Eyþór Arnalds skráir eign sína í Morgunblaðinu í hagsmunaskrá

Oddviti Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur skráð félag með fjölda dótt­ur­fé­laga og mikil umsvif í hags­muna­skrá borg­ar­full­trúa. Hann skráði einnig eign sína á hús­næði gjald­þrota málm­bræðslu. „Ég er ekki í valda­stöðu,“ segir Eyþór, sem lof­aði í kosn­inga­bar­átt­unni að skilja sig frá við­skipta­líf­inu.

Eyþór Arnalds
Eyþór Arnalds Félag Eyþórs, Ramses ehf., er umsvifa­mikið í íslensku við­skipta­lífi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, hefur skráð félag sitt, Ramses ehf., undir fjár­hags­lega hags­muni borg­ar­full­trúa. Félagið er stærsti hlut­hafi Morg­un­blaðs­ins en á einnig net dótt­ur­fé­laga sem halda utan um við­skiptaum­svif Eyþórs, sem hann lof­aði að draga sig úr ef hann yrði kos­inn í borg­ar­stjórn.

Eyþór seg­ist hafa minnkað aðkomu sína jafnt og þétt, en bendir á að hann sé ekki í meiri­hluta í borg­ar­stjórn. „Ég er ekki í valda­stöðu,“ segir Eyþór. „Ég er sveit­ar­stjórn­ar­maður í minni­hluta, það eru ekki mikil völd sem maður hefur í slíku, nema benda á það sem miður fer.“

Eyþór er fram­kvæmda­stjóri Ramses og skráði félagið undir liðnum „starf­semi sem er unnin sam­hliða starfi borg­ar­full­trúa og er tekju­mynd­andi fyrir hann eða félag sem hann á sjálfur eða er með­eig­andi í“. Ramses heldur utan um við­skipti Eyþórs, meðal ann­ars 23 pró­senta hlut hans í Morg­un­blað­inu. Eyþór fékk 50 millj­óna króna arð greiddan frá félag­inu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár