Talsvert um að fólk afþakki bólusetningu með bóluefni AstraZeneca

Sótt­varna­læknir telur enga ástæðu fyrir fólk til að afþakka eitt bólu­efni umfram önnur líkt og tals­verður hópur fólks hefur gert und­an­farið.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Talsvert er um það að fólk afþakki bólu­setn­ingu með bólu­efni frá fyr­ir­tæk­inu AstraZeneca á þeim grunni að það sé ekki eins virkt og önnur bólu­efni á mark­aði. Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að „til að gæta allrar sann­girni“ þá virð­ist virkni bólu­efnis AstraZeneca minni en af öðrum en að mun­ur­inn væri mjög lít­ill „og ekki þannig að það skipti neinu máli varð­andi vernd­un­ina sem við erum að sækj­ast eftir.“

Hvað auka­verk­anir af bólu­efn­inu varðar virð­ast þær meiri eftir fyrri skammt á AstraZeneca en af hinum bólu­efn­unum tveimur sem hafa fengið mark­aðs­leyfi en að því sé öfugt farið hvað seinni skammt­inn varðar. „Ég tel að það sé ekki stór munum á bólu­efn­unum og tel enga ástæðu fyrir fólk að neita einu bólu­efni umfram önnur.“

[adspot]

Þórólfur segir að ekki sé mögu­legt að láta fólk ákveða hvaða bólu­efni það fær. „Í fram­kvæmd­inni er það nán­ast von­laust.“ Spurður hvort að þeir sem neiti að fá bólu­efni AstraZeneca verði bólu­settir með öðru bólu­efni svarar hann að ekki sé búið að taka ákvörðun um það. „Ég býst ekki við að þeir verði ekki bólu­settir en þeir munu ekki fá þann for­gang sem þeir höfðu.“

Enginn greind­ist með veiruna inn­an­lands í gær og á síð­ast­lið­inni viku hafa tveir greinst inn­an­lands og báðir voru þeir í sótt­kví. Síðasta smit utan sótt­kvíar greind­ist 1. febr­úar.

Framvísaði neikvæðu prófi en reyndist smitaður

Síð­ast­liðna viku hafa sjö greinst á landa­mær­unum, þar af þrír með virkt smit. Frá 19. febr­úar, þegar ferða­mönnum var gert skylt að fram­vísa nei­kvæðu COVID-prófi á landa­mær­unum, hafa tveir greinst með virkt smit. Annar þeirra fram­vís­aði 48 stunda gömlu nei­kvæði vott­orði. Hann greind­ist hins vegar jákvæður í fyrri skimun. Hinn ein­stak­ling­ur­inn sem greind­ist var ekki með vott­orð. Þessu segir Þórólfur að fylgj­ast þurfi sér­stak­lega vel með á næst­unni til að afla vit­neskju um hvernig haga beri aðgerðum á landa­mær­unum frá 1. maí eftir að núver­andi reglu­gerð fellur úr gildi.

Lang­flestir far­þegar sem eru að koma til lands­ins, fram­vísa vott­orðum um nei­kvæð COVID-próf líkt og reglur gera ráð fyrir eða um 80 pró­sent allra far­þega. Frá 19. febr­úar hafa um 3 pró­sent fram­vísað vott­orði um fyrri sýk­ingu af COVID-19 og sam­bæri­legur fjöldi hefur fram­vísað bólu­setn­ing­ar­vott­orði. Þessir tveir hópar eru und­an­þegnir því að fram­vísa nei­kvæðu COVID-prófi.

Farþegum fer fjölgandi

Um 200 far­þegar eru þessa dag­ana að koma til lands­ins á hverjum sól­ar­hring sem er nokkuð meira en síð­ustu vikur. Að þurfa að fram­vísa nei­kvæðu PCR-prófi virð­ist því ekki letja fólk til ferða­laga til Íslands.

„Við höfum verið að skipta þessum far­aldri og bar­átt­unni upp í kafla og ég held að við séum að fara inn í nýjan kafla í bar­átt­unni við COVID-19,“ sagði Þórólfur. Ný reglu­gerð um sam­komu­tak­mark­anir inn­an­lands tóku gildi í gær en sótt­varna­læknir bendir á að um 1-2 vikur þurfi að líða áður en hægt sé að full­yrða hvaða áhrif það hafi á far­ald­ur­inn.

„Ég held að staða okkar sé mjög góð núna,“ sagði Þórólfur. „Við megum gleðj­ast yfir því að við séum komin á þennan stað. Við vitum hvað við þurfum að gera til að við­halda árangrinum sem við höfum náð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár