Mynd: EPA

Íþróttirnar eygja endurkomu

Þeir sem skipu­leggja íþrótta­mót eru ekki í öfunds­verðu hlut­verki þessa dag­ana. Misjafnt er á milli landa hvenær leyfi­legt verður að setja íþrótta­starf aftur af stað, sam­hliða til­slök­unum á sam­komu­bönnum. Fjár­hags­legir hags­munir eru gríð­ar­lega miklir.

Íþrótta­starf hefur legið nær algjör­lega niðri um heim allan frá því að heims­far­aldur kór­ónu­veirunnar fór að breið­ast hratt út í byrjun mars. Þó með örfáum und­an­tekn­ingnum, því enn er verið að stunda hóp­í­þróttir í löndum á borð við Hvíta-Rússland og Túrk­menistan, þar sem leið­togar hafa farið á skjön við ráð­legg­ingar Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar um fjölda­sam­komur.

Willum Þór Willumsson leik­maður BATE frá Borisov í Hvíta-Rúss­landi er þannig senni­lega sá íslenski knatt­spyrnu­maður sem senni­lega er í bestu leikæf­ing­unni um þessar mundir, en 761 áhorf­andi mætti á Borisov-leik­vang­inn á mið­viku­dag þar sem Willum kom inn á sem vara­maður í 2-0 bik­ar­sigri gegn liði Slavia frá Mozyr.

Annars er lítið að ger­ast á íþrótta­svið­inu og helstu stofn­anir íþrótta­heims­ins velta nú vöngum um það, rétt eins og flestir aðrir, hvenær lífið nálgist það að verða eðli­legt að nýju. En eins og með ferða­mennsk­una er alls óvíst hvenær atvinnu­í­þrótta­heim­ur­inn nær að fóta sig að nýju, enda eru íþróttir á hæsta stigi jú alþjóð­legar og krefj­ast þess að lið og ein­stak­lingar fari þvert á landa­mæri til þess að etja kappi.

Í eðli­legu árferði safn­ast líka tugir þús­unda saman á leik­vöngum til þess að fylgj­ast með leikjum og keppnum. Hvenær það verður aftur leyfi­legt og hvenær fólk verður vilj­ugt til að fara í slíka mann­þröng til þess að að njóta afþrey­ingar eru einnig stórar spurn­ingar, sem svör eru ekki til við eins og staðan er núna.

Ólymp­íu­leik­unum í Tókíó hefur verið frestað til næsta sum­ars og sömu­leiðis Evr­ópu­keppn­inni í fót­bolta og svo ótal­mörgu öðru. For­svars­menn Alþjóða­ólymp­íu­nefnd­ar­innar hafa nýlega gefið það út að leik­unum verði senni­lega aflýst, frekar en frestað aftur, verði raunin sú að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn muni enn hafa áhrif á næsta ári.

Fróðleg sam­an­tekt um stöðu mála í helstu íþrótta­deildum Banda­ríkj­anna birt­ist í Washington Post á föstu­dag. Þar vestra klóra menn sér í hausnum og reyna að átta sig á því hvernig hægt verði að taka upp þráð­inn á ný, núna þegar rétt um tveir mán­uðir eru síðan öllu var slegið á frest.

„Þetta er búið að vera erfitt. Ég væri að ljúga að þér ef ég segði þér að ég við værum með góða hug­mynd. Þær eru bara mis­jafn­lega slæmar,“ sagði einn hátt­settur stjórn­andi banda­rískrar íþrótta­deildar í sam­tali við blaðið.

Nú eru ríki Evrópu hægt og rólega að slaka á þeim sam­fé­lags­legu tak­mörk­unum sem hafa verið í gildi, en víða á enn eftir að koma í ljós hvenær hægt verður að halda keppni áfram í atvinnu­í­þróttum full­orð­inna í álf­unni.

Evrópufótboltinn ræður ráðum sínum

Í Frakk­landi, Hollandi og Belgíu hefur þegar verið gef­ist upp á því reyna að ljúka yfir­stand­andi keppn­is­tíma­bilum í fót­bolta, rétt eins og var ákveðið hér heima með alla keppni í þeim hóp­í­þróttum sem stund­aðar eru yfir vetr­ar­tím­ann, körfu­bolta, hand­bolta, blak og fleiri.

Í Frakk­landi hafa allir íþrótta­kapp­leikir verið bann­aðir þar til í sept­em­ber. Þar verða liðs­menn PSG krýndir lands­meist­arar í knatt­spyrnu karla, þrátt fyrir að önnur lið hefðu töl­fræði­lega getað náð í skottið á þeim.

Á öðrum stöðum er stefnt að því að fót­bolt­inn rúlli aftur af stað í sumar, þó að áhorf­end­urnir verði engir. Aðild­ar­þjóðir evr­ópska knatt­spyrnu­sam­bands­ins, UEFA, hafa fengið frest til 25. maí til þess að kunn­gjöra hvort þær muni halda leik áfram eða ekki. UEFA seg­ist enn stefna að því að reyna að ljúka Evr­ópu­keppnum félags­liða.

Í Þýska­landi er gælt við að byrja aftur að spila fót­bolta 16. maí, án áhorf­enda, en þar hefur liðum verið heim­ilt að æfa saman frá því snemma í apríl. Engin ákvörðun liggur enn fyrir, en mjög svo skiptar skoð­anir eru uppi uppi um það hvort rétt­læt­an­legt sé að taka tug­þús­undir COVID-19 sýna úr knatt­spyrnu­mönnum til þess eins að fót­bolt­inn geti haf­ist á ný. Búist er við því að rík­is­stjórn lands­ins taki málið fyrir á mið­viku­dag, 6. maí.

Í Sviss hefur feng­ist form­legt leyfi frá yfir­völdum til þess að hefja leik að nýju 8. júní og í Svíþjóð er stefnt að því byrja keppni í efstu deild 14. júní.

Á Ítalíu stytt­ist í að íþrótta­fólk megi fara að æfa aftur og ein­tak­lingsæf­ingar hjá leik­mönnum ein­hverra liða í A-deild­inni í fót­bolta verða heim­ilar á morgun, mánu­dag, og ráð­gert er að lið megi koma saman til æfinga á ný 18. maí. Vonir standa til þess að deild­ar­keppnin geti haf­ist á ný í júní, en þó hefur ekk­ert verið sam­þykkt í þeim efnum.

Giuseppe Conte for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu ræddi sér­stak­lega um stöðu fót­bolt­ans í sjón­varps­ávarpi í síð­ustu viku og sagði að fyllsta öryggi yrði að tryggt svo hægt yrði að hefja leik að nýju. „Ég hef ástríðu fyrir fót­bolta,“ sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann og bætti við að honum hefði í upp­hafi þótt furðu­legt að sjá veiru­far­ald­ur­inn hafa lam­andi áhrif á íþrótt­ina, en að jafn­vel eld­heit­ustu stuðn­ings­menn neydd­ust nú til að við­ur­kenna að ekk­ert annað var í spil­unum.

Spænska rík­is­stjórnin hefur fall­ist á að liðka fyrir því að íþrótt­irnar geti farið aftur af stað og hafa atvinnu­í­þrótta­menn leyfi til þess að stunda æfingar einir með þjálf­ara frá og með morg­un­deg­inum, en þó gæti orðið mis­mun­andi á milli hér­aða hvernig hömlum verður lyft. Samkvæmt áætl­unum spænskra stjórn­valda er mögu­legt að keppni í La Liga muni hefj­ast á svoköll­uðu „fjórða stigi“ til­slak­ana á sótt­varna­ráð­stöf­unum, sem gæti orðið í júní ef allt gengur eftir, en þó gætu aðstæður orðið mis­mun­andi eftir hér­uðum lands­ins, sem áður segir.

„Project Restart“ í Englandi

Flest augu fót­bolta­á­huga­manna hér­lendis bein­ast að enska bolt­anum. Öll félögin í úrvals­deild­inni stað­ráðin í reyna að halda keppni áfram og klára mótið í sumar, fáist leyfi til þess frá yfir­völdum, en hvernig mögu­legt verður að gera það er enn gjör­sam­lega á huldu. Vinnan er í gangi, undir heit­inu „Project Restart“.

Níutíu og tveir leikir eru enn eftir af deild­inni sem félögin segj­ast vilja spila á sex vikum í sumar og mark­aðs­setja her­leg­heitin öll sem fót­bolta­veislu. Rætt hefur verið um að 40 þús­und COVID-19 sýni þyrfti í heild­ina að taka úr leik­mönnum, öðru starfs­liði félag­anna og fjöl­miðla­mönnum til þess að þetta gæti allt gengið upp.

Margt er til skoð­unar, en félög­unum var tjáð af for­svars­mönnum enska knatt­spyrnu­sam­bands­ins á fjar­fundi á föstu­dag að not­ast þyrfti við hlut­lausa velli. Með því á að sporna við því að mik­ill fjöldi stuðn­ings­manna heimaliðs­ins safn­ist saman fyrir utan leik­vang­ana er leikir fara fram. Þennan ráða­hag vilja ekki öll liðin sam­þykkja, en fram­kvæmda­stjóri Brighton steig fram í gær og sagði að þetta gæti hans lið ekki sætt sig við. Liðið á fimm heima­leiki í síð­ustu níu umferð­unum, þar af fjóra gegn nokkrum að sterk­ustu liðum deild­ar­innar

Síðan hafa leik­menn líka lýst yfir efa­semdum um að það sé eitt­hvað vit í því að halda áfram keppni. Sergio Aguero, fram­herji Manchester City, sagði frá því, í sam­tali við sjón­varps­stöð í heima­landi sínu fyrir helgi, að „meiri­hluti leik­manna væri hræddur“ við að snúa aftur til vinnu og Glenn Murray leik­maður Brighton hefur talað á svip­uðum nótum, auk þess sem hann spyr sig að því hvort rétt­læt­an­legt sé að biðja breska heil­brigð­is­kerfið um að skaffa sjúkra­bíl á hvern ein­asta leik, á meðan að álagið á spít­ölum lands­ins er mikið.

Búast má við því að línur skýrist tölu­vert í Englandi á fimmtu­dag­inn, 7. maí, en þá ætlar breska rík­is­stjórnin að kynna hvaða skref verða tekin til þess að lyfta sam­fé­lags­legum tak­mörk­unum sem settar voru í sótt­varna­skyni í mars. Rík­is­stjórnin er fylgj­andi því að fót­bolt­inn kom­ist í gang sem fyrst, ekki síst til þess að lyfta lund almenn­ings á þessum erf­iðu tímum.

Ljóst er að í Bret­landi sem og ann­ars staðar í heimi atvinnu­í­þrott­anna er mikið í húfi fjár­hags­lega, enda tekju­fallið nær algjört þegar ekk­ert er hægt að spila og ljóst að fjár­hags­staða margra liða er í upp­námi. Fót­bolta­leysið ytra hefur þannig afleidd áhrif sem teygja sig víða, meðal ann­ars hingað til lands. Í fjár­festa­kynn­ingu Símans vegna árs­fjórð­ungs­upp­gjörs í lið­inni viku sagði að engar áskrift­ar­tekjur myndu fást af Símanum Sport, sem sýnir enska bolt­ann, í apríl og maí, en áskrift­ar­tekj­urnar nema um 30 millj­ónum króna á mán­uði.

Síminn hefur gefið það út að verði tíma­bilið ekki klárað verði farið fram á end­ur­greiðslu á hluta þess fjár sem fyr­ir­tækið hefur greitt fyrir sýn­ing­ar­rétt­inn. Þrátt fyrir að Ísland sé örmark­aður er þar um tölu­verða fjár­muni að ræða, en í heild­ina borg­uðu sjón­varps­stöðvar um heim allan 9,2 millj­arða punda, and­virði tæp­lega 1.700 millj­arða íslenskra króna, fyrir rétt­inn til þess að sýna enska bolt­ann á yfir­stand­andi tíma­bili og næstu tveimur.

Ísland

Hér á landi er áætlað að koma keppn­is­í­þróttum af stað í sumar. Á morgun geta liðsæf­ingar full­orð­inna haf­ist á ný í sjö manna hópum og í fót­bolt­anum verður það þannig að 28 leik­menn fá leyfi til þess að æfa á einum stórum fót­bolta­velli, í fjórum sjö manna hópum.

Víðir Reynisson segir að ljóst sé að smit í fótboltaliði í sumar gæti haft veruleg áhrif á mótahald.
Víðir Reyn­is­son segir að ljóst sé að smit í fót­boltaliði í sumar gæti haft veru­leg áhrif á móta­hald.

Til þess að forð­ast smit er mik­il­vægt að það sömu sjö ein­stak­ling­arnir verði alltaf saman í hóp og tveggja reglan er enn í fullu gildi, sam­kvæmt því sem segir á vef Knatt­spyrnu­sam­bands­ins.

Búist er við því að æfingar geti orðið með eðli­legum hætti í lok þessa mán­aðar eða byrjun þess næsta og svo er stefnt að því að hefja leik á Íslands­mót­inu 13. júní. Þá verður vikið frá tveggja metra regl­unni, sem almennt þarf að við­hafa í sam­skiptum fólks, til þess að sportið geti farið fram. Menn sem hafa ekki mátt faðma mæður sínar mán­uðum saman munu þá grípa um hvorn annan í bar­áttu í víta­teignum.

Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í gær að ef upp kæmi smit í kjöl­far fót­bolta­leiks í sumar gætu auð­veld­lega sex­tíu til sjö manns þurft að fara í sótt­kví.

„Það er eitt­hvað sem ég held að félögin geri sér grein fyrir. Þetta er eitt­hvað sem myndi setja skipu­lag móta­halds í upp­nám,“ sagði Víðir. Í öðrum löndum eru kollegar Víðis eflaust að segja það sama.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið undanfarið ár