Þrettán sagt upp hjá Símanum

Orri Hauksson, forstjóri Símans.
Orri Hauksson, for­stjóri Símans. Mynd: Nasdaq Iceland

Þrettán manns var sagt upp störfum í Símanum í morgun, en upp­sagn­irnar eru liður í hag­ræð­ingu og áherslu­breyt­ingum hjá fyr­ir­tæk­inu. Þetta hefur Kjarninn fengið stað­fest. Upp­sagn­irnar snúa að rekstri mark­aðs- og vef­deilda Símans, en verk­efnum þess­ara deilda verður fækkað og önnur fær­ast úr húsi, sam­kvæmt Gunn­hildi Örnu Gunn­ars­dóttur, upp­lýs­inga­full­trúa Símans.

„Áherslu­breyt­ingin er gerð til að verja sam­keppn­is­hæfni Símans á mark­aði. Mik­il­vægt skref í þeirri veg­ferð er að rekstr­ar­kostn­aður lækki og boð­leiðir inn­an­húss stytt­ist,“ segir Gunn­hildur í pósti til Kjarnans.

„Síminn stofn­aði vef­þró­un­arteymi sitt árið 2013. Verkefni þess hafa verið ærin. Meðal ann­ars hefur verið skipt um heima­síðu, þjón­ustu­vefir ein­stak­linga og fyr­ir­tækja orðið að mik­il­vægum þætti í þjón­ustu okkar og app að þjón­ust­unni smíðað og gefið út. Einnig var þróað sjón­varps­app fyrir far­tölvur. Mark­aðs­deild Símans hefur vaxið og breyst með sam­ein­ingu Skjásins og Símans. Fjöldi verk­efna hefur verið mis­mik­ill eftir árs­tíðum og þau breyst með sam­ein­ing­unni. Ákvörðun um fram­vindu verk­efna innan deild­anna verður áfram innan Símans en fram­kvæmdin í höndum sam­starfs­að­ila hverju sinni.“

Áherslu­breyt­ingin er sögð gerð til að verja sam­keppn­is­hæfni fyr­ir­tæk­is­ins á mark­aði. „Mik­il­vægt skref í þeirri veg­ferð er að rekstr­ar­kostn­aður lækki og boð­leiðir inn­an­húss stytt­ist.“

Önnur uppsögn Símans á árinu

Ein til­kynn­ing um hóp­upp­sögn barst Vinnu­mála­stofnun í jan­úar og var hún frá Símanum, þegar 14 manns misstu vinn­una. Taka þær gildi á tíma­bil­inu mars til maí.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Vinnu­mála­stofnun er enn verið að vinna úr til­kynn­ingum sem bár­ust vegna hóp­upp­sagna í febr­úar og verða þær birtar á mið­viku­dag.

Þegar atvinnu­rek­endur hyggj­ast segja upp fjölda manns er ferlið þannig að fyrst er haft sam­ráð við trún­að­ar­menn og stétt­ar­fé­lag. Upplýst er um hvað hægt er að gera til að lág­marka skað­ann og í kjöl­farið er fyllt út eyðu­blað um yfir­vof­andi hóp­upp­sögn sem sent er til Vinnu­mála­stofn­unar fyrir þau mán­að­ar­mót sem upp­sagn­irnar eiga að taka gildi.

Ekki er búið að birta sam­an­tekt Vinnu­mála­stofn­unar um hóp­upp­sagnir á síð­asta ári. Árið 2014 var 279 manns sagt upp í fjölda­upp­sögnum, þar af 62 í upp­lýs­inga- og útgáfu­geir­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár