Farsóttarspítali verður opnaður ef Landspítali ræður ekki við álagið

Alma Möller land­læknir sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að ef svart­sýn­ustu spár ræt­ist verði opn­aður sér­stakur far­sótt­ar­spít­ali ef álagið á Land­spít­al­ann verður of mikið. Smit hafa greinst hjá 409 manns hér á landi.

Upplýsingafundur almannavarna í dag.
Upp­lýs­inga­fundur almanna­varna í dag. Mynd: Lögreglan

Alma Möller land­læknir sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að ef svart­sýn­ustu spár ræt­ist verði opn­aður sér­stakur far­sótt­ar­spít­ali ef álagið á Land­spít­al­ann verður of mikið. . Reiknað er með að 600 verði smit­aðir fyrstu vik­una í apríl en mögu­lega 1.200. Í dag hefur veiran greinst hjá 409 manns hér á landi.

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, sagði það áhyggju­efni að aðeins á fimmta degi sam­komu­banns væru strax farin að sjást þess merki að menn væru að slaka á kröfum og til­mælum. Þá væri gríð­ar­lega mik­il­vægt að fólk héldi reglur í sótt­kví og að á vinnu­stöðum og í skólum, þar sem búið er að skipta fólki í hópa, yrði að geta þess að skipt­ingin tæki einnig til frí­tíma. Börn sem eru saman í hóp í skól­anum mega umgang­ast sömu börn utan skóla, en helst ekki önnur.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir fór á fund­inum yfir stöðu far­ald­urs­ins hér á landi. Hann sagði veiruna hafa greinst í öllum lands­hlutum. Benti hann á að 392 væru nú í ein­angrun vegna veirunnar en að sautján hefðu losnað úr ein­angrun og náð bata. Sex liggja á Land­spít­al­anum vegna veirunnar. Einn er á gjör­gæslu en ekki í önd­un­ar­vél.

Þrettán pró­sent sýna sem tekin hafa verið á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans hafa reynst jákvæð en um eitt pró­sent sýna sem Íslensk erfða­grein­ing hefur tekið.

„Ég held að þessar tölur sýni það að far­ald­ur­inn er í vexti, ekki miklum vexti, við bjugg­umst alveg eins við því að aukn­ingin yrði meiri,“ sagði Þórólfur. „Við munum halda áfram þeim aðgerðum sem við höfum beitt; greina snemma, ein­angra og beita í sótt­kví. Þetta eru mik­il­væg­ustu aðgerð­irnar sem við getum beitt til að hefta útbreiðsl­una.“

Sóttkví skilar miklum árangri

Þórólfur ítrek­aði að sótt­kvíin væri mjög mik­il­vægt úrræði því að 50 pró­sent af þeim ein­stak­lingum sem greinst hafa verið með veiruna höfðu verið í sótt­kví. „Þessir ein­stak­lingar hefðu ann­ars getað verið að smita aðra.“

Margir eru nú að biðja um und­an­þágur frá sótt­kví að sögn Þórólfs sem bendir á að ef tekið væri til­lit til allra þeirra beiðna myndi aðgerðin missa marks. „Þá fengjum við meiri dreif­ingu út í sam­fé­lag­inu.“ Biðlaði hann til fólks og fyr­ir­tækja að vera ekki að fá und­an­þágur frá sótt­kví nema að brýna nauð­syn beri til.

Þórólfur sagði að farið væri að „örla á því“ að það stefndi í skort á sýna­tökupinnum. „Þetta þýðir ekki það að við þurfum að hætta sýna­tökum, eða breyta eitt­hvað stór­kost­lega, en þar til við fáum nýja send­ingu af pinnum þurfum við að hugsa vel um hverja við erum að taka sýni frá, aðal­lega fólk með ein­kenni.“

Til þessa hafi yfir­völd hér á landi „verið frjáls­leg við að taka sýni og þess vegna höfum við greint svona marga,“ sagði Þórólfur. „Ég vona að það komi ekki til alvar­legs skorts, þangað til við fáum næstu send­ingu. Þannig að von­andi mun þetta ekki koma niður á þess­ari öfl­ugu gagna­öflun sem við viljum hafa. En það gæti hugs­an­lega gerst.“

Engum sem hefði verið í tengslum við smit­aða eða sýnt ein­kenni hafi verið vísað frá.

Sagði hann það gríð­ar­lega mik­il­vægt að þeir sem færu í sýna­töku færu í ein­angrun þar til nið­ur­staðan væri ljós.

Mögulega verða 1.200 smit í byrjun apríl

Alma Möller land­læknir sagði að vegna aukn­ingar á smitum úr sýna­tökum í fyrra­dag hafi spá um þróun far­ald­urs­ins nokkuð breyst. Núna er gert ráð fyrir því að hámark greindra náist fyrstu vik­una í apríl. Reiknað er með að 600 verði þá smit­aðir en mögu­lega 1.200. Gert er ráð fyrir að sex­tíu myndu þá þurfa inn­lögn á spít­ala en allt að 200 sam­kvæmt svart­sýn­ustu spám. Hvað gjör­gæslu­þörf varðar er talið að í besta falli þurfi 11 að leggj­ast inn á gjör­gæslu­deild en í versta falli 50.

„Þetta getur auð­vitað breyst mjög mikið, bæði vegna fámenn­is­ins og að við erum snemma í far­aldr­inum,“ sagði Alma. En von­ast er til þess að spálíkanið verði stöðugra eftir því sem á líður.

[links]Alma sagði að aug­ljóst væri að áhættan sé mest hjá eldra fólki en að ungt fólki geti þó veikst alvar­lega og vís­bend­ingar um það eru meðal ann­ars frá Ítalíu og Norð­ur­löndum. „Það má vera að yngra fólk dragi frekar að leita læknis og því viljum við hvetja yngra fólk, þá sem eru undir fimm­tugu, og hafa verið með flensu­lík ein­kenni, ef þau fá ný ein­kenni, sér­stak­lega mæði, að hafa sam­band við heilsu­gæsl­una.“

Alma ræddi einnig um und­ir­bún­ing heil­brigð­is­kerf­is­ins. „Nú erum við auð­vitað að búa okkur undir þessa verstu sviðs­mynd og þá er verið að skoða núna hvernig þjón­ustan verður útfærð og skipu­lögð og að hvar verði opn­aður far­sótt­ar­spít­ali ef að Land­spít­al­inn ræður ekki við þann fjölda sem þarf að sinna.“

Sótt­varna­læknir og land­læknir voru spurðir hvort að aukn­ing smita núna væri í takti við fyrri svart­sýn­ustu spár og hvort að bregð­ast þyrfti sér­stak­lega við því. „Við erum núna að bregð­ast við verstu sviðs­mynd og vinnum að því að tryggja það sem hægt er,“ sagði Alma.

Þórólfur sagði að of snemmt væri að full­yrða að svart­sýn­ustu spár væru að ræt­ast. Sjá þurfi til á næstu dögum hvernig smitið þró­ast.

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, sagði að til skoð­unar væri að herða á skil­yrðum sam­komu­banns­ins, lækka t.d. þrösk­uld­inn um þann fjölda sem má koma saman. Þá eru frek­ari lok­anir á starf­semi og öðru slíku til skoð­unar og verður kynnt á næstu dögum. Það er þó ekki þannig að slíku verði komið skyndi­lega á heldur verður gef­inn fyr­ir­vari.

Spurður af hverju ekki væri gripið til lok­ana líkt og í nágranna­lönd­unum svar­aði Víðir að yfir­völd teldu aðgerðir sem þegar hafi verið gripið til, að rekja, ein­angra og setja í sótt­kví, væru að skila árangri. „Það eru mjög fáir og jafn­vel engir í Evrópu að gera þetta en lönd á borð við Singapúr og Suður-Kóreu hafa unnið eftir svip­aðri aðferða­fræði og náð góðum árangri og við erum að reyna að fara þá leið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár