Vill fá undanþágu fyrir íslensk flugfélög

Þing­maður VG segir að nú sé lag að beita þrýst­ingi á banda­rísk stjórn­völd til að fá und­an­þágu fyrir íslensk flug­fé­lög og hugsa hlut­ina hratt og vel.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður VG.
Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður VG. Mynd: Bára Huld Beck

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, segir í stöðu­upp­færslu á Facebook að nú sé „lag að beita öllum okkar þrýst­ingi á stjórn­völd í Banda­ríkj­unum til að fá ein­hverja und­an­þágu fyrir íslensk flug­fé­lög og hugsa hlut­ina hratt og vel.“

Ástæðan fyrir skrifum þing­manns­ins er tíma­bundið ferða­­bann banda­rískra stjórn­­­valda til og frá Evr­­ópu, sem gildir í 30 daga frá 14. mar­s. Forseti Banda­ríkj­anna til­kynnti þetta í nótt. Ferða­bannið mun hafa veru­­leg áhrif á flug­­á­ætl­­un Icelanda­ir á tíma­bil­inu og mun félagið draga enn frekar úr fram­­boði á flugi í mars og apr­íl, umfram það sem áður hefur verið til­­kynnt.

Þá féllu hluta­bréf í Icelandair um 22 pró­sent í fyrstu við­skiptum í Kaup­höll Íslands í morg­un. Alls lækk­aði úrvals­vísi­talan um rúm­lega níu pró­sent í fyrstu við­skipt­um.

Rósa Björk segir þetta vera maka­lausa ákvörðun hjá for­seta Banda­ríkj­anna sem hafi brugð­ist afar illa við COVID-19 í Banda­ríkj­unum hingað til. Hann slái nú til­baka „eins og stórum karli sæmir og kennir Evrópu um í leið­inni af því hann er sannur pópu­listi.“

Hún óskar enn fremur stjórn­endum Icelandair og for­svars­mönnum ferða­þjón­ust­unnar á Íslandi góðs gengis „við þessi ótrú­legu tíð­indi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár