Samherji: „Við erum bara rétt að byrja“

Starf­andi for­stjóri Samherja segir við starfs­fólk að stjórn­endur muni „leið­rétta allar rang­færslur um félagið“. Von er á nið­ur­stöðu á rann­sókn sem Samherji hefur ráðið norska lög­manns­stofu til að gera í byrjun kom­andi árs.

Björgólfur Jóhannsson, tímabundinn forstjóri Samherja, og Þorsteinn Már Baldvinsson, sem steig niður úr forstjórastólnum tímabundið í nóvember.
Björgólfur Jóhanns­son, tíma­bund­inn for­stjóri Samherja, og Þor­steinn Már Bald­vins­son, sem steig niður úr for­stjóra­stólnum tíma­bundið í nóv­em­ber. Mynd: Samherji

Björgólfur Jóhanns­son, starf­andi for­stjóri Samherja, segir í bréfi til starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins sem birt er á heima­síðu þess í dag, að hann geti upp­lýst um að rann­sókn norskrar lög­manns­stofu, sem Samherji réð til að rann­saka fyr­ir­tækið, miði ágæt­lega. Vonast sé til að nið­ur­stöður hennar liggi fyrir snemma á kom­andi ári. Markmið Samherja sé að standa af sér storm­inn og kom­ast í gegnum hann.

Í bréf­inu seg­ist hann vita að sumir starfs­menn hafi viljað að Samherji myndi svara ásök­unum á hendur fyr­ir­tæk­inu af meiri krafti. „Ekki velkj­ast í vafa um að við munum leið­rétta allar rang­færslur um félagið. Við erum bara rétt að byrja.“

Björgólfur segir að Sam­herj­a­málið svo­kall­aða, sem snýst um meintar mútu­greiðslur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu fyr­ir­tæk­is­ins, hafi ekki haft telj­andi áhrif á rekstur Sam­herj­a­sam­stæð­unnar. Það sé vöxtur í sölu og veiða og vinnsla gangi vel. „Þá hafa sam­starfs­að­ilar okkar hér heima og erlendis staðið með félag­inu. Það er bar­áttu­hugur í stjórn­endum Samherja á öllum víg­stöðum og við erum sann­færð um að fram­tíð fyr­ir­tæk­is­ins sé björt.“

Efast um mútugreiðslur

Fyrir rúmri viku síðan sagði Björgólfur, sem þá var í við­tali við norska við­skipta­blaðið Dagens Nær­ingsliv, að hann efist um „að nokkrar mútu­greiðslur hafi átt sér stað eða að fyr­ir­tækið sé eða hafi verið flækt í nokkuð ólög­mætt.“

Þar sagði hann enn fremur að hann telji að Jóhannes Stef­áns­son, sem starf­aði hjá Sam­herja í Namibíu fram á mitt ár 2016 og upp­ljóstr­aði um við­skipta­hætti fyr­ir­tæk­is­ins þar, hafi verið einn að verki þegar kom að greiðslum sem stæð­ust ekki skoð­un.

Þegar Björgólfur var spurður um greiðslur til félags skráð í Dubaí í eigu James Hatuikulipi, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manns namibísku rík­is­út­gerð­ar­innar Fischor, sem héldu áfram fram á árið 2019 sagði hann að ekk­ert benti til þess að þær greiðslur væru ólög­leg­ar. Greiðsl­urnar hafi verið fyrir kvóta auk greiðslna fyrir ráð­gjaf­ar­störf. Blaða­maður Dagens Nær­ingsliv benti Björgólfi á að eig­andi reikn­ings­ins væri nú í fang­elsi í Namib­íu, þar sem hann hefur verið ákærður ásamt fimm öðrum fyrir að þiggja á níunda hund­rað millj­ónir króna í mútu­greiðslur frá Sam­herja. „Já, hann er bor­inn þungum sökum en hefur ekki hlotið dóm,“ svar­aði Björgólf­ur.

Hann sagði Sam­herja ætla að draga fram það sem hefði átt sér stað í Namib­íu, með rann­sóknum sem fyr­ir­tækið er að greiða norskri lög­manns­stofu fyrir að fram­kvæma á sér, og leyfa svo þar til bærum yfir­völdum að meta afrakst­ur­inn. Björgólfur reiknar með því að hann muni ljúka hlut­verki sínu sem tíma­bund­inn for­stjóri Sam­herja á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2020. Það þýðir vænt­an­lega að til standi að Þor­steinn Már Bald­vins­son, sem steig tíma­bundið til hliðar sem for­stjóri eftir að við­skipta­hættir Sam­herja í Namibíu voru opin­beraðir í síð­asta mán­uði, eigi að snúa aftur í stól­inn á þeim tíma.

Ætl­aðar mútu­greiðslur 1,4 millj­arðar

Málsvörn Sam­herja í mál­inu hingað til hefur fyrst og fremst byggst á þeirri línu sem Björgólfur fetar í við­tal­inu. Að Jóhannes Stef­áns­son hafi einn fram­kvæmd ólög­mæta við­skipta­gjörn­inga í Namib­íu, að fyr­ir­tækið hafi ekki orðið upp­víst að pen­inga­þvætti og að það hafi ekki stundað skipu­lega skatta­snið­göngu með því að láta afrakstur veiða sinna safn­ast saman í lág­skatta­ríkjum og kom­ast þannig hjá því að greiða skatta í þeim ríkjum þar sem arð­ur­inn varð til.

Jóhannes hefur geng­ist við því að hafa greitt mútur fyrir hönd Sam­herja til að tryggja fyr­ir­tæk­inu aðgengi að kvóta í Namib­­íu. Hann segir hins vegar allar greiðslur hafa farið fram með vit­und og vilja Þor­­steins Más Bald­vins­­son­­ar, fyrr­ver­andi for­­stjóra Sam­herja og eins aðal­­eig­anda fyr­ir­tæk­is­ins, og Aðal­­­steins Helga­­son­­ar, sem var yfir starf­­sem­inni í Namib­­íu.

Í umfjöllun Kveiks, Stund­ar­inn­ar, Wikileaks og Al Jazeera kom fram að mútu­greiðslur til ráða­manna í Namibíu hafi staðið yfir fram á árið 2019, en Jóhannes Stef­áns­son lét af störfum hjá Sam­herja í júlí 2016. Þar sagði að þær hefðu numið 1,4 millj­arði króna hið minnsta.

Þegar er búið að hand­taka og ákæra Bern­hard Esau, fyrr­ver­andi sjá­v­­­­­ar­út­­­­­­­vegs­ráð­herra Namib­­­­íu, Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­­­­mála­ráð­herra Namib­­­­íu, og fjóra aðra menn fyrir að hafa þegið 103,6 millj­­­­ónir namibískra doll­­­­ara, jafn­­­­virði 860 millj­­­­óna íslenskra króna, í greiðslur fyrir að tryggja félögum tengdum Sam­herja eft­ir­­­­sóttan kvóta í land­in­u.

Auk Shang­hala og Esau voru James Hatuikulipi, sem hætti sem stjórn­­­­­­­ar­­­­for­­­­maður namibísku rík­­­­is­út­­­­­­­gerð­­­­ar­innar Fishcor nýver­ið, Tamson 'Fitty' Hatuikulipi, tengda­­­­sonur Esau, Ricardo Gustavo, sam­­­­starfs­­­­maður hans og Pius Mwatelulo, sem einnig teng­ist Hatuikulipi fjöl­­­­skyld­u­­­­bönd­um, ákærð­­­ir.

Jóhannes ræddi við­brögð Sam­herja við mál­inu í Kast­ljósi fyrr í þessum mán­uði og sagði að fyr­ir­tæk­inu væri „vel­komið að reyna að villa um fyrir fólki“. Hann væri bara ábyrgur fyrir 20-30 pró­semt af þeim mútu­greiðslum sem greiddar hefðu verið til ráða­manna í Namibíu fyrir aðgang að kvóta áður en að hann hætti störfum hjá fyr­ir­tæk­in­u.

Sam­herj­a­málið er til rann­sóknar á Íslandi, í Nor­egi, í Namibíu og Angóla. Í síð­ustu viku var greint frá því að full­­trú­ar hér­aðs­sak­­sókn­­ara hefðu átt fund með full­­trú­um Økokrim, efna­hags- og um­hverf­is­­glæpa­­deild norsku lög­­regl­unn­­ar, og ýms­um stofn­un­um í Namib­­íu, í Haag í Hollandi í vik­unni á undan vegna Sam­herj­a­­máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið undanfarið ár