Tvö ný smit staðfest

Sextán manns eru í ein­angrun vegna COVID-19. Tvö ný smit greindust í gær, bæði utan sótt­kvíar. Yfir 1.500 ein­kenna­sýni voru tekin í gær.

Tvö ný smit af kór­ónu­veirunni greindust inn­an­lands í gær. Hvorugur ein­stak­ling­ur­inn var í sótt­kví. Samkvæmt upp­lýs­ingum á COVID.is eru sextán nú í ein­angrun vegna COVID-19. Í gær voru tekin yfir 1.500 ein­kenna­sýni, m.a. af fólki sem sótti tón­leika í Hörpu á föstu­dags­kvöld. Smitaður ein­stak­lingur var á tón­leik­unum.

Starfs­maður Hagkaups í Garðabæ greind­ist með COVID-19 í gær­kvöldi. Greint var frá smit­inu í til­kynn­ingu frá versl­un­inni. Þar kom fram að starfs­mað­ur­inn ynni á nótt­unni við áfyll­ingar og að hann hefði verið við störf aðfaranætur laug­ar­dags og sunnu­dags.

[adspot]

Þeir starfs­menn sem unnu á sömu vöktum um helg­ina fara í skimun í dag og munu halda sig heima, að því er segir í til­kynn­ingu Hagkaups, þar til rakn­ing­arteymið gefur grænt ljós á end­ur­komu þeirra til starfa.

[links]Þrír greindust með veiruna um helg­ina, einn á föstu­dag og tveir á laug­ar­dag. Staðfest hefur verið að tveir þeirra eru með hið breska afbrigði veirunnar, afbrigði sem er meira smit­andi en önnur sem greinst hafa á Íslandi. Yfir níu­tíu manns hafa síð­ustu vikur greinst með afbrigðið hér á landi, þar af yfir 20 inn­an­lands og allt, þar til um helg­ina, fólk sem tengd­ist þeim sem greinst höfðu á landa­mær­unum nánum böndum.

Á sunnu­dag og í gær, mánu­dag, voru hund­ruð manna sem tengd­ust fólki sem greind­ist um helg­ina skimaðir, m.a. starfs­fólk og sjúk­lingar á Land­spít­ala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár