnes ehf. fór fram á það við atvinnu­vega­ráðu­neytið að toll­kvóti verði fram­lengdur um jafn langan tíma og verk­fallið stóð. Ráðu­neytið hefur synjað þeirri beiðni.

Í sam­tali við Kjarnann segir Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, að Innnes ehf. sé eina fyr­ir­tækið sem hann hafi vit­neskju um að hafi reynt á að fá fram­leng­ingu toll­kvót­ans. Tjón fyr­ir­tæk­is­ins hlaupi á mörgum millj­ónum króna vegna þessa og að nú geti sum fyr­ir­tæki ekki full­nýtt inn­flutn­ings­kvóta sinn á búvörum. Ekki sé úti­lokað að fleiri inn­flutn­ings­fyr­ir­tæki hafi lent í því sama og Innnes.

„Þessi við­brögð atvinnu­vega­ráð­ur­neyt­is­ins eru því miður enn eitt dæmið um að ráðu­neytið sýnir hámarks­stífni og forð­ast eins og heitan eld­inn að hliðra til fyrir þeirri litlu erlendu sam­keppni sem inn­lendir búvöru­fram­leið­endur fá,“ segir Ólafur í frétt á vef félags atvinnu­rek­enda og bætir við að löngu sé orðið tíma­bært að end­ur­skoða inn­flutn­ings­heim­ildir á búvörum.

Toll­kvót­inn sem Innnes ehf. vildi fá fram­lengd­ann er gef­inn út sam­kvæmt samn­ingum Íslands við Alþjóða­við­skipta­stofn­un­ina. Á vef félags atvinnu­rek­enda segir að venja sé að ráðu­neytið fram­lengi heim­ildir til inn­flutn­ings á lægri tollum út júlí svo hægt sé að koma send­ingum til lands­ins. Óskað hafi verið eftir átta vikna fram­leng­ingu á inn­flutn­ings­heim­ildum á ostum, en því synjað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár