„Verulega fúlt og umhugsunarvert“

Sjálf­stæð­is­konur eru ekki sáttar við að Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi ekki kom­ist á þing, og í stað­inn hafi karlar kom­ist að. Aðeins fjórar konur eru á þingi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

„Ég horfði á vin­konu mína í Kast­ljós­inu í kvöld og eins og alltaf var Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir mál­efna­leg og flott. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í Suð­ur­kjör­dæmi fékk sína verstu útkomu síðan kjör­dæmið var stofnað og missti sinn öfl­ug­asta þing­mann. Veruega fúlt og umhugs­un­ar­vert.“

Þetta segir Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, fyrr­ver­andi ráð­herra og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á Facebook síðu sinni. Megn óánægja er innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins vegna þess hversu fáar konur komust á þing fyrir flokk­inn, en af 16 manna þing­flokki flokks­ins eru 12 karlar og 4 konur.

Fyrir ofan Unni Brá, sem var for­seti Alþingis á nýliðnu þingi, voru Páll Magn­ús­son, Ásmundur Frið­riks­son og Vil­hjálmur Árnason.

Á Facebook síð­unni fóru fram fjörugar umræður um stöð­una innan flokks­ins í gær­kvöldi, og hversu veru­lega hall­aði á konur.

Þórey Vil­hjálms­dóttir, sem var aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra á tíma­bili, gagn­rýndi þessa stöðu harð­lega. „Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ætti að skamm­ast sín að stilla þessum frá­bæra full­trúa upp í 4.sætið á eftir þremur körlum. Miðaldra íhaldsamir karlar virð­ast eiga Sjálf­stæð­is­flokk­inn, ég held að ásýnd flokks­ins hafi sjaldan verið verri svona á seinni tímum. Ég hef engar áhyggjur af Unni Brá, sam­mála þér Ragn­heiður, hún mun eiga far­sælan feril, alveg sama hvað hún tekur sér fyrir hendur. Það er gríða­leg eft­ir­sjá af henni á þing­inu eins og ykkur öllum kon­unum sem flokk­ur­inn hefur hrakið frá sér á síð­ustu miss­erum,“ segir Þórey.

Á Alþingi eru nú 40 karlar og 23 konur, og versn­aði hlut­fallið til muna, sé horft til síð­ustu kosn­inga, en hlut­fallið er nú svipað og árið 2007.

Hjá Mið­flokknum eru sjö þing­menn, sex karlar og ein kona, og hjá Flokki fólks­ins eru þrír karlar og ein kona.

Hlut­föllin eru betri hjá öðrum öðrum flokkum.

Hjá Vinstri grænum eru 6 konur og 5 karlar, hjá Fram­sókn­ar­flokknum eru 5 konur og 3 karlar, hjá Sam­fylk­ing­unni 3 karlar og 4 konur, hjá Viðreisn tvær konur og tveir karlar og hjá Pírötum eru tvær konur og fjórir karlar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár