Árni Páll og Eygló birta upplýsingar úr skattframtölum

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, hafa bæði birt upp­lýs­ingar úr skatt­fram­tölum sínum á net­inu.

Eygló reið á vaðið og birtir í hags­muna­skrán­ingu sinni tekjur, skuldir og eignir hennar og eig­in­manns hennar. Árni Páll segir á vef­síðu sinni í dag að hann fagni frum­kvæði hennar. „Ég vil fara að frum­kvæði hennar og legg því spilin alger­lega á borðið hvað varðar tekjur mínar og Sigrúnar, eignir okkar og skuldir. Vonandi verður það öðrum hvatn­ing til að svara rétt­mætum spurn­ingum sem að þeim snúa.“

Í upp­lýs­ingum Eyglóar kemur fram að þau hjónin hafi átt eignir upp á rúm­lega tvær millj­ónir króna í fyrra. Þau skuld­uðu tæp­lega níu millj­ónir króna til LÍN og banka. Tekjur þeirra námu rúm­lega 23 millj­ónum króna.

Árni Páll og eig­in­kona hans eiga eignir upp á 70 millj­ónir króna, og skuld­uðu rúm­lega 39 millj­ónir króna sam­kvæmt nýjasta skatt­fram­tal­inu. Þau höfðu tekjur upp á 18,5 millj­ónir króna.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, sagði í við­tali við Morg­un­blaðið um helg­ina að hann og eig­in­kona hans væru reiðu­búin að birta frek­ari gögn um skatta­mál sína ef aðrir for­ystu­menn geri slíkt hið sama. 

Eygló og Árni Páll birta hvor­ugt skatt­fram­tölin sjálf, heldur bara þessar upp­lýs­ingar. David Cameron, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hefur birt skatt­fram­töl sín nokkur ár aftur í tím­ann vegna tengsla sinna við Panama­skjölin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár