Ísland veitir 276 milljónum til alþjóðasamvinnu vegna COVID-19

Samkvæmt áætlun sem alþjóða- og þró­un­ar­sam­vinnu­skrif­stofa utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hefur unnið verður 276 millj­ónum veitt til alþjóða­stofn­ana, mann­úð­ar­sam­taka og þró­un­ar­verk­efna í fyrstu við­brögðum Íslands við COVID-19 far­aldr­inum.

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­ríkis- og þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Íslensk stjórn­völd ætla að veita 276 millj­ónum króna til ýmissa alþjóða­stofn­ana og sam­taka, auk verk­efna í þró­un­ar­sam­vinnu­ríkj­unum Úganda og Malaví, til þess að bregð­ast við COVID-19, sam­kvæmt áætlun sem alþjóða- og þró­un­ar­sam­vinnu­skrif­stofa utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hefur unnið um fyrstu við­brögð við far­aldr­inum.

Fjallað er um áætl­un­ina í skýrslu Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­ríkis- og þró­un­ar­sam­vinn­ur­ráð­herra um utan­ríkis- og alþjóða­mál, sem lögð var fram Alþingi í gær.

Þar segir að áætl­unin um þessi fyrstu við­brögð sé heild­ræn og unnin upp úr neyð­ar­köllum frá alþjóða­stofn­unum og öðrum sam­starfs­að­ilum Íslands á vett­vangi mann­úð­ar­mála og þró­un­ar­sam­vinnu, auk þess sem hún byggi á upp­lýs­ingum frá fundum tengdum far­aldr­inum, meðal ann­ars reglu­legum fundum nor­rænna þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­herra.

Fram kemur í skýrsl­unni að féð skipt­ist á milli ýmissa stofn­anna og sjóða Sam­ein­uðu þjóð­anna, meðal ann­ars Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar (WHO), Flótta­manna­stofn­un­ar­innar (UNHCR), Mann­fjölda­sjóðs Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNFPA) og þró­un­ar­sjóðs Sam­ein­uðu þjóð­anna vegna COVID-19.

Þá verður fé veitt til Alþjóða­ráðs Rauða kross­ins og Rauða kross Íslands, Alþjóða­bank­ans, og einnig til verk­efna í tví­hliða sam­starfs­ríkjum Íslands, Úganda og Malaví.

„Þá hefur Alþjóða­fram­fara­stofnun Alþjóða­bank­ans (IDA), sem Ísland styður með 415 millj­óna króna fram­lagi á árinu, brugð­ist skjótt við með víð­tækum stuðn­ingi við fátæk­ustu ríki heims,“ segir í skýrslu utan­rík­is­ráð­herra, en þar kemur einnig fram að Ísland hafi tekið þátt í við­ræðum um það hvernig stofnir Alþjóða­bank­ans muni bregð­ast við efna­hags­legum og félags­legum afleið­ingum COVID-19 far­ald­urs­ins í gegnum kjör­dæm­a­starf Norð­ur­land­anna og Eystra­salts­ríkj­anna.

„Þessu til við­bótar hafa þegar verið greidd kjarna­fram­lög til ýmissa stofn­ana og sjóða Sam­ein­uðu þjóð­anna sem geta meðal ann­ars nýst fyrir COVID-19 bar­átt­una. Viðbúið er að bregð­ast þurfi við með frek­ari aðgerðum á síð­ari stigum,“ segir í skýrslu utan­rík­is­ráð­herra.

Ísland muni ekki láta sitt eftir liggja í að styðja fátækustu ríkin

Í skýrsl­unni segir að heims­far­ald­ur­inn hafi breytt heims­mynd­inni, í stóru sem smáu, og glund­roða hafi gætt í alþjóð­legu sam­starfi þegar veiran fór að láta á sér kræla utan Asíu. Þegar á leið hafi þó rofað til og nú sé ein­ing á meðal helstu sam­starfs­ríkja Íslands um að standa vörð um alþjóð­legt sam­starf og stofn­anir á borð við Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­ina.

„Meðal Norð­ur­land­anna ríkir sam­staða um að efla þurfi mann­rétt­indi og lýð­ræði sem eiga undir högg að sækja á tímum kór­ónu­veirunnar og styðja fátæk­ustu ríkin, í sam­starfi við alþjóða­stofn­anir og mann­úð­ar­sam­tök, og mun Ísland ekki láta sitt eftir liggja í því efni,“ segir í skýrslu utan­rík­is­ráð­herra.

Þar segir einnig að við­búið sé að far­sóttin hafi geig­væn­legar heilsu­fars- og efna­hags­legar afleið­ingar í fátækum og stríðs­hrjáðum löndum og reikna megi með að þörfin fyrir neyðar- og mann­úð­ar­að­stoð vaxi gríð­ar­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár