Bólusetningar virðast lítið hafa dregið úr áhyggjum landsmanna af veirunni

Þrátt fyrir útbreiddar bólu­setn­ingar gegn COVID-19 á Íslandi mælist svipað hlut­fall lands­manna með miklar áhyggjur af heilsu­fars­legum áhrifum far­ald­urs­ins og mæld­ist í fyrstu bylgj­unni sem gerði strand­högg í mars og apríl í fyrra.

Eftir nokkuð áhyggjulítið sumar hvað veirumálin varðar hefur faraldurinn vaxið og áhyggjur almennings með.
Eftir nokkuð áhyggju­lítið sumar hvað veiru­málin varðar hefur far­ald­ur­inn vaxið og áhyggjur almenn­ings með. Mynd: Bára Huld Beck

Snörp umskipti hafa orðið í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum hér á landi og sömu­leiðis í við­horfum almenn­ings til stöðu mála. Áhyggjur fólks af heilsu­fars­legum áhrifum COVID-19 á Íslandi hafa vaxið nokkuð og kvíði vegna far­ald­urs­ins sömu­leiðis. Nokkur munur virð­ist á því hvernig fólk upp­lifir stöðu mála eftir því hvar það stendur í póli­tík, sam­kvæmt nýjasta Þjóð­ar­púlsi Gallup.

Gallup hefur í gegnum far­ald­ur­inn safnað gögnum um við­horf og líðan Íslend­inga vegna veiru­far­ald­urs­ins með reglu­legum net­könn­unum, sem sendar eru út til ein­stak­linga 18 ára og eldri sem eru í svoköll­uðum við­horfa­hópi fyr­ir­tæk­is­ins.

Í nýj­ustu mæl­ing­unni, sem gerð var dag­ana 21. júlí til 2. ágúst, sést að hlut­fall þeirra sem ótt­ast frekar mikið eða mjög mikið að smit­ast af COVID-19 fer úr u.þ.b. tíu pró­sentum upp í um 30 pró­sent lands­manna og hefur ekki verið við­líka hátt síðan í lok mars og byrjun apríl á þessu ári.

Svipað hlutfall áhyggjufullra og í fyrstu bylgjunni

Þá seg­ist meiri­hluti, eða 55 pró­sent, hafa frekar miklar eða mjög miklar áhyggjur af heilsu­fars­legum áhrifum COVID-19 á Íslandi. Athygli vekur að þetta eru svip­aðar tölur og voru að mæl­ast í könn­unum Gallup þegar fyrsta bylgja far­ald­urs­ins, í mars og apríl 2020, var að ganga yfir.

Þá var eng­inn bólu­settur gagn­vart COVID-19, en nú eru tæp­lega 90 pró­sent íbúa lands­ins yfir 16 ára full­bólu­sett og ljóst er að bólu­setn­ingar virka vel til þess að koma í veg fyrir alvar­leg veik­indi af völdum veirunnar.

Rúmlega 20 pró­sent aðspurðra í könnun Gallup segj­ast finna fyrir frekar miklum, mjög miklum eða jafn­vel gíf­ur­lega miklum kvíða vegna COVID-19 og er það tölu­verð aukn­ing frá síð­ustu mæl­ingu, sem gerð var dag­ana 2.-12. júlí. Hlutfall þeirra sem segj­ast í sjálf­skip­aðri sótt­kví vegna veirunnar helst í 4 pró­sentum, rétt eins og í síð­ustu mæl­ingu Gallup.

Kjósendur VG virðast hafa mestar áhyggjur af heilsufarslegum áhrifum

Í nið­ur­stöð­unum frá Gallup má sjá að vænt­an­legir kjós­endur Vinstri grænna virð­ast lík­legri til að hafa miklar áhyggjur af heilsu­fars­legum áhrifum COVID-19 en kjós­endur ann­arra flokka, en alls sögð­ust 71 pró­sent þeirra sem hyggj­ast kjósa VG hafa frekar miklar eða mjög miklar áhyggjur af áhrifum COVID-19 á heilsu lands­manna.

[adspot]

Tekið skal fram að mun­ur­inn á milli flokka er ekki í öllum til­fellum töl­fræði­lega mark­tækur, en hvað áhyggjur af heilsu­fars­legum áhrifum COVID-19 varðar sögð­ust 60 pró­sent væntra kjós­enda Mið­flokks, 59 pró­sent kjós­enda Sam­fylk­ingar og 57 pró­sent kjós­enda Pírata sem svör­uðu könn­un­inni að þeir hefðu frekar miklar eða mjög miklar áhyggjur. Innan við helm­ingur væntra kjós­enda Við­reisnar og Fram­sókn­ar­flokks sögð­ust að sama skapi hafa miklar áhyggjur af áhrifum COVID-19 á heilsu lands­manna og 52 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks.

Að sama skapi sögð­ust 42 pró­sent þeirra svar­enda sem ætla kjósa Vinstri græn ótt­ast mikið að smit­ast af COVID-19, en ein­ungis 21 pró­sent þeirra sem hafa í hyggju að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Væntir kjós­endur VG voru líka lík­leg­astir til að segj­ast finna fyrir kvíða vegna veiru­far­ald­urs­ins, en alls sögðu 34 pró­sent þeirra að svo væri.

Þeir sem eldri eru hafa meiri áhyggjur af heilsu­fars­legum áhrifum COVID-19 en yngri ald­urs­hópar, en 67 pró­sent þeirra sem eru yfir 60 ára aldri sögð­ust hafa miklar áhyggjur á meðan að hlut­fallið var um og yfir 50 pró­sent í yngri ald­urs­hópum.

Meirihluta finnst hæfilega mikið gert út hættunni

Frá því að far­ald­ur­inn fór af stað hér inn­an­lands í fyrra hafa aldrei verið fleiri sem telja of mikið gert úr þeirri heilsu­fars­legri hættu sem stafar af COVID-19 á Íslandi, en í þess­ari nýj­ustu mæl­ingu Gallup segj­ast sam­tals 17 pró­sent að aðeins of mikið eða allt of mikið sé gert úr hætt­unni. Að sama skapi telja sam­tals 22 pró­sent lands­manna að verið sé að gera aðeins eða jafn­vel allt of lítið úr hætt­unni.

Flestir, eða 61 pró­sent aðspurðra, telja þó að hæfi­lega mikið sé gert úr hætt­unni. Vænt­an­legir kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru lík­leg­astir til að telja of mikið gert úr hætt­unni, en um 29 pró­sent sögð­ust vera á þeirri skoðun og 22 pró­sent væntra kjós­enda Við­reisnar. Innan við tíu pró­sent kjós­enda bæði Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna töldu að svo væri.

Að sama skapi sögðu 21 pró­sent væntra kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks að þeir teldu að almanna­varnir og heil­brigð­is­yf­ir­völd væru að gera of mikið til að bregð­ast við COVID-19. Hlutfall væntra kjós­enda Mið­flokks­ins sem var á þess­ari skoðun var 19 pró­sent og 16 pró­sent þeirra sem gáfu til kynna að þeir ætl­uðu að kjósa Fram­sókn­ar­flokk­inn sömu­leiðis. Hlutfall væntra kjós­enda ann­arra flokka sem taldi svo vera var undir tíu pró­sentum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár