Íslandsbanki hagnaðist um 3,6 milljarða á fyrsta ársfjórðungi

Eigið fé Íslands­banka nam 185 millj­örðum króna í lok mars. Banka­stjór­inn segir spenn­andi tíma framundan, í ljósi þess að stefnt sé að skrán­ingu bank­ans á verð­bréfa­markað að und­an­gengnu útboði á hluta af hlut rík­is­ins í honum.

Birna Einarsdóttir bankastjóri segir ljóst að spennandi tímar séu framundan, vegna fyrirhugaðrar sölu ríkisins á hluta af hlut sínum í Íslandsbanka.
Birna Ein­ars­dóttir banka­stjóri segir ljóst að spenn­andi tímar séu framundan, vegna fyr­ir­hug­aðrar sölu rík­is­ins á hluta af hlut sínum í Íslands­banka. Mynd: Íslandsbanki

Hagnaður af rekstri Íslands­banka nam rúmum 3,6 millj­örðum króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins og arð­semi eigin fjár bank­ans var 7,7 pró­sent á árs­grund­velli. Þetta er mik­ill við­snún­ingur frá sama tíma­bili í fyrra, en bank­inn tap­aði 1,4 millj­örðum króna á fyrsta árs­fjórð­ung síð­asta árs.

Eigið fé bank­ans nam 185 millj­örðum króna í lok mars og heildar eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans nam 21,9 pró­senti, sem er yfir mark­miði bank­ans um að hafa heildar eig­in­fjár­hlut­fall á bil­inu 17,5-19 pró­sent.

Birna Ein­ars­dóttir banka­stjóri segir í til­kynn­ingu að ánægju­legt sé að sjá að afkoman sé í þróun við það sem var á seinni hluta síð­asta árs.

„Fjár­fest­ingar und­an­far­inna ára í innviðum og staf­rænum lausnum og aukin staf­ræn notkun við­skipta­vina leiddu til lækk­unar á kostn­að­ar­hlut­falli bank­ans á milli ára. Innlán frá við­skipta­vinum juk­ust um 2,8% og útlán til við­skipta­vina juk­ust um 2,3% frá árs­lokum. Aukn­ing­una í útlánum má aðal­lega rekja til áfram­hald­andi auk­innar eft­ir­spurnar á hús­næð­is­lána­mark­aði en mun styttri bið­tími er eftir afgreiðslu hús­næð­is­lána en áður og mælist mikil ánægja með þjón­ust­una. Við finnum að eft­ir­spurnin er líka orðin fjöl­breytt­ari og nú býður bank­inn við­skipta­vinum sínum græn hús­næð­is­lán við fjár­mögnun á vist­vænu hús­næði á hag­stæð­ari kjörum,“ er haft eftir Birnu í til­kynn­ingu bank­ans.

Hreinar vaxta­tekjur bank­ans námu 8,2 millj­örðum króna á þessum fyrstu þremur mán­uðum árs­ins, sam­an­borið við 8,6 millj­arða króna. á sama tíma í fyrra. Hækkun í hreinum þókn­ana­tekjum var 14,9 pró­sent á milli ára, en þær fóru úr 2,5 millj­örðum upp í 2,9 millj­arða. Bankinn segir hækk­un­ina til­komna vegna aukn­ingar í bæði þókn­ana­tekjum og -gjöldum.

Stjórn­un­ar­kostn­aður bank­ans hækk­aði lít­il­lega á milli ára og nam 5,9 millj­örðum króna á fjórð­ungnum. Hækkun í launa­lið skýrist einkum af samn­ings­bundnum kjara­hækk­unum og starfs­loka­greiðslum á meðan annar rekstr­ar­kostn­aður lækkar á milli ára, segir bank­inn.

99 prósent allra snertinga við viðskiptavini stafrænar

Kostn­að­ar­hlut­fall bank­ans lækkar á milli ára og var 52 pró­sent á fyrsta fjórð­ungi sam­an­borið við 62,9 pró­sent á sama tíma í fyrra. Aukning í notkun á staf­rænum lausnum spilar þar lyk­il­hlut­verk. Haft er eftir banka­stjór­anum Birnu í til­kynn­ingu að nú séu 99 pró­sent allra snert­inga bank­ans við ein­stak­linga orðnar staf­rænar.

[adspot]

Batnandi efna­hags­að­stæður segir bank­inn að skýri mun lægri nei­kvæða virð­is­breyt­ingu útlána en á sama tíma­bili í fyrra, eða 518 millj­ónir sam­an­borið við rúma 3,5 millj­arða í upp­hafi árs 2020. Útlán til við­skipta­vina bank­ans juk­ust um 2,3 pró­sent á fjórð­ungnum en þar vegur þyngst að meira er lánað fyrir hús­næð­is­kaupum. Innlán frá við­skipta­vinum juk­ust um 19 millj­arða króna. eða 2,8 pró­sent frá ára­mótum.

Spennandi tímar séu framundan

Haft er eftir Birnu í til­kynn­ingu bank­ans að staða hans sé sterk og und­ir­stöður traustar. „Efna­hags­reikn­ingur bank­ans er traustur með eigin- og lausa­fjár­hlut­föll vel yfir innri mark­miðum og kröfum eft­ir­lits­að­ila. Fjár­hags­leg mark­mið bank­ans hafa verið upp­færð með það að mark­miði að gefa skýr­ari mynd af þróun og áherslum í stefnu bank­ans.“

Að lokum ávarpar Birna vænt­an­lega sölu rík­is­ins á hluta bank­ans með útboði og skrán­ingu hluta á hluta­bréfa­markað.

„Fjármála- og efna­hags­ráð­herra hefur á opin­berum vett­vangi lýst því yfir að unnið sé að skrán­ingu hluta­bréfa bank­ans á skipu­legan verð­bréfa­markað, að und­an­gengnu útboði, og að stefnt sé að því að hún eigi sér stað í júní. Það er því ljóst að spenn­andi tímar eru framundan,“ er haft eftir Birnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár