Nýr samningur við kennara setur fjármálaáætlanir sveitarfélaga í uppnám

Nýund­ir­rit­aður kjara­samn­ingur við kenn­ara mun verða stór biti að kyngja fyrir sveit­ar­fé­lög verði hann sam­þykktur, að sögn for­manns Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga.

Verði nýr kjara­samn­ingur kenn­ara sam­þykktur af kenn­urum og sveit­ar­stjórnum mun það setja fjár­hags­á­ætl­anir Vest­manna­eyja­bæjar í upp­nám að mati Elliða Vign­is­sonar, bæj­ar­stjóra í Vest­manna­eyjum. Halldór Hall­dórs­son, for­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga tekur í sama streng og segir nýjan samn­ing verða stóran bita fyrir mörg sveit­ar­fé­lög.

Nú er verið að kynna kjara­samn­ing­inn sem for­svars­menn sveit­ar­fé­laga og Félags grunn­skóla­kenn­ara und­ir­rit­uðu í húsa­kynnum Rík­is­sátta­semj­ara á þriðju­dag fyrir kenn­urum og sveit­ar­stjórn­ar­mönnum. Samkvæmt fréttum var samið til eins árs og fá kenn­arar á end­anum tæp­lega 11 pró­sent launa­hækkun í tveimur skrefum auk ein­greiðslu að upp­hæð 204 þús­und krónur um ára­mótin.

Sumir kenn­arar hafa þegar lýst óánægju sinni með samn­ing­inn og sagt hann keim­líkur þeim samn­ingum sem grunn­skóla­kenn­arar hafa þegar fellt. Ein­hverjir kenn­ara hafa látið verða af upp­sögnum sem þeir höfðu hótað.

Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Vest­manna­eyjabæ, segir í sam­tali við frétta­vef­inn Eyjar.net að kjara­samn­ing­arnir feli í sér mik­inn kostn­að­ar­auka fyrir bæinn. „Ef að fram fer sem horfir og þessir kjara­samn­ingar sem voru und­ir­rit­aðir í gær verða sam­þykktir þá er um hátt í 50 millj­óna kostn­að­ar­auka að ræða fyrir okkur. Það er alveg ljóst að við bætum því ekki við, nema að bregð­ast við með ein­hverjum hætti,“ er haft eftir Elliða.

Hann segir enn fremur að í fjár­hags­á­ætl­unum næsta árs, sem enn á eftir að sam­þykkja, sé gert ráð fyrir 41 milljón krónum í rekstr­ar­af­gang. „Þessir samn­ingar þurrka þann afgang upp, og gott betur.“ Spurður um hvaða aðgerðir bær­inn gæti farið í til þess að mæta auknum segir Elliði: „Í raun er bara allt undir.“

Halldór Hall­dórs­son, for­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga og odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, segir stöð­una svip­aða í fleiri sveit­ar­fé­lögum. „Við vissum að við værum að teygja okkur alveg til hins ýtrasta […] mér sýn­ist þetta vera staðan víða,“ er haft eftir Halldóri í Morg­un­blað­inu í dag. „Það breytir því ekki að við verðum að borga kenn­urum góð laun, en þetta tekur auð­vitað á.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár