Réttindalaus með kápuna á báðum öxlum

Rétt­inda­laus læknir hefur um 24 ára skeið verið yfir­maður þeirrar deildar dönsku Umferð­ar­stof­unnar sem hefur umsjón með heil­brigð­is­skoðun flug­manna, flug­liða og flug­um­ferð­ar­stjóra. Lækn­ir­inn hefur jafn­framt rekið fyr­ir­tæki sem ann­ast slíka skoðun.

Í jan­úar á þessu ári beindi Jan-Erik Messmann þing­maður Danska þjóð­ar­flokks­ins fyr­ir­spurn til Ole Birk Olesen sam­göngu­ráð­herra í dönsku rík­is­stjórn­inni. Fyr­ir­spurnin varð­aði yfir­mann þeirrar deildar dönsku Umferð­ar­stof­unnar (Trafik­styrel­sen) sem hefur umsjón með heil­brigð­is­skoðun flug­manna, flug­liða og flug­um­ferð­ar­stjóra (flug­fólks).

Þing­mann­inum hafði borist til eyrna að „ekki væri allt með felldu“ í áður­nefndri deild, einkum hvað varð­aði yfir­mann­inn. Þessi fyr­ir­spurn vakti athygli blaða­manna dag­blaðs­ins Berl­ingske sem hófu að graf­ast fyrir um hvað þetta „ekki væri allt með felldu“ þýddi. Sú vinna hefur nú staðið vikum saman og umfjöllun Berl­ingske, sem hefur birt margar greinar um málið, vakið mikla athygli í Danmörku.

Fjölmargar kvartanir

Á und­an­förnum árum hafa Umferð­ar­stof­unni borist margar kvart­anir vegna ýmissa mála tengdum deild­inni sem hefur umsjón með heil­brigð­is­skoðun flug­fólks. Umferð­ar­stofan hefur fjórum sinnum beðið Kamm­era­dvoka­ten (lög­fræði­stofa sem gegnir svip­uðu hlut­verki og umboðs­maður Alþingis á Íslandi,en sá munur er þó á emb­ætt­unum að umboðs­maður er sjálf­stæður eft­ir­lits­að­ili á vegum þjóð­þings en ekki ráð­gef­andi fyrir stjórn­sýsl­una) að rann­saka og meta störf for­stöðu­manns deild­ar­innar. Fyrstu við­brögð ráð­herr­ans við fyr­ir­spurn þing­manns­ins í jan­úar sl. voru þau að biðja Kamm­era­dvoka­ten enn einu sinni að rann­saka störf for­stöðu­manns­ins (sem er kona og Berl­ingske nefnir SJ). Þing­mað­ur­inn taldi ekki þörf á einni rann­sókn­inni enn, eins og hann komst að orði. Hann hafði nefni­lega kom­ist á snoðir um þær mörgu kvart­anir sem borist hefðu vegna for­stöðu­manns­ins.

Eftirlit með eigin fyrirtæki

Árið 2007 barst sam­göngu­nefnd danska þings­ins, Fol­ket­inget, ábend­ing þess efnis að SJ ræki eigið fyr­ir­tæki sem sinnti heil­brigð­is­skoðun flug­fólks, sam­hliða yfir­manns­starfi hjá Umferð­ar­stof­unni. Helsta hlut­verk yfir­manns­ins er að hafa eft­ir­lit með þeim læknum sem sinna heil­brigð­is­skoð­un­inni. SJ væri því ætlað að hafa eft­ir­lit með starf­semi eigin fyr­ir­tækis. Sam­göngu­nefndin spurði ráð­herra sam­göngu­mála hvort þetta væri ekki óvið­un­andi fyr­ir­komu­lag. Svar ráðu­neyt­is­ins var að fyr­ir­tæki SJ ann­að­ist árlega heil­brigð­is­skoðun um það bil 4 hund­ruð ein­stak­linga, sem starfa við flugið, en á hverju ári fara um það bil 4 þús­und manns í slíka skoðun. SJ ann­að­ist sjálf aðeins um það bil 100 slíkar heil­brigð­is­skoð­anir á hverju ári. Ráðu­neytið taldi ekk­ert óeðli­legt við þetta fyr­ir­komu­lag og byggði það álit á umsögn Kamm­era­dvoka­ten. Árið 2016 óskaði Umferð­ar­stofan eftir áliti Kamm­era­dvoka­ten varð­andi sama efni, þá höfðu borist kvart­anir vegna SJ. Nið­ur­staðan var sú sama og áður: ekk­ert athuga­vert.

Eftir að flug­maður þýska flug­fé­lags­ins Germanwings flaug af ásetn­ingi far­þega­vél í fjalls­hlíð í frönsku ölp­unum, með þeim afleið­ingum að allir um borð, 150 manns, lét­ust hefur heil­brigð­is­skoðun danskra flug­manna ( og margra ann­arra) verið breytt. Fyrir utan lík­am­legt ástand tekur skoð­unin nú einnig til and­legrar heilsu við­kom­andi.

Agnete Schrøder málið

Í sept­em­ber í fyrra (2018) fór Agnete Schrøder, flug­maður hjá SAS, í hina árlegu skoðun. Hún hefur starfað sem flug­maður í rúm­lega tvo ára­tugi. Það vakti athygli hennar hvað skoð­unin tók skamman tíma að þessu sinni og henni þótti lækn­ir­inn sem ann­að­ist skoð­un­ina mjög óör­uggur. Þegar Agnete Schrøder kom heim og skoð­aði vott­orðið sá hún að lækn­ir­inn hafði gert athuga­semdir við heyrn hennar. Það þótti henni í meira lagi und­ar­legt, vegna þess að lækn­ir­inn hafði ekki mælt heyrn­ina. Eftir að hún hafði gert athuga­semd við þetta og kvartað form­lega fékk hún það svar að lækn­ir­inn væri hand­viss um að hann hefði mælt heyrn­ina. Auk þess hafði verið hand­skrifað inn á vott­orðið (en slíkt er óleyfi­legt) athuga­semd um heyrn­ina og enn­fremur búið að bæta því við, líka hand­skrifað, að fram­koma hennar gagn­vart lækn­inum hefði verið sér­kenni­leg. Enn­fremur voru nú komnir á vott­orðið tveir lækna­stimplar, en Agnete Schrøder full­yrðir að lækn­ir­inn hafi ein­ungis verið einn. Þar að auki er nafn lækn­is­ins sem skoð­aði hana ekki að finna á lista Umferð­ar­stof­unnar yfir þá lækna sem leyfi hafa til heil­brigð­is­skoð­unar. En í fram­haldi af þessu var flug­skír­teini Agnete dregið til baka, hún var skyndi­lega orðin atvinnu­laus.

Læknirinn var réttindalaus

Enn aðhafð­ist Ole Birk Olesen sam­göngu­ráð­herra ekk­ert, þrátt fyrir ítrek­aðar kröfur nokk­urra þing­manna en nú voru mál­efni Umferð­ar­stof­unnar og SJ komin í kast­ljós fjöl­miðl­anna. Einkum dag­blaðs­ins Berl­ingske sem birti dag eftir dag frá­sagnir og við­töl við fólk sem sagði farir sínar ekki sléttar í sam­skiptum við SJ og deild hennar. Í byrjun apríl, eftir að málið hafði verið í fréttum vikum saman, birti Berl­ingske frétt sem segja má að hafi verið kornið sem fyllti mæl­inn. Blaða­menn­irnir höfðu kom­ist að því að lækn­ir­inn, SJ, er í raun rétt­inda­laus. Hefur ekki þá menntun sem þarf til að gegna yfir­manns­stöðu af þessu tagi en þar er kraf­ist lækn­is­mennt­unar og við­bótar sér­mennt­unar. Blaða­menn Berl­ingske höfðu sér til mik­illar undr­unar upp­götvað þetta þegar þeir slógu nafni SJ upp í gagna­banka heil­brigð­is­yf­ir­valda. Þegar Berl­ingske greindi frá rétt­inda­leys­inu var sam­göngu­ráð­herr­anum nauð­ugur einn kostur: að reka SJ á staðnum, og jafn­framt var starf­semi fyr­ir­tækis hennar, doctors.dk stöðvuð. Þetta gerð­ist fyrir rúmri viku, 19. apríl.

SJ kærð

Umferð­ar­stofa lagði síð­ast­lið­inn mið­viku­dag, 24. apríl fram kæru á hendur SJ. Þar er hún sökuð um alvar­leg brot í starfi og hafa vís­vit­andi beitt blekk­ingum í því skyni að hagn­ast per­sónu­lega. Í kæru Umferð­ar­stofu kemur einnig fram að þess séu mörg dæmi að þeir sem hafi ann­ast heil­brigð­is­skoðun flug­manna, flug­liða og flug­um­sjón­ar­manna undir stjórn SJ hafi ekki haft rétt­indi til slíkrar skoð­unar (flug­læknar).

Tvö þúsund manns innkallaðir til skoðunar

Danskir fjöl­miðlar greindu frá því nú fyrir helgi að allt að tvö þús­und manns, flug­menn og flug­um­sjón­ar­menn verði kall­aðir inn til heil­brigð­is­skoð­unar. Það er sá hópur sem farið hefur í slíka skoðun á síð­ast­liðnum tólf mán­uðum.

Sam­göngu­nefnd þings­ins hefur boðað rann­sókn á vinnu­brögðum Umferð­ar­stof­unnar. Einn nefnd­ar­manna sagði í blaða­við­tali að nauð­syn­legt væri að kom­ast til botns í hvernig á því gæti staðið að rétt­inda­laus ein­stak­lingur gæti árum saman gegnt hárri stöðu. Enn­fremur hvernig á því stæði að ekk­ert mark væri tekið á margend­ur­teknum kvört­unum og þeim vísað frá.

Í lokin er rétt að geta þess að Agnete Schrøder flug­maður fékk flug­skír­teini sitt til baka, eftir tvo mán­uði, ásamt afsök­un­ar­beiðni frá Umferð­ar­stof­unni. Hún hefur ekki ákveðið hvort hún krefj­ist bóta vegna tekju­missis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár