Telur tregðu íslenskra dómstóla að fylgja dómum MDE vera á undanhaldi

Róbert Spanó, dóm­ari við Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu, telur að upp­haf­leg tregða íslenskra dóm­stóla til þess að fylgja dómum dóm­stóls­ins sé á und­an­haldi og að und­an­farna ára­tugi hafi íslenskir dóm­stólar leit­ast við að eiga sam­starf við dóm­stól­inn.

Róbert R. Spanó, lögmaður og dómari við Mannréttindadómstól Evrópu
Róbert R. Spanó, lög­maður og dóm­ari við Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu Mynd: Skjáskot

Upphafleg tregða íslenskra dómstóla til þess að fylgja dómum Mannréttindadómstólsins er á undanhaldi að mati Róberts Ragnars Spanó, dómara við Mannréttindadómstól Evrópu. Róbert fjallaði um hvernig íslenskir dómstólar taka mið af dómum Mannréttindadómstólsins við úrlausn um ákvæði mannréttindasáttmálans og stjórnarskrárinnar á hádegisverðarfundi í nóvember á síðasta ári. Í nýjasta tölublaði Lögmannablaðsins er að finna nokkurs konar endursögn á fyrirlestri Róberts.

Að mati Róberts hefur dómaframkvæmd íslenskra dómstóla þróast verulega frá lögfestingu mannréttindasáttmálans og stjórnarskrárbreytingunni 1995. Í fyrirlestri sínum sagði hann að svo virðist sem Hæstiréttur vísi nú ekki einungis almennt til framkvæmdar Mannréttindadómstólsins heldur styðjist rétturinn í ríkari mæli við þær aðferðir sem dómstólinn hefur lagt til grundvallar við túlkun viðkomandi ákvæða mannréttindasáttmálans. Þá hafi íslenskir dómstólar undanfarna áratugi leitast við að eiga samstarf við dómstólinn.

Vægi dóma MDE hefur aukist jafnt og þétt í íslenskri dómaframkvæmd

[links] Ísland gekkst undir mann­rétt­inda­sátt­mál­ann að þjóða­rétti árið 1953 en sam­kvæmt tví­eðlis­kenn­ingu þjóða­réttar hafði hann því ekki bein laga­leg áhrif hér á landi í rúm 40 ár eða fram að lög­fest­ingu árið 1994. Í kjöl­far lög­fest­ing­ar­innar var mann­rétt­inda­kafla stjórn­ar­skrár­innar breytt árið 1995 í sam­ræmi við sátt­mál­ann. Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu er síðan ætlað að tryggja að aðild­ar­ríki Evr­ópu­ráðs­ins virði þau rétt­indi sem kveðið er á um í sátt­mál­anum.

Dómar Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins eru þó ekki bind­andi að íslenskum lands­lögum og hafa þannig ekki bein og milli­liða­laust rétt­ar­á­hrif að íslenskum rétti. Samkvæmt athuga­semdum með frum­varpi að stjórn­skip­un­ar­lög­unum 1995 var þó reiknað með að dómar Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins myndu hafa leið­sagn­ar­gildi við skýr­ingu mann­rétt­inda­á­kvæða. Róbert sagði í fyr­ir­lestri sínum að dóm­arnir væru þannig ein­hvers konar for­spá um þá lág­marks­vernd sem stað­fest hafi verið að þjóða­rétti við túlkun ákvæða mann­rétt­inda­sátt­mál­ans en íslenskum dóm­stólum er þó að formi til heim­ilt að hafna þeim leið­bein­ingum sem er að finna í dómum Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins.

Róbert sagði að þrátt fyrir þetta væri ljóst, af réttar­ör­ygg­is­sjón­ar­miðum og þjóð­rétt­ar­skuld­bind­ingum Íslands, að íslenskum dóm­stólum væri rétt að fylgja alla jafna þeirri leið­sögn sem leiðir af dómum Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins. Enda væri ljóst að efni mann­rétt­inda­sátt­mál­ans yrði ekki ráðið með því einu að lesa ákvæði hans heldur væri auk þess nauð­syn­legt að kanna hvernig Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn hafi túlkað við­eig­andi ákvæði. Hann sagði jafn­framt að þótt dóm­arnir hafi að formi til ekki bein rétt­ar­á­hrif kæmi það ekki í veg fyrir að dómar dóm­stóls­ins hafi beina laga­lega þýð­ingu við úrlausn mála fyrir íslenskum dóm­stólum í gegnum við­ur­kenndar lög­skýr­ing­ar­að­ferðir við túlkun mann­rétt­inda­sátt­mál­ans.

Ekki tekið nægilegt tillit til dóma MDE

Róbert sagði í fyr­ir­lestri sínum að framan af hefði gætt nokk­urrar tregðu íslenskra dóm­stóla við að líta til dóma Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins en fyrir því hafi verið ýmsar ástæður, þar á meðal tví­eðlis­kenn­ingin, full­veld­is­sjón­ar­mið, skortur á þekk­ingu lög­manna og dóm­ara. Sú þróun hefði þó breyst og hin síð­ari ár hafi íslenskir dóm­stólar meðal ann­ars byggt á sam­ræm­is­skýr­ingu milli stjórn­ar­skrár­innar og mann­rétt­inda­sátt­mál­ans eins og hann hefur verið túlk­aður af Mann­rétt­inda­dóm­stólnum. Það megi meðal ann­ars rekja til þess að ákvæði sátt­mál­ans, sem hafa efn­is­lega sam­stöðu með ákvæðum stjórn­ar­skrár­innar, hafa nú veru­legt vægi við túlkun stjórn­ar­skrár­innar.

Á und­an­förnum árum hafi jafn­framt Mann­rétt­inda­dóm­stól­inn lagt aukna áherslu á að lands­dóm­stólar aðild­ar­ríkj­anna rök­styðji nið­ur­stöður sínar með vísan til þeirra meg­in­sjón­ar­miða sem mynd­ast hafa í fram­kvæmd dóm­stóls­ins. Ef dóm­stól­inn telur að það sjón­ar­mið skorti þá sé lík­legra að dóm­stól­inn dæmi á þann veg að dómar lands­dóm­stóla upp­fylli ekki þær lág­marks­kröfur sem felist í sátt­mál­anum.

Að mati Róberts hefur því dóma­fram­kvæmd íslenskra dóm­stóla þró­ast veru­lega frá lög­fest­ingu mann­rétt­inda­sátt­mál­ans og stjórn­ar­skrár­breyt­ing­unni 1995. Á síð­ustu árum hafi vægi dóma Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins auk­ist veru­lega í dóma­fram­kvæmd hér á landi og nú sé for­dæmi dóm­stóls­ins í raun orðin eðl­is­lík stöðu hefð­bund­inna for­dæma íslenskra dóm­stóla, þótt hin form­lega staða sé óbreytt. Róbert sagði að sjá megi þessa þróun í nýlegum dómum Hæsta­réttar.

Nú hverfist dómar Hæstaréttar á því hvernig Mannréttindadómstóllinn hefur túlkað og beitt reglu sáttmálans

Í fyr­ir­lestr­inum sagð­ist Róbert ekki hafa svig­rúm til þess að ræða heild­stætt dóma­þró­un­ina á þeim tíma sem lið­inn væri frá lög­fest­ingu mann­rétt­inda­sátt­mál­ans fram til árs­ins 2018. Hann fjall­aði þó um nokkur dóms­mál til að rök­styðja mál sitt, þar á meðal fjall­aði hann um dóma­þróun í tveimur mála­flokkum, ann­ars vegar mál þar sem reynir á vernd tján­ing­ar­frelsis og hins vegar mál þar sem reynir á bann við end­ur­tek­inni máls­með­ferð til úrlausnar um refsi­verða hátt­semi.

Samkvæmt Róberti hafði lengi tíðkast í íslenskri dóma­fram­kvæmd að leysa úr meið­yrða­málum ein­göngu á grund­velli íslenskra kenn­inga og for­dæma án til­lits til dóma­fram­kvæmdar Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins og dómum Hæsta­réttar var ekki skotið til dóm­stóls­ins nema með ein­staka und­an­tekn­ingum. Hann sagði hins vegar að á þessu hafi orðið breyt­ing á árunum 2009 til 2013 þegar fjölda meið­yrða­mála var vísað til Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins í kjöl­far þess að íslenskir dóm­stólar höfðu dæmt blaða­menn til greiðslu miska­bóta fyrir æru­meið­andi umfjöllun í fjöl­miðlum. Þau mál voru leidd til lykta með átta dómum Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins á árunum 2012 til 2017 en sex þeirra voru kærendum í vil þannig að íslenska rík­inu var gert að greiða blaða­mönn­unum bætur fyrir brot gegn 10. gr. Mann­rétt­inda­sátt­mál­ans um vernd tján­ing­ar­frelsis.

Að mati Róbert er lær­dóm­ur­inn af þessum áfell­is­dómum sá að íslenskir dóm­stólar hafi ekki nægj­an­lega lagt til grund­vallar þau lög­skýr­ing­ar­sjón­ar­mið og aðferðir sem leiða af dóma­fram­kvæmd Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu.

Eftir að þessir dómar voru kveðnir upp var tveimur öðrum íslenskum dómum áfrýjað til Mann­rétt­inda­dóm­stólnum. Í þeim málum komst dóm­stól­inn að þeirri nið­ur­stöðu að íslenska ríkið hefði ekki brotið gegn 10. gr. mann­rétt­inda­sátt­mál­ans. Í nið­ur­stöð­unni kom fram að það væri vegna þess að Hæsti­réttur hefði dæmt á grund­velli þeirra sjón­ar­miða sem leiddu af dóma­fram­kvæmd Mann­rétt­inda­dóm­sóls­ins. Því segir Róbert að sjá megi á þessum síð­ustu dómum Hæsta­réttar að aðferð­ar­fræði­leg stefnu­breyt­ing hefur orðið þar sem for­sendur dóms­ins hafi hverfst að öllu leyti um það hvernig Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn hefur túlkað og beitt reglu mann­rétt­inda­sátt­mál­ans.

Þar með hafi Hæsti­réttur horfið frá þeirri til­hneig­ingu að líta fyrst og fremst til inn­lends réttar án þess að kanna gaum­gæfi­lega fram­kvæmd Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins. Nú sé ekki ein­ungis vísað almennt til fram­kvæmdar Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins heldur styðj­ist rétt­ur­inn í rík­ari mæli við þær aðferðir sem dóm­stól­inn hefur lagt til grund­vallar við túlkun við­kom­andi ákvæða mann­rétt­inda­sátt­mál­ans. Róbert benti jafn­framt á að Lands­réttur hafi einnig vísað til þess­arar aðferð­ar­fræði í dómum sínum frá því í sept­em­ber og októ­ber 2018. Því er að mati Róberts upp­haf­leg tregða íslenskra dóm­stóla til þess að fylgja dómum Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins á und­an­haldi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár