Reglur um sóttkví bólusettra og útsettra eru til endurskoðunar

Í sumum löndum þurfa þeir sem orðnir eru full­bólu­settir gegn COVID-19 ekki lengur að fara í sótt­kví, þrátt fyrir að telj­ast útsettir fyrir smiti. Reglur um þetta eru til end­ur­skoð­unar hér á landi, segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

Í dag er það enn svo á Íslandi að allir sem verða útsettir fyrir mögu­legu COVID-19 smiti úti í sam­fé­lag­inu þurfa að fara í sótt­kví. Þetta á við um full­bólu­setta jafnt sem aðra, en það gæti mögu­lega breyst á næst­unni.

„Okkar núver­andi reglur varð­andi þetta eru í end­ur­skoðun,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um þetta efni, en á und­an­förnum vikum hafa reglur hvað varða sótt­kví full­bólu­settra sem telj­ast hafa orðið útsettir fyrir veirunni verið að breyt­ast í nokkrum af okkar nágranna­löndum.

Strax í upp­hafi þessa mán­aðar var regl­unum til dæmis breytt í Noregi og þar þurfa þeir sem eru full­bólu­settir og hafa verið það í ákveðið langan tíma ekki lengur að fara í sótt­kví, ef þeir til dæmis sitja á veit­inga­stað til borðs með ein­hverjum kunn­ingja sem síðan reyn­ist smit­aður af veirunni.

Tilmælin í Banda­ríkj­unum eru þannig, sam­kvæmt smit­sjúk­dóma­stofn­un­inni CDC, að full­bólu­settir sem hafa umgeng­ist ein­hvern sem grein­ist svo með COVID-19 þurfa ekki að fara í sótt­kví eða und­ir­gang­ast skimun nema ein­kenni komi upp. Þó segir stofn­unin að full­bólu­settir sem búi eða starfi í stofn­unum á borð við fang­elsi eða athvörf fyrir heim­il­is­lausa ættu að fara í skimun, verði þeir útsettir fyrir smiti.

Þar í landi er verið að nota bólu­efnin frá Pfizer/BioNTech, Moderna og Janssen (Johnson & Johnson). Samkvæmt því sem CDC segir telst fólk vera full­bólu­sett tveimur vikum eftir að það fær seinni skammt­inn af Pfizer og Moderna eða þann eina skammt sem gef­inn er af Janssen-bólu­efn­inu.

Sótt­kví­ar­regl­urnar eru sem áður segir til end­ur­skoð­unar hér­lendis. Við þá end­ur­skoðun er vænt­an­lega verið að horfa til reynsl­unnar af skimun bólu­settra á landa­mær­unum, sem hefur staðið yfir und­an­farna mán­uði.

Dæmi eru nefni­lega um að bólu­settir geti borið veiruna með sér og smitað út frá sér, eins og átti sér stað hjá íslenska Eurovision-hópnum úti í Hollandi á dög­unum. Alls þrír úr íslenska teym­inu, sem var bólu­sett með Janssen-bólu­efn­inu fyrir brott­för til Hollands, hafa greinst með veiruna.

Enginn greinarmunur gerður á tíma frá sprautu á landamærunum

Misjafnt er hvernig lönd gefa út vott­orð vegna bólu­setn­inga. Hér á Íslandi er ekki hægt að sækja um bólu­setn­ing­ar­vott­orð fyrr en viku eftir að fólk fær seinni spraut­una — eða einu spraut­una í til­felli Janssen-bólu­efn­is­ins.

[adspot]

Þetta er ekki svona alls staðar, en sum ríki gefa út vott­orð um fulla bólu­setn­ingu um leið og fólk hefur fengið sinn seinni eða eina skammt í upp­hand­legg­inn. Þá getur fólk um leið rokið af stað í alþjóð­leg ferða­lög, meðal ann­ars til Íslands, án þess að þurfa að und­ir­gang­ast sótt­kví á áfanga­stað.

Hjördís Guð­munds­dóttir, sam­skipta­stjóri hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, segir við Kjarnann að allir sem til lands­ins koma og eru með bólu­setn­ing­ar­vott­orð lúti sömu skil­yrðum, óháð því hvort fimm vikur séu liðnar frá seinni sprautu eða þrír dagar.

„Þú þarft bara vott­orðið, það skiptir ekki máli hvenær það er,“ segir Hjördís, og bætir við að það væri nær ómögu­legt í fram­kvæmd að fara að gera sér­staka kröfu um að ákveðið langt sé liðið frá bólu­setn­ingu fólks áður en það kemur hingað til lands.

Hjördís segir að allir séu að fóta sig í nýjum veru­leika, hvað þetta varðar. Hún búist við því að við end­ur­skoðun reglna um sótt­kví hér inn­an­lands verði horft til þeirra gagna sem safn­ast hafi saman og rann­sókna sem hafa verið gerðar á því hvort full­bólu­settir séu lík­legir til að geta smitað út frá sér og ákvarð­anir teknar út frá því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár